Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Fell oftast fyrir öðruvísi fötum

Ástrós Erla Bene­dikts­dóttir, förð­un­ar­fræð­ingur og fag­ur­keri, sækir inn­blástur úr öllum áttum. Hún lýsir fata­stíl sínum sem blöndu frá ýmsum tíma­bilum. Hún segir hlýjar flíkur skyldu­eign í öllum fata­skápum hér á landi yfir kaldasta vetr­ar­tím­ann en skemmti­leg­ast sé þó að kaupa öðru­vísi föt sem standa upp úr.

Ástrós Erla seg­ist hafa farið á hrað­ferð gegnum lífið hingað til en hún elski að læra, sjá og kynn­ast ein­hverju nýju.

„Hugur minn kemur stöðugt með hug­myndir um eitt­hvað nýtt sem ég get lært og prófað svo því mætti segja að mér hafi alltaf liðið best þegar ég hef nóg fyrir stafni. Ég útskrif­að­ist sem förð­un­ar­fræð­ingur fyrir átta árum og kláraði síðan BA-gráðu og Master-gráðu í félags­ráð­gjöf fyrir 25 ára aldur. Með nám­inu starf­aði ég bæði á kaffi­húsum og sem förð­un­ar­fræð­ingur og sinnti hinum ýmsu sjálf­boða­störfum, til dæmis sem for­maður nem­enda­fé­lags og full­trúi í stúd­enta­ráði.“

Inn­blást­ur­inn sækir Ástrós Erla í allar áttir en hún kaupir mest í second hand-búðum þar sem hún getur gramsað og fundið gamlar ger­semar. „Það sem ein­kennir stíl­inn minn er helst það að hann er mjög bland­aður af hinum ýmsu tíma­bilum. Þá allt frá stíl sem þú gætir hafa fundið í kringum 1700 og fram til tím­ans í dag. Ég hef gaman að því að blanda mis­mun­andi stílum og tíma­bilum saman eða skipta frá degi til dags milli t.d. 90‘s grunge eða chick flick eða 70‘s hippa.

Flestir myndu hugsa þetta sem bún­ing eða já und­ir­buxur en ég kýs að nota þær sem venju­legar buxur.

Dæmi um furðu­leg­ustu kaup mín er meðal ann­ars þegar ég fann í victorian style, pífu­und­ir­buxur á fata­mark­aði í Iðnó fyrr á árinu. Flestir myndu hugsa þetta sem bún­ing eða já und­ir­buxur en ég kýs að nota þær sem venju­legar buxur. Ég fell fyrir föt­unum sem eru öðru­vísi og standa út. Sú flík sem hefur mesta til­finn­inga­lega gildið er sem dæmi nýi gull­fal­legi silki­sam­fest­ing­ur­inn minn með pilsi sem er hægt að smella á, frá Another Creation eftir hana Ýri Þrast­ar­dóttur.

Hún sér­saum­aði kjól á mig fyrir frum­sýn­ingu úti í Köben í nóv­em­ber á bíó­mynd sem ég var að vinna að í Danmörku þar­síð­asta sumar. En ég sá um förðun og bún­inga fyrir mynd­ina og fannst ég þurfa að vera extra-fín við til­efnið.“

„Þennan síða tiger-kjól hef ég átt mjög lengi og kemur hann alltaf upp hjá mér sem ein af mínum upp­á­halds­flíkum aftur og aftur. Þrátt fyrir að hann sé mjög mikið statem­ent og stendur út þá finnst mér hann bara svo klass­ískur og fal­legur.“
„Ég myndi segja að ein af mínum upp­á­halds­flíkum er dragt eftir Hildi Yeoman. Á mynd­inni er jakk­inn sýndur með einni af minni upp­á­halds­skyrtum sem ég fann á mark­aði fyrir mörgum árum.“
„Dæmi um furðu­leg­ustu kaup mín eru meðal ann­ars þegar ég fann victorian-style pífu­und­ir­buxur á fata­mark­aði í Iðrí fyrr á árinu.“
„Ég á marga upp­á­halds­fylgi­hluti en ætli ég verði ekki að velja höf­uð­klút­ana sem ég fann á Spáni og choker-háls­menin mín en hér á mynd­inni er einn af mínum upp­á­halds eftir Hildi Yeoman.“

Myndir / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Hjónabandsráðgjafinn Molly Mindel segir að kynlíf eftir rifrildi geti aukið nánd en komi ekki í stað samtals um það sem olli ágreiningnum.

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

„Nið­ur­lægj­andi að smækka fólk niður í tölur“

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Lyf í töflu­formi vekur vonir um hæg­ari fram­gang Alzheimers