Nú eru tvö ár síðan tónlistarmaðurinn Gauti Þeyr Másson – Emmsjé Gauti – og eiginkona hans – Jovana Schally gengu í það heilaga.
Annað brúðkaupsafmælið er tileinkað bómull; kallast bómullarbrúðkaup:
„Gift í 2 ár. Good times. Volim te,“ skrifaði kappinn við færsluna, en þess ber að geta að Volim te þýðir „ég elska þig“ á serbnesku og króatísku.
Þessi fallegu hjón voru gefin saman í Fríkirkjunni í Reykjavík þann 6. ágúst 2022 en þau hafa verið saman síðan árið 2016; trúlofuðu sig svo þremur árum síðar. Eiga hjónin samtals þrjú börn.
Til hamingju með lífið.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir