Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Fólk

Selja ein­býli með turn­stofu og verð­launa­garði

Foreldrar börðust gegn barnavernd og höfðu betur

Töldu meðal ann­ars að barna­vernd hefði ekki gætt með­al­hófs

Krakkar í Reykjavík
Krakkar í Reykja­vík Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Reykjavíkurborg

Úrskurð­ar­nefnd vel­ferð­ar­mála hefur fellt úr gildi ákvörðun umdæm­is­ráðs barna­verndar um óboðað eft­ir­lit með heim­ili drengs og sam­þætt­ingu þjón­ustu undir stjórn barna­verndar. Nefndin taldi gögn máls­ins ekki sýna fram á að aðstæður drengs­ins væru óvið­un­andi. Úrskurð­ur­inn var birtur af stjórn­völdum þann 1. októ­ber á vef­síðu Stjórn­ar­ráðs Íslands.

Málið hafði verið til með­ferðar hjá barna­vernd­ar­þjón­ustu frá sumr­inu 2024 og höfðu alls borist sex til­kynn­ingar vegna fjöl­skyld­unnar. For­eldrar drengs­ins sögðu til­kynn­ing­arnar tengj­ast alvar­legum veik­indum móður hans og þeim breyttu aðstæðum sem fjöl­skyldan hefði þurft að aðlag­ast.

Umdæm­is­ráð hafði í des­em­ber 2025 úrskurðað að óboðað eft­ir­lit skyldi vera með heim­ili drengs­ins í sex mán­uði og að þjón­usta í þágu far­sældar hans yrði sam­þætt. Kröfu barna­verndar um að dreng­ur­inn skyldi sæta sál­fræði­með­ferð án sam­þykkis for­eldra var hins vegar hafnað.

For­eldr­arnir kærðu ákvörð­un­ina og töldu meðal ann­ars að barna­vernd hefði ekki gætt með­al­hófs eða jafn­ræðis. Barna­vernd­ar­þjón­ustan hafn­aði því og sagði áhyggjur hafa verið af aðbún­aði drengs­ins og sam­starf við föður hans ekki skilað við­un­andi árangri.

Í nið­ur­stöðu úrskurð­ar­nefnd­ar­innar kemur fram að fjöl­skyldu­að­stæður drengs­ins séu erf­iðar vegna alvar­legra veik­inda móður hans. Heilsa drengs­ins virð­ist þó nokkuð góð og honum líði vel bæði í skóla og heima.

Nefndin taldi fjöl­skyld­una þurfa þjón­ustu sveit­ar­fé­lags­ins og gott sam­starf við yfir­völd. Gögn máls­ins bæru hins vegar ekki með sér að nauð­syn­legt væri að halda áfram eft­ir­liti barna­verndar með heim­il­inu.

Var úrskurður umdæm­is­ráðs­ins því felldur úr gildi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Eftir 180 daga á sjúkrahúsi segir Ingólfur Marteinn Jones greiðslur sínar falla niður. Hann hafði vænst um 400 þúsund króna í desember.
Heimur

Segja Rússa hafa skipu­lagt árás undir fölsku flaggi í Póllandi

Heimur

Meintur flug­dólgur sleppur með hluta skrekks­ins

Heimur

Ísraelar hefja hern­að­ar­að­gerð í mið­hluta Gaza

Heimur

Greene telur trufl­an­irnar eftir kosn­ing­arnar ekki til­viljun

Innlent

Innlent

Stakk starfs­mann í háls­inn með blý­anti

Maðurinn braut rúðu í útidyrahurð starfsmannsins rúmum sjö mánuðum eftir árásina til að komast inn á heimili hans.
Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Ásdís Rán vill að Alþingi hringi bjöll­unni

Innlent

Tinna vill kenna börnum að láta sér leið­ast

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

Eigna­spjöll til rann­sóknar í Reykja­vík og Garðabæ