Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Bólótt húð – hvað er til ráða?

Til að við­halda fal­legri og heil­brigðri húð er nauð­syn­legt að hugsa vel um hana og nota snyrti­vörur sem henta húð­gerð manns. Gríð­ar­legt úrval snyrti­vara er á mark­að­inum í dag og oft vefst fyrir fólki hvaða vörur henta því vegna þess að það vantar skiln­ing og þekk­ingu á eigin húð.

Feitri húð og bólóttri húð er oft ruglað saman. Vissu­lega hættir feitri húð til að stífl­ast og fá fíla­pensla eða bólur. Hins vegar, þegar um bólótta húð, eða acne, er að ræða verður fitu­kirtla­fram­leiðslan það mikil að húðin er stöðugt að stífl­ast þannig að graftr­ar­bólur og kýli mynd­ast á ákveðnum svæðum.

Flestir tengja bólótta húð helst við ung­lings­árin og gelgju­skeiðið, vegna tengsla við aukna horm­óna­starf­semi og því­líkt, en það hefur færst í auk­ana und­an­farin ár að full­orðnir séu að kljást við þennan vanda og þá aðal­lega konur. Það er nú talið að ein af hverjum tutt­ugu konum þjá­ist af full­orð­ins-acne en ein­ungis einn af hverjum hund­rað karl­mönnum.

Dagleg umhirða bólóttrar húðar er nokkuð svipuð og umhirða feitrar húðar. Oft og tíðum er þó nauð­syn­legt að leita ráða hjá lækni og fá lyf­seð­ils­skyld lyf, ýmist sýkla­lyf, roacutan eða smyrsl. Slík lyf geta gert húð­ina þurra, ljós­næma og við­kvæm­ari tíma­bundið og þá þarf að haga umhirð­unni eftir því.

Hreinsun

Það er sér­stak­lega mik­il­vægt að þrífa bólótta húð vel til að minnka óhrein­indi og bakt­er­íur á henni. Mörg snyrti­vöru­fyr­ir­tæki fram­leiða sér­stakar vörur fyrir bólótta húð sem hafa þá bæði sýkla­drep­andi, bólgu­eyð­andi og sef­andi eig­in­leika. Salicylic-sýra er mjög algengt inni­halds­efni því hún hjálpar til við að hreinsa óhrein­indi úr húð­holum án þess þó að þurrka húð­ina.

Ekki er mælt með því að nota kornamaska eða skrúbb á bólótta húð því að hann getur opnað húð­ina, gert hana við­kvæm­ari og dreift bakt­er­íum. Betra er að nota maska eða and­lits­vatn sem inni­heldur ávaxta- eða mjólk­ur­sýrur, svo­kall­aðar Alpha hydroxy-sýrur, til að djúp­hreinsa og örva end­ur­nýjun húð­ar­innar.

Raki

Það sama á við um bólótta húð og feita húð að það er nauð­syn­legt að veita henni góðan raka því ann­ars mun fitu­fram­leiðslan ein­ungis aukast. Einnig er bólóttri húð hætt við að fá yfir­borðs­þurrk ef not­aðir eru þurrk­andi hreinsar eða vörur sem inni­halda sýrur. Krem fyrir bólótta húð eru oft mjög létt og olíu­laus en inni­halda mik­inn raka.

Þó að það hljómi ef til vill ógn­vekj­andi fyrir þá sem eru með bólótta húð þá getur verið gott að nota hreina plöntu­olíu sem raka­krem endrum og sinnum. Rós­berja­olía (e. Rosehip oil) inni­heldur til dæmis mjög mikið af nátt­úru­legu E-vítamíni sem hefur græð­andi áhrif á húð­ina. E-vítamín er nauð­syn­legt til þess að draga úr öra­myndun sem er leiður fylgi­fiskur bólna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Hjónabandsráðgjafinn Molly Mindel segir að kynlíf eftir rifrildi geti aukið nánd en komi ekki í stað samtals um það sem olli ágreiningnum.

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

„Nið­ur­lægj­andi að smækka fólk niður í tölur“

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Lyf í töflu­formi vekur vonir um hæg­ari fram­gang Alzheimers