Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Gunnar Smári hjólar í útgerðirnar og lygina: „Meira og minna einkavinavætt til auðhringja“

Gunnar Smári Egilsson, formaður framkvæmda­stjórnar Sósíalista­flokks Íslands, tekur saman skiptingu útflutnings­verðmæta loðnu­kvótans í nýjum pistli sínum.

Þar fer hann yfir skiptingu útflutnings­verðmætanna milli útgerðar­fyrir­tækjanna sem eiga kvótann. Nú stefnir í stóra loðnu­vertíð, eftir loðnu­brest síðastliðin tvö ár. Komandi vertíð hefur verið metin á 50-70 milljarða króna í útflutnings­verðmæti, sem eru um 1,5-2,0 prósent af lands­fram­leiðslunni.

Gunnar Smári fer yfir skiptinguna:

„Loðnu­kvótinn fer til ellefu fyrir­tækja. Ef við skiptum 60 milljarða útflutnings­verðmæti á milli þeirra er skiptingin þessi:

Ísfélagið: 11.992 m.kr.
Brim: 10.800 m.kr.
Síldar­vinnslan: 9.595 m.kr.
Vinnslu­stöðin: 7.397 m.kr.
Samherji: 5.517 m.kr.
Eskja: 5.284 m.kr.
Skinney-Þinganes: 4.882 m.kr.
Gjögur: 1.594 m.kr.
Runólfur Hallfreðsson: 1.500 m.kr.
Loðnu­vinnslan: 1.050 m.kr.
Rammi: 390 m.kr.

Þarna sést að þrjú stærstu fyrir­tækin eru með meira en helming af kvótanum, 63% ef maður telur Samherja og Síldar­vinnsluna saman. Fjögur stærstu fyrir­tækin eru með 75% af kvótanum og sex stærstu með yfir 90%. Svona er samþjöppunin í sjávar­útvegi orðin. Miðin hafa verið einkavædd og fáeinar stór­útgerðir sölsað þau undir sig.

En þetta vitið þið öll. Og því miður yppta flest ykkar öxlum, dæsið og andvarpið: Ætli það sé ekki bara best að kjósa Framsókn? Ætli það sé ekki bara best að gera ekki neitt, leyfa þjófunum að ríkja yfir þjófræðinu.“

Hann heldur áfram:

„Þetta með Framsókn er harmsaga Íslands eins og Framsóknar­flokkurinn er harmsaga. Þetta er flokkur sem var byggður á samvinnu­hreyfingunni, sem var byltingarafl á Íslandi, átti stærstan þátt í að móta hér nútíma­samfélag.

Þegar hreyfingin klíkuvæddist varð Framsókn að flokki kommissara í Sambandinu og þegar þeim tókst að eyði­leggja hreyfinguna varð Framsókn flokkur óligarkanna sem sölsuðu undir sig eigur samvinnu­hreyfingarinnar. Óligarkarnir í Framsókn eru nákvæmlega sömu tegundar og óligarkarnir sem náðu undir sig eigum almennings í Rússlandi eftir fall Sovét­ríkjanna.

Að almenningur skuli svara þessum þjófnaði á almanna­eignum með því að spyrja hvort ekki sé bara best að hafa þetta svona, er merki um almennt siðrof í íslensku samfélagi.

Og það sama á auðvitað við einka­væðingu fiskimiðanna. Eins og sést í dag þegar loðnu­stofninn braggast. Megnið af kvótanum rennur til fimm auðhringja.“

Gríðarleg hækkun á markaðsvirði útgerðanna

Gunnar Smári segir að frá því að Hafrannsóknarstofnun tilkynnti um aukinn loðnu­kvóta hafi markaðs­virði útgerð­anna Brims og Síldar­vinnslunnar hækkað um 73,9 milljarða króna.

„Þetta er svo fyndið. Þegar fréttir berast af mögulegum 50-70 milljarða króna loðnu­vertíð þá hækkar virði tveggja útgerða sem eiga 1/3 af kvótanum um meira en samanlagt allt útflutnings­verðmæti kvótans. Ef þessu er beitt á öll útgerðar­fyrirtækin jafn­gildir þetta því að aukinn loðnu­kvóti hækki verðmæti þeirra um 217 milljarða króna.

Ef við gerum ráð fyrir EBITDA (hagnaður fyrir fjármagns­kostnað, skatta, afskriftir og arð) verði á vertíðinni eins og hún hefur verið hæðst í sögunni eða um 33% af veiðum (og það sama gildi um vinnsluna) þá skila um 60 milljarða króna útflutnings­verðmæti um 20 milljarða króna EBITDA.

Hækkun verðmæta fyrirtækjana er því 10,85-föld möguleg EBITDA. Sem er tvöföld hækkun miðað við stöðugan rekstur traustra fyrir­tækja. Sem loðnu­útgerð er ekki. Það getur enginn spáð fyrir um kvótann næstu tvö árin, hvað þá tíu eða tuttugu.

Í dag er Brim metið í kaup­höllinni á 16,9-falda EBITDA síðasta árs og Síldar­vinnslan á 20,0-falda EBITDA. Annað hvort eru þessi fyrirtæki stórkost­lega ofmetin eða að markaðurinn veit að bókfærður hagnaður er aðeins hluti raun­verulegs hagnaðar, að fyrir­tækin séu traustari en ársreikningar segi til um vegna þess að þau geti fært hagnað til dóttur­fyrirtækja í útlöndum og bókfært hann aðeins að litlu leyti hér heima til að losna undan sköttum og skyldum, launa­greiðslum og gjöldum.

En svona er Ísland í dag. Meira og minna einkavina­vætt til auðhringja sem reka sína stjórn­málaflokka og sem almenningur kýs vegna þess að fólk hefur misst vonina um að hægt sé að byggja upp skárra og rétt­látara samfélag. Hér eru reknar stofnanir sem eru sjaldnast það sem þær segjast vera, ef þær segjast vinna fyrir almenning eru þær í raun að vinna fyrir mennina sem rændu almenning.

Og þegar búin er til kauphöll til að skrá virði fyrir­tækja þá verður hún að brandara um leið. Verðið á ekkert skylt við innra virði fyrir­tækja eða raunvirði heldur endur­spegla væntingar braskara og fjárglæfra­fólks. Og bálið sem logar í kaup­höllinni er kynt með lífeyris­sparnaði almennings.

Það er alveg sama hversu vantrúa þú ert á íslenskt samfélag, hvað þú vantreystir stjórn­málum og viðskipta­lífinu; reglan er sú að ástandið er í raun enn verra. Linnulaus frétta­flutningur úr þessum geirum þar sem látið er eins og ástandið sé normalt blekkir þig til að efast um eigin tilfinningu fyrir botn­lausri spillingu, græðgi og heimsku valda­stéttarinnar. Allt sem haldið er fram er lygi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Slysið varð aðfaranótt sunnudags á blautum vegi við Flúðir.
Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi