Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Fólk

Selja ein­býli með turn­stofu og verð­launa­garði

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Fólk

Ragnar Bragason birti mynd­band af dul­ar­fullum ljósum yfir Sunda­höfn

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Guðbjörn segir áhrifavalda vera krabbamein samfélagsins: „Algjörlega einskis virði“

Sunneva Einars og Birta Líf eru þekktir áhrifavaldar –
Sunneva Einars og Birta Líf eru þekktir áhrifa­valdar – Mynd: Kjörís

Guðbjörn Guð­björns­son eft­ir­launa­þegi skrifar ótrú­legan pistil sem birt­ist fyrr í dag og sparar hann ekki stóru orðin þegar kemur að áhrifa­völdum en hann kallar þá meðal ann­ars sníkju­dýr og krabba­mein.

„Mig langar til að opna á umræð­una um and­styggi­lega sný­kju­dýra­teg­und sem hefur dreift sér um hvert horn þeirrar staf­rænu ræs­is­frá­veitu sem við köllum inter­netið. Þessir svoköll­uðu „áhrifa­valdar“ eru í raun ekk­ert annað en eitruð blanda af sjálf­hverfu og inni­halds­leysi, teg­und af fólki sem er algjör­lega einskis virði en hefur ein­hvern veg­inn tek­ist að græða á aumk­un­ar­verðu lífi sínu með því að sann­færa þús­undir heila­lausra fylgj­enda sinna um að kaupa sig inn í inn­an­tóma til­veru þeirra,“ skrifar Guðbjörn í pistl­inum sem birt­ist á Vísi.

„Leyfið mér að útskýra nákvæm­lega hvers vegna þessi sný­kju­dýr eru full­komin birt­ing­ar­mynd alls þess sem er að í nútíma­sam­fé­lagi.

Fyrst skulum við ræða „efnið“ þeirra. Hvað eru þau að skapa nákvæm­lega? Ég skal segja þér það. Þau skapa sam­felldan straum af ógeðs­legum þvætt­ingi sem er hann­aður til að selja þér lífs­stíl sem er jafn raun­veru­legur og bar­dagi á milli chihuahua-hunds og hákarls. Þetta fólk er ekk­ert annað en staf­rænar gínur, sem glennir sig fyrir framan mynda­vél­ina, selj­andi óhefð­bundnar lækn­ingar í formi hreinsitea, húð­krema og hvað­eina sem nýjasta brellan er sem á að gera líf þitt jafn full­komið og þeirra virð­ist vera. Sann­leik­ur­inn? Líf þeirra er jafn tómt og merk­ing­ar­laust og vör­urnar sem þau selja. Á bak við hvern filter, hverja breytta mynd, er gap­andi tóm­leiki og örvænt­ing.“

Þá vandar Guðbjörn fylgj­endum áhrifa­valda ekki kveðj­urnar og líkir þeim við aumkunn­ar­verða hunda sem grát­biðja um mat­ar­leifar. Guðbjörn segir áhrifa­valda nýta sér óör­yggi fylgj­enda sinna og selja þeim falska drauma og það sé aðeins gert til að fylla vasa áhrifa­vald­anna.

„Það ógeð­felldasta við þetta allt saman er hin gríð­ar­lega dirfska þess­ara ein­stak­linga. Þeir ganga um eins og þeir séu að gera heim­inum greiða, eins og þeir séu ein­hvers konar menn­ing­ar­bylt­ing­ar­menn, þegar í raun­inni eru þeir ekk­ert annað en yfir­borðs­leg aug­lýs­inga­skilti. Þeir hafa dirfsk­una til að kalla sig „frum­kvöðla“, eins og það að pósta hálf­nöktum myndum og aug­lýsa afslátt­ar­kóða fyrir skyndi­tísku­fatnað sé ein­hvers konar göfug iðja. Frum­kvöðlar? Frum­kvöð­ull skapar verð­mæti. Þessir kjánar eru bara að nýta sér þá stað­reynd að með­al­greind fylgj­enda þeirra er lægri en verðið á fölsuðum Yeezy-skóm.“

Þá segir Guðbjörn einnig að öll sú auð­mýkt sem áhrifa­valdar sýni sé fölsk og jafn ekta og þriggja þús­und króna seð­ill.

„Þeir eru ekki þakk­látir fyrir neitt nema pen­ing­ana sem streyma inn á reikn­ing­ana þeirra og þá stað­fest­ingu sem þeir fá frá lofi fylgj­enda sinna. Þetta er allt leik­rit, þeim er sama um þig. Þeim er sama um allt, nema sjálfa sig og næsta #sam­starf.

Instagram áhrifa­valdar eru krabba­mein nútíma­sam­fé­lags, sem breiðir úr sér í hvert ein­asta horn til­veru okkar, breyt­andi öllu sem þeir snerta í aug­lýs­inga­pláss. Þeir eru full­komið sönn­un­ar­gagn þess að við lifum í dystópískri martröð þar sem vin­sældir eru gjald­mið­ill og raun­veru­leik­inn er orð­inn eitt­hvað sem er smurt ofan á brauð. Næst þegar þú skrollar í gegnum Instagram, mundu þetta: Þú ert ekki að horfa á raun­veru­legt fólk. Þú ert að horfa á háþróað form staf­ræns rusls, snyrti­lega inn­pakkað og selt þér sem eitt­hvað sem er þess virði að sækj­ast eftir.“

Guðbjörn endar pistil­inn á að segja að eina leiðin til vinna gegn áhrifum áhrifa­valda sé að hætta kaupa kjaftæði þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Leki varpar ljósi á við­skipti Deutsche Bank við Epstein

Upphæðin er meira en tvöfalt hærri en áður hafði komið fram í rannsókn bandarísks öldungadeildarþingmanns. Skjölin ná einnig til skattagagna Trumps.
Innlent

Tinna vill kenna börnum að láta sér leið­ast

Heimur

Banda­ríkin missa stöðu sína sem land án misl­inga

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

Innlent

Eigna­spjöll til rann­sóknar í Reykja­vík og Garðabæ

Lögregla rannsakar einnig tilkynningu um líkamsárás í miðborginni.
Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti