Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Fólk

Selja ein­býli með turn­stofu og verð­launa­garði

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Fólk

Ragnar Bragason birti mynd­band af dul­ar­fullum ljósum yfir Sunda­höfn

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Tíu flottustu tré Reykjavíkur árið 2024

Á hverju ári velur Skóg­rækt­ar­fé­lag Reykja­víkur hverf­is­tré Reykja­víkur í öllum hverfum borg­ar­innar og er valið erfitt enda mörg mjög fal­leg tré í borg­inni.

HVERFISTRÉ ÁRBÆJAR er trjá­lundur í Árbæj­ar­laug. Lund­ur­inn fegrar umhverfið, rammar inn svæðið og eykur ánægju sund­gesta, sem eru ófáir. Þá lét fólk þess getið hve hlý­legt er að hafa sígrænan gróður, einkum að vetr­ar­lagi. Lóðin við Árbæj­ar­laug var hönnuð sam­hliða hönnun og bygg­ingu laug­ar­innar sem var opnuð árið 1994. Suð­ur­hluti lóð­ar­innar nær að hluta inn í gam­alt sum­ar­bú­staða­land sem þá þegar var skógi vaxið. Það er hái og þétti trjá­lund­ur­inn sem er sunnan við laug­ina.
HVERFISTRÉ BREIÐHOLTS er ilm­reynir (Sorbus aucuparia) við Vest­ur­berg 29. Reyn­ir­inn var gróð­ur­settur árið 1976, skömmu eftir flutt var inn í nýbyggt íbúð­ar­húsið. Síðan þá hefur reyn­ir­inn vaxið og dafnað. Tréð er vel stað­sett í garði við hlið göngu­stígs.

HVERFISTRÉ GRAFARHOLTS-ÚLFARSÁRDALS er garða­hlynur (Acer pseu­do­plat­anus) við Ólafs­geisla 17. Hlyn­ur­inn er afar fal­legur og þrífst vel. Hann er á fal­legum stað, sést langt að og eins og horfir yfir skóg­lendið og Graf­ar­holts­völl fyrir neðan. Tréð var gróð­ur­sett árið 2004, þegar það hafði náð um 1,5 metra hæð. Það hefur gott rými til að vaxa og hefur fengið ágæta umhirðu. Hlyn­ur­inn hefur verið snyrtur reglu­lega til að stýra vexti og þolir það greini­lega ágæt­lega. Það hve vel þessum hlyn líður í hlíðum Graf­ar­holts­ins, gefur góð fyr­ir­heit fyrir vöxt trjá­gróð­urs í þessu unga hverfi á næstu árum og ára­tugum.

HVERFISTRÉ GRAFARVOGS er garða­hlynur (Acer pseu­do­plat­anus) við Reykja­fold 12. Hlyn­ur­inn er ekki nema 37 ára en hefur nýtt tím­ann vel. Tréð er þegar orðið hið glæsi­leg­asta, þótt það sé barn að aldri á mæli­kvarða garða­hlyna sem verða 500 ára. Tréð sést vel frá göngu­stíg í hverf­inu og greini­legt að það hefur heillað veg­far­endur, enda bár­ust nokkrar til­nefn­ingar á því til félags­ins.

HVERFISTRÉ HÁALEITIS-BÚSTAÐA er evr­ópulerki (Larix decidua) við Grund­ar­gerði 19. Í Háa­leitis- og Bústaða­hverfi er mikið um glæsi­legt tré — seljur, reyni­tré, hlyni og svo mætti lengi telja. Valnefnd félags­ins var því nokkur vandi á höndum, eins og gildir reyndar um fleiri hverfi. Evr­ópulerkið er hávaxið, krækl­ótt og bogið en jafn­fram hið glæsi­leg­asta með sterkan karakter sem setur skemmti­legan svip á göt­una.

HVERFISTRÉ HLÍÐA er garða­hlynur (Acer pseu­do­plat­anus), Reykja­hlíð 8. Margar ábend­ingar bár­ust um hlyn­inn enda er þetta glæsi­lega tré stað­sett við göngu­stíg að leik­skól­anum Hlíð, svo að margt fólk nýtur þess þegar það á leið hjá. Tréð er stórt með vold­ugan stofn og íburð­ar­mikla krónu. Hlyn­ur­inn er með nægt pláss í kringum sig og fær því að njóta sín að fullu. Íbúar lýsa trénu sem „prýði hverf­is­ins“ og oft heyr­ist til borg­ar­búa og ferða­manna stoppa og dást að því hvað hlyn­ur­inn er fal­legur.

HVERFISTRÉ KJALARNESS er gull­regn (Laburnum x watereri) við Esju­grund 34. Gull­regnið er fal­legt og hefur blómstrað fal­lega í sumar, líkt og gull­regn víðar í borg­inni eftir góð­viðra­sum­arið 2023. Tréð hefur notið alúðar í upp­eld­inu og er vel haldið í einka­garði. Jafn­framt sést það vel frá göngu­stíg í miðju Grund­ar­hverfi og því margir sem geta notið þess.

HVERFISTRÉ LAUGARDALS er gull­regn (Laburnum x watereri) í garði Ásmund­ar­safns. Eins og segir í til­nefn­ingu er tréð „afar fag­urt og myndar stór­feng­lega hvelf­ingu yfir úti­lista­verkum í garði safns­ins sem er öllum opinn.“ Gullregn eru fal­leg úr fjar­lægð en ekki síður þegar nær er komið enda geta grein­arnar myndað fal­lega hvelf­ingu líkt og í Ásmund­ar­safni.

HVERFISTRÉ VESTURBÆJAR er álmur (Ulmus glabra) við Stýri­manna­stíg 9. Álmurinn er sér­lega stór og glæsi­legur. Hugsað hefur verið vel um tréð síð­ustu ár, meðal ann­ars tvö önnur tré sem voru komin til ára sinna verið felld. Ekki er vitað hvenær álm­ur­inn var gróð­ur­settur, en húsið að Stýri­manna­stíg 9 var reist árið 1906. Til gam­ans má geta þess að það var í þessum sama garði sem fyrsti körfu­víðir­inn var rækt­aður upp á Íslandi, um alda­mótin 1900. Tein­ungur úr tága­körfu frá Þýska­landi var gróð­ur­settur í garð­inu. Á næstu árum og ára­tugum fengu borg­ar­búa svo víði­græðlinga af þess­ari plöntu sem varð þekkt undir heit­inu Vest­ur­bæj­ar­víðir og er nú að finna víða um land.

HVERFISTRÉ MIÐBORGAR eru grá­eld­ri­tré (Alnus incana) á Aust­ur­velli sem voru gróð­ur­sett 1963. Falleg ein­stofna tré með fal­legum krónum. Vaxt­ar­lagið á teg­und­inni getur verið mis­jafnt – runni, marg­stofna tré eða ein­stofna tré með krónu. Trén njóta sín vel með öðrum fjöl­breyttum gróðri og umvefja Aust­ur­völl ein­stakri grænni hlýju.

Mörg fal­leg tré eru í hverf­inu — birki, silf­ur­reynar, hrossa­kastan­íur, garða­hlynir og svo mætti lengi telja. Þá eru í Mið­borg­inni margir almenn­ings­garðar með fal­legum og fjöl­breyttum gróðri. Allt frá Alþing­is­garð­inum, einum fyrsta skrúð­garði lands­ins (1894) til kirsu­berja­lunds­ins sem var gróð­ur­settur í Hljóm­skála­garð­inum árið 2011.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Leki varpar ljósi á við­skipti Deutsche Bank við Epstein

Upphæðin er meira en tvöfalt hærri en áður hafði komið fram í rannsókn bandarísks öldungadeildarþingmanns. Skjölin ná einnig til skattagagna Trumps.
Innlent

Tinna vill kenna börnum að láta sér leið­ast

Heimur

Banda­ríkin missa stöðu sína sem land án misl­inga

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

Innlent

Eigna­spjöll til rann­sóknar í Reykja­vík og Garðabæ

Lögregla rannsakar einnig tilkynningu um líkamsárás í miðborginni.
Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti