Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Stóri dagurinn í kvikmyndum

Brúðkaup eru sívin­sælt við­fangs­efni kvik­mynda. Það ætti ekki að koma neinum á óvart því stóra deg­inum fylgir alltaf ákveðin spenna og drama, eins og þeir þekkja sem hafa gift sig. Slíkt hentar vel í sögu­þráð kvik­myndar; tauga­veikl­aðar brúðir sem pæla í öllum smá­at­riðum, for­eldrar sem eru við það að fara á lím­ing­unum og hug­lausir brúð­gumar sem hætta við á síð­ustu stundu.

Four Weddings and a Funeral

Eins og nafnið gefur til kynna fjallar myndin um fjögur brúð­kaup og eina jarð­ar­för, allt teng­ist það Charles og vinum hans. Vinirnir velta sjálfir stöðugt fyrir sér hvort að þeir muni nokkru sinni finna einu sönnu ást­ina og gifta sig. Charles heldur að hann hafi fundið þá einu réttu í hinni banda­rísku Carrie sem hann hittir einmitt í fyrsta brúð­kaup­inu en það gengur allt á aft­ur­fót­unum hjá þeim.

Muriel’s Wedding

Súrsæt mynd um örvænt­ing­una sem fylgir oft leit að ást­inni. Muriel finnst lífið í Porpoise Spit í Ástralíu mjög leið­in­legt og nið­ur­drep­andi. Hún eyðir flestum dögum inni í her­bergi að hlusta á ABBA-tón­list og láta sig dreyma um brúð­kaups­dag­inn sinn. Hennar eina hindrun, sem er fremur stór hindrun, er sú að Muriel hefur ekki einu sinni farið á stefnu­mót með karl­manni. Hún ákveður að taka málin í sínar hendur og fer með klikk­aðri vin­konu sinni, Rhondu, til Sidney, breytir nafni sínu í Mariel og snýr lífi sínu alveg á hvolf.

Bridesmaids

Bráð­fyndin mynd með Saturday Night Live-stjörn­unum Kristen Wiig og Mayu Rudolph sem sýnir hvernig ýmis­legt getur farið úrskeiðis í gæsun. Lillian og Annie hafa verið bestu vin­konur frá barn­æsku og gengið saman í gegnum súrt og sætt. Þegar Lillian finnur loks drauma­prins­inn og ákveður að gift­ast honum tekur Annie að sér hlut­verk aðal­brúð­ar­meyj­ar­innar með ánægju. Ánægjan breyt­ist þó fljót­lega í örvænt­ingu og afbrýði­semi og Annie tekst næstum að slíta vin­áttu þeirra og eyði­leggja brúð­kaupið.

Father of the Bride

Hér fer Steve Martin á kostum í hlut­verki sínu sem George Banks, tauga­veikl­aði fað­ir­inn sem á erfitt með að sætta sig við að litla stúlkan hans sé orðin full­orðin. Myndin er end­ur­gerð á sígildri mynd með Spencer Tracy þar sem Elizabeth Taylor lék ungu brúð­ina. Fylgst er með und­ir­bún­ingi brúð­kaups­ins sem gengur að sjálf­sögðu ekki snurðu­laust fyrir sig. Smám saman lærir George að sætta sig við brúð­gu­mann og gerir sér grein fyrir því að svo lengi sem dóttir hans er ham­ingju­söm þá er hann það líka.

My Big Fat Greek Wedding

Frábær grín­mynd sem byggir á ein­leik Niu Vardalos, en hún leikur einnig aðal­hlut­verkið. Toula er grísk-banda­rísk ein­hleyp kona á þrí­tugs­aldri og það lítur ekki út fyrir að breyt­ing verði þar á í bráð. Þetta veldur henni nokkrum áhyggjum en þær eru ekk­ert í lík­ingu við áhyggj­urnar sem plaga for­eldra hennar. Þau líta á þetta sem mik­inn fjöl­skyldu­vanda og vilja helst senda dóttur sína til Grikk­lands þar sem hún gæti kynnst góðum manni. Tvennt stendur þó í vegi fyrir ham­ingju þeirra; dóttirin kynn­ist manni en hann er ekki Grikki og þar að auki er hann græn­metisæta, en fátt vekur meiri hryll­ing hjá fjöl­skyldu Toula.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.
Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Hjónabandsráðgjafinn Molly Mindel segir að kynlíf eftir rifrildi geti aukið nánd en komi ekki í stað samtals um það sem olli ágreiningnum.

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

„Nið­ur­lægj­andi að smækka fólk niður í tölur“

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Lyf í töflu­formi vekur vonir um hæg­ari fram­gang Alzheimers