Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Segir margt benda til þess að komur ferða­manna hafi verið van­taldar

Lands­bank­inn segir ýmis­legt benda til þess að komur er­lendra ferða­manna hingað til Íslands hafi verið van­taldar og utan­lands­ferðir Ís­lend­inga hafi hins vegar verið of­taldar

Fer ferðamönnum fækkandi eða fjölgandi?
Fer ferða­mönnum fækk­andi eða fjölg­andi? Lands­bank­inn er ekki viss og efast um töl­urnar frá Ferð­mála­stofu Mynd: Víkingur

Lands­bank­inn segir ýmis­legt benda til þess að komur er­lendra ferða­manna hingað til lands hafi verið van­taldar og að utan­lands­ferðir Ís­lend­inga hafi verið of­taldar.

Hag­fræði­deild Lands­bank­ans segir heild­ar­mynd­ina á Íslandi vera þá að ferða­þjón­usta hafi vaxið fyrstu fimm mán­uði árs­ins.

Hag­fræði­deild Lands­bank­ans segir lík­legt að ferða­menn hafi verið fleiri á fyrri hluta árs­ins en það sem taln­ing Ferða­mála­stofu gefur til kynna, eða þá að taln­ingin í fyrra hafi hrein­lega verið ofmetin.

Kemur einnig fram að ferðir Íslend­inga gætu verið oftaldar, eins og segir í nýrri hag­sjá Lands­bank­ans.

Færri ferða­menn hafa sótt Ísland heim það sem af er þessu ári. Á sama tíma í fyrra, sé tekið mið af tölum Ferða­mála­stofu, eða 721 þús­und á fyrstu fimm mán­uðum árs­ins borið saman við 750 þús­und á sama tíma í fyrra. En þrátt fyrir það hefur erlend korta­velta auk­ist sem og útflutn­ings­tekjur af ferða­þjón­ustu:

„Við teljum ýmis­legt benda til þess að erlendir ferða­menn hafi verið fleiri síð­ustu mán­uði en taln­ing Ferða­mála­stofu segir til um,“ segir í til­kynn­ingu frá hag­fræði­deild Lands­bank­ans.

Bent er á að við mat á fjölda erlendra ferða­manna er heim­sækja Ísland byggir Ferða­mála­stofa á gögnum Isavia um heild­ar­far­þega­fjölda um Kefla­vík­ur­flug­völl en einnig á eigin mati á skipt­ingu far­þega eftir þjóð­ernum, en mat á þjóð­erni byggir á úrtakskönn­unum sem eru gerðar reglu­lega yfir mán­uð­inn.

Lands­bank­inn segir að þar til nýverið hafi aðferðin reynst vel og tölur um fjölda ferða­manna hafi þró­ast með svip­uðum hætti og aðrir mæli­kvarðar. Því virst nokkuð réttar en annað virð­ist vera uppi á ten­ingnum núna.

Segir að umferð um Kefla­vík­ur­flug­völl hafi ekki verið meiri frá árinu 2018, og taln­ing vega­gerð­ar­innar sýnir að umferð um þjóð­vegi lands­ins hafi auk­ist tals­vert í öllum lands­hlutum nema á Suð­ur­landi á fyrstu mán­uðum árs­ins:

„Í ljósi þess að Íslend­ingar ferð­ast til útlanda sem aldrei fyrr er hálf­ó­lík­legt að þeir standi einnig fyrir fjölgun gistinótta og auk­inni umferð hér­lendis. Þessir mæli­kvarðar eru í takt við aukna erlenda korta­veltu og vöxt í útflutn­ings­tekjum sam­kvæmt þjóð­hags­reikn­ingum. Því má telja lík­leg­ast að ferða­menn hafi verið fleiri á fyrri hluta árs­ins en taln­ing Ferða­mála­stofu gefur til kynna, eða þá að í fyrra hafi þeir verið færri en taln­ingin gaf til kynna.“

Telur hag­fræði­deildin að ferðir Íslend­inga út í hinn stóra heim séu lík­lega oftaldar.

Tæplega 70 þús­und Íslend­ingar fóru til útlanda í maí sam­kvæmt tölum frá Isavia og sam­kvæmt þeim fjölg­aði ferðum Íslend­inga í maí um 25 pró­sent á milli ára. Hafa utan­lands­ferðir Íslend­inga aldrei verið fleiri í maí­mán­uði.

Met var einnig sett í apríl en þá slógu Íslend­ingar met í fjölda utan­lands­ferða í einum mán­uði. Það sem af er þessu ári hafa utan­lands­ferðir Íslend­inga verið um 29 pró­sent fleiri en á sama tíma í fyrra:

„Þótt við teljum ekki ólík­legt að ferðum Íslend­inga hafi fjölgað í takt við stór­aukna korta­veltu Íslend­inga erlendis, kann fjölg­unin að vera minni en töl­urnar gefa til kynna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

„Ég var orðinn kynlífsfíkill“
Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Peningar

Kaup­máttur jókst um 5,8 pró­sent frá upp­hafi kjara­samn­inga­lot­unnar

Atvinnuleysi fór á öðrum ársfjórðungi í fyrsta sinn frá 2010 yfir meðaltal OECD, þótt það sé enn tiltölulega lágt í alþjóðlegum samanburði.
  • Skiptum lokið á þrota­búi Talays

  • Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

  • Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

  • Lands­liðs­konur í ný störf

  • Danskur hag­fræð­ingur segir krón­una hafa verið mis­heppn­aða til­raun í heila öld