Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Þúsundasta aðalmeðferðin hjá reyndasta dómara landsins: Sakfellingu aldrei verið snúið í sýknu

Guðjón St. Mart­eins­son, reynd­asti hér­aðs­dóm­ari lands­ins hefur kveðið upp þús­und dóma í málum sem sætt hafa aðal­með­ferð. Þús­undasta dóm­inn kvað hann upp í gær en um Íslands­met er að ræða sem ljóst er að verður erfitt að toppa.

Sá dóm­ari sem hefur næst flestar aðal­með­ferðir hefur stýrt um sjö hundrum slíkum dómum. Guðjón vann fyrst í saka­dómi á níuna ára­tugnum en hefur hann verið í saka­málum frá upp­hafi. En Frétta­blaðið tók við­tal við Guðjón.

Þá segir hann frá þing­höld­unum í gömlu dag­ana, þar sem voru reyktir bæði vindlar og sígar­ettur. Segist Guðjón hafa reykt vindla en góð­vinur hans Ásgeir Frið­jóns­son rann­sókn­ar­dóm­ari reykti Camel. Þá bauð Ásgeir sak­born­ingum gjarnan sígar­ettur úr pakk­anum.

„Þegar Ásgeir dó, þá mætti fullt af mönnum í jarð­ar­för­ina sem við vorum búnir að vera að úrskurða í gæslu­varð­hald og dæma. Þetta myndi ekki ger­ast í dag, við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur.“

Guðjón segir að dóm­stólar séu vett­vangur mann­legra sam­skipta, hann eigi oft­ast mjög góð sam­skipti við þá sem að málum koma. Þó hafi komið upp und­an­tekn­ingar.

Í eitt skiptið hafi sak­sókn­ar­inn verið svo skelk­aður að hann hafi beðið um að fá að verða sam­ferða Guðjóni út um bak­dyr Hér­aðs­dóms. Þá er Guðjón stundum sagður vera mildur í garð afbrota­manna og því ákæru­vald­inu erf­iður. Hann seg­ist þó ekki gefa neinn afslátt.

Þrátt fyrir gríð­ar­legan mála­fjölda Guðjóns hefur hann aldrei kveðið upp sak­fell­ing­ar­dóm sem hefur verið snúið í sýknu af æðra dóm­stigi.

Er Guðjón er spurður út í milda dóma glottir hann og segir; „Ég hef ekki nokkra trú á refs­ingum. Þess vegna eru þær alltaf svona lágar hjá mér“.

Fáir hafa átt meiri sam­skipti við glæpa­menn lands­ins og hefur hann því góða inn­sýn í hug­ar­heim þeirra sem lög­reglan hefur reglu­leg afskipti af. Hann segir þá flesta geta gert það sem þeir vilja.

„Maður veit alveg hvað er að hjá þessum strákum, því oft­ast eru þetta fínir strákar. Bæði eru þeir greindir og gætu gert það sem þeir vildu. Þeir þurfa bara að láta renna af sér.“

Guðjón segir að lokum að taka þurfi hug­ar­far þeirra sjálfra með í reikn­ing­inn þegar refs­ingin sé ákveðin. Það vinn­ist ekk­ert með því að senda menn í fang­elsi í mörg ár hafi þeir leitað sér hjálpar og geti í raun snúið við blað­inu og komið lífi sínu á réttan kjöl.

Ísland­met reynslu­mesta dóm­ar­ans, Guðjóns St. Mart­eins­sonar verður ólík­lega slegið, í hið minnsta verður það öðrum tölu­verð áskorun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Vefur Félagsins Ísland-Palestína liggur niðri eftir árásina og óvíst er hvort hægt verði að endurheimta hann.
Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu