Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Fólk

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Netanyahu viðurkennir árás Ísraelshers á sjö hjálparstarfsmenn: „Svona gerist í stríði“

Sjö starfs­menn World Central Kitchen voru drepnir í loft­árás á Gaza í gær­kvöldi en þeir eru af nokkrum þjóð­ernum. Benjamin Net­anyahu við­ur­kennir að Ísra­els­her hafi staðið að árásinni.

Sjö starfs­menn hjálp­ar­sam­tak­anna World Central Kitchen voru drepnir í gær þegar Ísra­els­her gerði loft­árás á bif­reið þeirra á Gaza. Meðal hinna föllnu er fólk frá Bret­landi, Póllandi, Palest­ínu og einn banda­rísk-kanadískur ein­stak­lingur. Hópurinn var á ferð á svæði sem átti að vera öruggt, sam­kvæmt yfir­lýs­ingu frá WCK. Þau höfðu að sögn ferð­ast á tveimur bryn­vörðum bílum merktum WCK-merk­inu og óbryn­vörðu öku­tæki. Talið er að að minnsta kosti tveir breskir hjálp­ar­starfs­menn hafi fallið í loft­árásinni, að sögn utan­ríkis-, sam­veldis- og þró­un­ar­skrif­stof­unnar, að því er fram kemur í frétt Mirror.

Ástr­alskur hjálp­ar­starfs­maður sem sagður er hafa lát­ist í árásinni.

Þrátt fyrir að hafa sam­ræmt aðgerðir WCK við Ísra­els­her segja góð­gerð­ar­sam­tökin að bíla­lestin hafi orðið fyrir árás þegar hún var að yfir­gefa Deir al-Balah vöru­geymsl­una, þar sem teymið hafði losað meira en 100 tonn af mat sem fluttur var til Gaza í gegnum nýopn­aðar sjó­leiðir.

For­stjóri WCK, Erin Gore, sagði í yfir­lýs­ingu: „Þetta er ekki aðeins árás á WCK, þetta er árás á mann­úð­ar­sam­tök sem mæta á vett­vang við skelfi­leg­ustu aðstæð­urnar þar sem matur er not­aður sem stríðsvopn. Þetta er ófyr­ir­gef­an­legt. Ég er algjör­lega nið­ur­brotin og skelf­ingu lost­inn yfir því að við, World Central Kitchen og heim­ur­inn, misstum fal­leg manns­líf í dag vegna mark­vissrar árásar Ísra­els­hers.“

„Ástin sem þau báru til að fæða fólk, ákveðnin sem þau sýndu til að sýna að mennskan rís ofar öllu og áhrifin sem þau höfðu á ótelj­andi líf verður að eilífu minnst og í hávegum haft.“

David Cameron, utan­rík­is­ráð­herra Bret­lands, hvatti Ísrael til að „rann­saka þegar í stað“ dauða bresks hjálp­ar­starfs­manns sem lést í loft­árás á Gaza og bætti við að rík­is­stjórnin vildi „fulla, gagn­sæja skýr­ingu á því sem gerð­ist“.

Hinn fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra tísti: „Fréttir af loft­árásinni sem varð hjálp­ar­starfs­mönnum World Central Kitchen (WCK) að bana á Gaza eru mjög átak­an­legar. Sagt er að breskir rík­is­borg­arar hafi verið drepnir, við erum að vinna að því að stað­festa þessar upp­lýs­ingar og munum veita allar þær upp­lýs­ingar. stuðn­ing við fjöl­skyldur þeirra.“

Og núver­andi for­sæt­is­ráð­herr­ann, Rishi Sunak, tók krafð­ist einnig ítar­legrar rann­sóknar á hinu skelfi­lega atviki og sagði að hann væri „sjokker­aður og sorg­mæddur“ vegna dauða bresks hjálp­ar­starfs­manns á Gaza og að það væri „ljóst að það eru spurn­ingar sem þarf að svara.“. Hann sagði: „Við erum á fullu að vinna að því að stað­festa allar upp­lýs­ingar, hugs­anir mínar núna eru hjá vinum þeirra og fjöl­skyldu. Þau vinna frá­bært starf til að lina þján­ingar sem margir búa við á Gaza. Þeim ber að hrósa fyrir það sem þai eru að gera. Þau þurfa að fá að vinna þá vinnu óhindrað og það er skylda Ísraela að tryggja að þau geti gert það.“

Benjamín Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, tal­aði um loft­árás­ina þegar hann útskrif­að­ist af sjúkra­húsi eftir kvið­slits­að­gerð. Hann sagði: „Því miður kom upp hörmu­legt mál í gær þar sem her­sveitir okkar gerðu óvilj­andi árás á sak­laust fólk á Gaza-svæð­inu. Svona ger­ist í stríði, við erum að athuga þetta gaum­gæfi­lega, við erum í sam­bandi við rík­is­stjórnir og við mun gera allt til að þetta ger­ist ekki aftur.“

Stofn­andi WCK, hinn frægi kokkur Jose Andres, sagði í færslu á X: „Í dag missti @WCKitchen nokkrar systur okkar og bræður í loft­árás Ísra­els­hers á Gaza. Ég er miður mín og syrgi með fjöl­skyldu þeirra og vinum og allri WCK fjöl­skyld­unni okkar. Þetta er fólk…englar…ég þjón­aði við hlið þeirra í Úkraínu, Gaza, Tyrk­landi, Marokkó, Bahama­eyjum, Indónesíu. Þau eru ekki and­lits­laus … þau eru ekki nafn­laus.“ Bætti hann við: „Ísraelsk stjórn­völd þurfa að stöðva þessi til­vilj­un­ar­kenndu morð. Þau þurfa að hætta að tak­marka mann­úð­ar­að­stoð, hætta að drepa almenna borg­ara og hjálp­ar­starfs­menn og hætta að nota mat sem vopn. Engin fleiri sak­laus líf má taka . Friður byrjar með sam­eig­in­legri mennsku okkar. Það þarf að byrja núna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Guðmundur Ingi Kristinsson sagði heildareignir tryggingafélaganna hafa numið 360 milljörðum króna í febrúar og kallaði eftir uppgjöri bótasjóða.
Pólitík

Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda

Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Innlent

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Heimur

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Hjólaskautakonan Shrishti Dharmendra Sharma bætti eigið met í limbóskautun
Heimur

Amma skotin í höf­uðið og keyrt yfir átta

Heimur

Pútín hótar „sárs­auka­fullum“ hefndum vegna árása á Krímbrúna

Heimur

Shenk varar við nýju tíma­bili óstöð­ug­leika í tækni­málum

Heimur

Musk seg­ist ekki vera hluti af MAGA-hreyf­ingu Trumps

Heimur

Alvar­legar ásak­anir á hendur 15 ára syni raun­veru­leika­stjörnu