Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Skapandi á öllum sviðum

Rósa Rún Aðal­steins­dóttir starfar sem list­dans­kenn­ari sem hún segir eina bestu vinnu í heimi enda sé ynd­is­legt að vinna með fram­tíð Íslands. Inn­blástur í fatnað sækir hún alls staðar frá en hún heill­ast mest af víðum kápum, pilsum og buxum sem auð­velt sé að hreyfa sig í.

Mynd/Hallur Karlsson
Mynd/Hallur Karlsson

„Ég myndi segja að stíll­inn minn sé svo­lítil blanda af 70´s-hippa og slatta af 90´s með róm­an­tískum kán­tr­í­und­ir­tóni. Mér líður best þegar það er hreyf­ing í flík­unum en ég er mjög frjáls­leg og finnst gaman að blanda saman alls kyns fínu þó að engin sér­stök for­múla sé á bak við það. Að mínu mati er góð peysa skyldu­eign í alla fata­s­kápa en sjó­ara­peysan frá Ell­ing­sen heillar mig mjög þessa dag­ana. Eins langar mig í upp­háar hvítar víðar galla­buxur en ég stór­ef­ast um að ég gæti haldið þeim hvítum lengi. Djúpir litir henta mér í flestum til­fellum best en þó finnst mér gaman að ögra litapa­lett­unni af og til.“

„Þessi ljós­bláa silki­skyrta hefur mjög til­finn­inga­legt gildi en bróðir minn keypti hana fyrir mig í Japan. Fyrsta og eina skiptið sem hann hefur keypt flík á mig, mér þykir mjög vænt um hana og nota hana vel og spar­lega.“ Mynd/Aldís Páls­dóttir.

Spurð í hvaða versl­unum Rósa versli mest nefnir hún fyrst kaup­mann­inn á horn­inu. „Mér finnst skemmti­leg­ast að versla þegar ég þarf að hafa aðeins fyrir því að róta og gramsa eftir ger­semum sem leyn­ast inn á milli því þar eru oft og tíðum vand­aðar flíkur á góðu verði. Ég reyni að kaupa mest af kaup­mann­inum á horn­inu og líður lang­best í litlum rót­grónum fata­versl­unum. Mér finnst skemmti­leg­ast að kaupa yfir­hafnir og dregst alltaf að fal­legum síðum kápum og peysum því þá þarf ég ekki að fara í mát­un­ar­klef­ann. Það er hins vegar leið­in­leg­ast að kaupa galla­buxur og brjósta­hald­ara í ljósi þess hversu mjög ég reyni að forð­ast mát­un­ar­klef­ann. Mér finnst miklu betra að máta í miðri búð og valsa svo um og finna hvernig flíkin hreyf­ist á mér og ákveða út frá því hvort hún verði mín eða ekki.“

„Ég á nokkra silki­klúta sem mér þykir vænt um og þennan hring erfði ég eftir ömmu mína og nöfnu, hann er mér afar kær.“ Mynd/Aldís Páls­dóttir

Þegar talið berst að furðu­leg­ustu kaup­unum rifjar Rósa upp eft­ir­minni­leg kaup á ung­lings­árum. „Fyrstu kaupin á Asos vöktu ekki mikla lukku á heim­il­inu. Ég var sextán ára og hafði keypt drag­síðan her­manna­kjól en pabbi þurfti að borga heil­mikla fjár­upp­hæð fyrir heim­send­ingu á kjólnum og því varð ég að standa með þessum kaupum mínum. Til að gera langa sögu stutta hefur kjóll­inn fengið að hanga í góðan ára­tug ósnertur í fata­skápnum.“

Fullt nafn: Rósa Rún Aðal­steins­dóttir.

Starfs­heiti: List­dans­kenn­ari.

Aldur: 27 ára.

Fal­leg­asti fata­lit­ur­inn? Djúpir litir, eins og kónga­blár og vín­rauður.

Besta lykt í heimi? Mig langar að segja bens­ín­lykt. Einnig nýþvegin og úti­viðruð sæng­ur­föt og lyktin frá reyk­vél­inni í leik­hús­inu.

More is less eða Less is more? More is more alla leið.

Þægindi eða útlit? Bæði betra, það sagði mamma mín alla vega.

Á döf­inni: Ég hef verið að taka kúrsa á Netinu, ann­ars vegar um manns­lík­amann og hvernig við hreyfum okkur og hins vegar um and­lega heilsu. Ég er með spenn­andi dans­verk­efni fram undan sem er mjög gef­andi og frá­bært.

„Þessar ljósu harlem-buxur keypti ég í Gyllta kett­inum nýverið á litlar þús­und krónur, það voru mjög góð kaup.“ Mynd/Aldís Páls­dóttir
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Hjónabandsráðgjafinn Molly Mindel segir að kynlíf eftir rifrildi geti aukið nánd en komi ekki í stað samtals um það sem olli ágreiningnum.

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

„Nið­ur­lægj­andi að smækka fólk niður í tölur“

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Lyf í töflu­formi vekur vonir um hæg­ari fram­gang Alzheimers