Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

„Mikilvægt að sleppa aldrei kröfum um gæði“

Kristján Örn er einn af fjórum stofn­endum og eig­endum arki­tekta­stof­unnar KRADS.

Kristján Örn er einn af fjórum stofnendum og eigendum arkitektastofunnar KRADS ásamt þeim Kristjáni Eggertssyni, Mads Bay Møller og Kristoffer Juhl Beilman. KRADS stofnuðu þeir félagar árið 2006 í Danmörku og á Íslandi. Við fengum Kristján til þess að veita okkur innsýn í arkitektúr á Íslandi í dag.

Hvaða straumar og stefnur eru mest áber­andi í arki­tektúr í dag? „Þegar ég var í námi í Danmörku var bæði ákveðin teg­und mínimalsma áber­andi og svo hol­lenski skól­inn og sú stefna sem stundum er nefnd súper­módern­ismi. Konseptið skipti þar mestu máli en minni áhersla var til dæmis lögð á að draga fram stað­bund­inn karakter, sögu, hand­verk og annað slíkt í arki­tekt­úrnum – sem er farið að bera meira á aftur, að minnsta kosti hér á Norð­ur­lönd­unum. Eins virð­ist áhug­inn á hinum svoköll­uðu „stjörnu­arki­tektum“ fara minnk­andi og umræðan frekar farin að snú­ast um mik­il­væg gildi eins og vist­væn gildi og sam­fé­lags­legt ábyrgð­ar­hlut­verk þeirra sem móta hið mann­gerða umhverfi. Þetta sést til dæmis glögg­lega á þema tveggja síð­ustu Fen­eyj­artví­ær­ing­anna. Sjálfur hef ég skil­greint mig sem brú­tal mínima­lista eða mínimal brút­a­lista, í ákveð­inni blöndu af öllu ofan­greindu.“

Hvaða arki­tekt/hönn­uður hefur veitt þér mestan inn­blástur í störfum þínum? „Þar gæti ég nefnt marga meist­ara, eins og t.d. Arne Jacobsen frá Danmörku, Kenzo Tange frá Japan eða Oscar Niemeyer frá Brasilíu. Ég held að ég verði þó að segja að sviss­nesku arki­tekt­arnir Herzog & de Meuron hafi haft hvað mest áhrif á mig bæði í nám­inu og í fag­um­hverf­inu. Þeir hafa alltaf nálg­ast hvert verk­efni á ólíkan hátt, haft auga fyrir smá­at­riðum og efn­is­kennd og geta unnið með smá, miðl­ungs­stór og risa­stór verk­efni af sömu næmni. Verk þeirra eru jafn­ó­lík og stað­irnir sem þeir hafa unnið með.“

Ein­býl­is­hús í Randers, Danmörku, hannað af KRADS arki­tektum og hlaut Arki­tekta­verð­laun Randers árið 2013.

Hvar standa Íslend­ingar á heims­vísu hvað varðar arki­tektúr og sam­keppn­is­hæfni? „Það eru margar góðar arki­tekta­stofur á Íslandi. Margar þeirra eru litlar og ungar stofur sem mættu gjarnan fá fleiri tæki­færi til að spreyta sig við stærri verk­efni – það myndi sann­ar­lega bæta stöðu okkar hvað varðar arki­tektúr og sam­keppn­is­hæfni. Ég vil nota tæki­færið og gagn­rýna ákveðna fljót­færni og íhalds­semi í bygg­ing­ar­geir­anum, sér­stak­lega þegar kemur að upp­bygg­ingu fjöl­býla og umhverfis þeirra á Íslandi. Þar virð­ist þemað oft­ast vera; hratt, auð­velt og ódýrt. Góð upp­bygg­ing þarf ekki að vera kostn­að­ar­söm og hún þarf ekki endi­lega að vera erfið. En hún er sjaldan hröð. Það þarf að gefa sér tíma að hugsa, og hanna, hlut­ina til enda áður en farið er af stað. Góð hönnun getur sparað í upp­bygg­ingu, gert bygg­ingar hag­kvæm­ari í rekstri og skapað marg­vís­leg aukin verð­mæti. Lang­tíma­hugsun virð­ist oft gleym­ast hér á landi og við mættum horfa til nágranna­landa okkar í rík­ari mæli hvað gæði snertir. Hér á landi er ein­blínt um of á kostnað pr. fer­metra, fáir vand­aðir og dýr­ari fer­metrar geta verið hag­kvæm­ari en margir ódýrir af litlum gæðum.“

Sumarhús í Kiðja­bergi eftir KRADS arki­tekta.

Hvað er mik­il­væg­ast þegar kemur að góðri hönnun og hvað ber að var­ast? „Mik­il­væg­ast þykir mér að gefa sér góðan tíma og vanda til hvers þess verks sem maður tekur sér fyrir hendur. Við hönnun er nauð­syn­legt að skoða og prófa margar mis­mun­andi útfærslur sem koma til greina svo hægt sé að finna þá bestu, þetta tekur tíma. Einnig er gríð­ar­lega mik­il­vægt, að mínu mati, að velja góð efni, efni sem fá að eld­ast og veðr­ast fal­lega, þannig gerum við bygg­ingar og rými sem bæði end­ast og eld­ast vel. Það sem ber að var­ast, að mínu mati, er þessi dýrkun á við­halds­fr­íum lausnum í hinu og þessu. Ég tel það hrein­lega nauð­syn­legt að bygg­ingar hafi við­hald upp að vissu marki. Við þurfum að sýna okkar nán­asta umhverfi umhyggju og virð­ingu, megum ekki enda í plast­ísku ofneyslu­sam­fé­lagi þar sem einnota­lausnir eru alls­ráð­andi. Við getum lært mikið af okkur eldri kyn­slóðum sem keyptu sér eina vand­aða hræri­vél, hún var dýru verði keypt en dugði þeim alla þeirra ævi og situr jafn­vel á eld­hús­borði okkar kyn­slóðar í dag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Hjónabandsráðgjafinn Molly Mindel segir að kynlíf eftir rifrildi geti aukið nánd en komi ekki í stað samtals um það sem olli ágreiningnum.

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

„Nið­ur­lægj­andi að smækka fólk niður í tölur“

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Lyf í töflu­formi vekur vonir um hæg­ari fram­gang Alzheimers