Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Glúmur hefur valið sér forseta og hjólar í Bubba: „Stál og hnífur my arse!“

Glúmur Baldvinsson.
Glúmur Bald­vins­son.

Glúmur Bald­vins­son hjólar í Bubba Morthens í nýlegri Facebook-færslu. Í annarri færslu seg­ist hann vera búinn að ákveða hvern hann mun kjósa í dag til emb­ættis for­seta Íslands.

Alþjóða­stjórn­mála­fræð­ing­ur­inn Glúmur Bald­vins­son er síður en svo sáttur við Bubba Morthens, sem kvart­aði á dög­unum undan hót­unum og ljótum skila­boðum sem honum hefur borist eftir að hann lýsti yfir stuðn­ingi sínum við Katrínu Jak­obs­dóttur í for­seta­kosn­ing­unum. Glúmi finnst kvartið koma úr harðri átt en Bubbi var sjálfur dæmdur fyrir meið­yrði árið 2018.

„Bubbi er þekktur fyrir sín hjart­næmu ljóð og texta einsog Sumarið er tím­inn, Kona og Þessi fal­legi dagur og þessi fal­legi maður sem hann orti um mig. En svo á hann aðrar dekkri hliðar þar sem hann hraunar yfir fólk með ljót­ustu orðum sem íslensk tunga hefur uppá að bjóða sem ég vil ekki hafa hér eftir. Svo ljót orð hefur hann látið falla á sam­fé­lags­miðlum að hann hefur grætt fólk. Aðallega ungar konur.“

Þannig hefst færsla Glúms. Segir hann einnig að Bubbi sé hræsnari:

„Bubbi er tvö­faldur í roð­inu. Þykist hata valdið öðrum þræði en sleikir það upp hinum þræð­inum. Hann elskar ríkt fólk og valda­mikið einsog Jón Ásgeir og Katrínu Jak­obs­dóttur en þyk­ist samt syngja fyrir lít­il­magn­ann. Hann er sumsé hræsnari sem veiðir í dýr­ustu ám lands­ins á meðan hann þyk­ist berj­ast gegn valda­stétt­inni. Allt til að eiga fyrir salti í graut­inn. Og Range Rover. Bubbi er eins og Kata sem hann nú elskar svik­ari við mál­stað­inn. Öll prinsip fokin útí veður og vind líkt og öll stefnu­mál og prinsip Nató Kötu. Eftir standa þau nakin karl og kona sem völdu valdið fram yfir yfir­lýstar hug­sjónir. Svo Bubbi: Hættu að væla. Pönkið þitt er fyrir löngu dautt og þú bara einsog hinir að þjónka vald­inu. Aumk­un­ar­verð­ari verða örlögin ekki.

Stál og hnífur my arse!“

Í færslu sem Glúmur birti í gær­kvöldi seg­ist hann vera búinn að ákveða hvern hann kjósi í for­seta­kostn­ing­unum í dag:

„Jæja þá hefi ég gert upp hug minn. Ég kýs ekki Katrínu því hún er of nátengd vald­inu og fór fyrir og varði ein­hverja spillt­ustu rík­is­stjórn sem hér hefur setið frá upp­hafi. Ég kýs ekki Höllu Tóm­as­dóttur því hún er of tengd alþjóð­legu auð­valdi og skattsvik­urum sem fela auð sinn í skattaparadísum. Og gortar sig af því.Svo nið­ur­staðan er þessi: Ég kýs Höllu Hrund því hún er ein­læg og greind og teng­ist ekki íslenskri eða alþjóð­legri mafiu.Og fyrst og síð­ast kýs ég hana því hún orkar á mig sem góð mann­eskja. Um hana mun ríkja friður á meðal þjóð­ar­innar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Menning

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027