Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Vandaðri föt endast lengur

Guðný Ásberg hefur mik­inn áhuga á öllu tengdu tísku og förðun en inn­blástur sækir hún bæði frá Instagram og Pinter­est. Guðný seg­ist sjaldan stand­ast fal­lega skó en leið­in­leg­ast sé að máta sam­fest­inga og buxur sem þó séu skyldu­eign í alla fata­s­kápa.

„Ég elska að ferð­ast og njóta lífs­ins með fjöl­skyldu og vinum en ég hef einnig mjög gaman af tísku og förðun. Sjálf lærði ég förðun í Reykja­vík makeup school og útskrif­að­ist þaðan í apríl 2016.“

Aðspurð hvernig hún lýsir sínum per­sónu­lega stíl segir Guðný hann fyrst og fremst stíl­hreinan.

Dökkblár er fal­leg­asti fata­lit­ur­inn að mati Guðnýjar.

„Ég heill­ast mjög af tíma­lausum flíkum og vel oft­ast gæði umfram magn þar sem vand­aðri föt end­ast lengur. Stíllinn minn er oft­ast mjög stíl­hreinn en ég versla mikið erlendis. Ég elska að kíkja í second hand shops en ein af mínum eft­ir­læt­is­búðum er Wasteland í Los Angeles. Ég sæki sömu­leiðis inn­blástur mikið í götu­tísk­una ásamt því að kíkja reglu­lega á Instagram og Pinter­est.“

„…ein af mínum eft­ir­læt­is­búðum er Wasteland í Los Angeles.“

Þegar talið berst að furðu­leg­ustu kaup­unum nefnir Guðný stutt­buxur undir áhrifum diskó­tísk­unnar en skemmti­leg­ast sé að kaupa fal­lega skó.

Guðnýju þykir skemmti­leg­ast að versla sér skó.

„Þessa stund­ina dreymir mig um fal­lega kápu sem kæmi sér vel yfir kaldasta tím­ann. Ein­hverra hluta vegna fell ég alltaf fyrir loð­jökkum, ætli ein­hver slíkur verði ekki fyrir val­inu.“

„Upp­á­halds­flíkin mín er Allsaint-leð­ur­jakk­inn minn en hann fann ég á mark­aði úti LA. Lítið sem ekk­ert not­aður og í minni stærð. Góður leð­ur­jakki er eitt­hvað sem maður verður að eiga í fata­skápnum, það má segja að ég hafi fundið hinn full­komna leð­ur­jakka þarna, enda gæti ég ekki verið ánægð­ari með hann.“

Fullt nafn: Guðný Ásberg
Aldur: 22 ára
Fal­leg­asti fata­lit­ur­inn? Dökkblár
Besta lykt í heimi? Tom ford – Oud kwood
More is less eða Less is more? Klárlega less is more.
Þægindi eða útlit? Ég verð að segja hvoru­tveggja.
Áhugamál: Ferðast og njóta lífs­ins.

„Sú flík sem hefur hvað mesta til­finn­inga­lega gildið er þessi pels sem ég fékk í gjöf frá ömmu minni fyrir nokkrum árum. Hann er úr rauðrefi og var keyptur í Kaup­manna­höfn árið 1984 af afa mínum.“
„Gucci-taskan mín er ein af mínum uppa­haldstöskum, hún er svo klass­ísk.“

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Hjónabandsráðgjafinn Molly Mindel segir að kynlíf eftir rifrildi geti aukið nánd en komi ekki í stað samtals um það sem olli ágreiningnum.

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

„Nið­ur­lægj­andi að smækka fólk niður í tölur“

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Lyf í töflu­formi vekur vonir um hæg­ari fram­gang Alzheimers