Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Fornfræg leikföng með áhugaverða sögu

Mörg af þeim leik­föngum sem börn leika sér með í dag eiga sér langa og for­vitni­lega sögu.

Tuskudýrin frá Steiff

Árið 1880 stofn­aði þýska sauma­konan Marg­ar­ete Steiff sitt eigið fyr­ir­tæki sem bjó til tusku­dýr. Fyrst komu fílar og síðan bætt­ust við apar, gíraffar, svín, asnar og fleira. Fyrsti bangs­inn leit síðan dags­ins ljós árið 1903, en hann var fyrsti sinnar teg­undar með hreyf­an­legar fætur og hendur. Enn þann dag í dag eru klass­ísku bangs­arnir frá Steiff hand­saum­aðir og -fylltir en fyr­ir­tækið fram­leiðir einnig ódýr­ari bangsa í vélum.

Rubik-kubburinn

Erno Rubik fann upp Rubik-kubb­inn.

Arki­tekt­inn og pró­fess­or­inn Erno Rubik fann upp Rubik-kubb­inn fyrir ríf­lega 40 árum. Í dag hafa fleiri en 350 millj­ónir ein­taka selst um allan heim, en það gerir hann að einni mest seldu þraut allra tíma. Það eru yfir 43,252,003,274,489,856,000 ólíkar leiðir til að snúa kubbnum og fólk kepp­ist við að geta leyst þraut­ina á sem skemmstum tíma og með fæstum snún­ingum.

Viewmaster

Viewmaster var fyrst kynnt árið 1939.

Viewmaster var fyrst kynnt á markað á Heims­sýn­ing­unni í New York árið 1939. Tækið var hannað af Harold Graves til að gera fólki kleift að sjá myndir af frægum kenni­leitum borg­ar­innar í þrí­vídd. Síðan gerði fyr­ir­tækið sögu­frægan samn­ing við Disney og þá fór bolt­inn að rúlla. Þó svo að tækið sé enn til í ein­hverri mynd hafa vin­sældir þess dalað, það á þó heið­ur­inn af því að vera fyr­ir­renn­ari sýnd­ar­veru­leika­bún­aðar sam­tím­ans.

Lego

Lego-kub­b­arnir komu fyrst á markað í Danmörku árið 1958.

Lego er í dag stærsti leik­fanga­fram­leið­andi heims. Kub­b­arnir vin­sælu komu fyrst á markað í Danmörku árið 1958. Helsti kostur þeirra er hinn ótak­mark­aði fjöldi mögu­leika, börn geta búið til hvað svo sem þeim dettur í hug. Í dag fram­leiðir fyr­ir­tækið fjöl­margar ólíkar vöru­línur fyrir hina ýmsu ald­urs­hópa og áhuga­svið.

Jójóið

Jójóið á rætur sínar að rekja allt til Grikk­lands til forna. Vin­sældir þess hófust hins vegar ekki fyrr en á þriðja ára­tug síð­ustu aldar þegar Pedro Flores stofn­aði Yo-yo Manufacturing Company í Kali­forníu. Jójó er afar ein­falt leik­fang sem sam­anstendur af tveimur diskum með litlum öxli á milli sem í er fast band. Flores fann upp nýja leið til að festa bandið við öxul­inn þannig að hægt var að gera meira en að láta jójóið ferð­ast upp og niður eftir band­inu – til dæmis alls kyns brellur. Árið 1932 var fyrsta jójó-keppnin haldin og þær eru enn haldnar í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.
Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Hjónabandsráðgjafinn Molly Mindel segir að kynlíf eftir rifrildi geti aukið nánd en komi ekki í stað samtals um það sem olli ágreiningnum.

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

„Nið­ur­lægj­andi að smækka fólk niður í tölur“

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Lyf í töflu­formi vekur vonir um hæg­ari fram­gang Alzheimers