Eldur braust út á efri hæð húss í Garði í nótt. Einn íbúi var á efri hæðinni. Hann komst út af sjálfsdáðum. ómeiddur, áður en slökkvilið kom á staðinn. Ármann Árnason, varðstjóri hjá Brunavörnum Suðurnesja, segir einn íbúa hafa verið á efri hæðinni en honum hefði tekist að koma sér út áður en slökkvilið kom á vettvang. Slökkviliðsmenn rufu þakið til þess að ráða niðurlögum eldsins. RÚV sagði frá. Slökkviliðsmaður meiddist þegar hann féll af þakinu. Hann var í öryggislínu sem bjargaði honum frá því að falla til jarðar. Hann fann til í hálsi og baki eftir fallið.
Á neðri hæð hússins er gistiheimili en það var mannlaust. Slökkvistarfi lauk klukkan um sex í morgun. Húsið er stórskemmt og Ármann gat ekki sagt til um tildrög eldsins og segir þau til rannsóknar hjá lögreglu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir