Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Stórfurðuleg uppákoma í bílakjallara vakti athygli lögreglu

Lögreglumaður að störfum
Lög­reglu­maður að störfum Mynd: Víkingur

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafði í nógu að snú­ast í nótt og í gær­kvöldi vegna fjöl­breyttra verk­efna, þar á meðal slags­mála, inn­brota, fíkni­efna­akst­urs og elds í bif­reið.

Tilkynnt var um þrjá ein­stak­linga í slags­málum á bens­ín­stöð og hélt lög­regla þegar á vett­vang. Málið er nú til rann­sóknar. Þá barst einnig til­kynn­ing um slags­mál milli ung­menna og er það mál sömu­leiðis til rann­sóknar hjá lög­reglu.

Lögreglu var einnig til­kynnt um inn­brot og þjófnað í fyr­ir­tæki. Þeir sem grun­aðir eru um verkn­að­inn voru farnir af vett­vangi þegar lög­reglu bar að garði og er málið í rann­sókn. Í öðru til­viki var til­kynnt um inn­brot í bíl­skúr. Þar tókst lög­reglu að hafa hendur í hári hins grun­aða skammt frá vett­vangi. Hann var hand­tek­inn og vistaður í fanga­klefa vegna rann­sóknar máls­ins.

Nokkur mál tengd­ust umferð­inni. Þrír öku­menn voru hand­teknir vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkni­efna. Einn þeirra var jafn­framt sviptur öku­rétt­indum. Öku­menn­irnir voru látnir lausir að lok­inni blóð­sýna­töku.

Óvenju­legt mál kom einnig upp í bíla­kjall­ara þar sem til­kynnt var um mann í bif­reið sem þótti sýna af sér aðfinnslu­vert hátta­lag. Maðurinn, sem var með lambús­hettu á höfði, var sagður vera að prófa ein­hvers konar sírenur. Þegar lög­regla kom á vett­vang reynd­ist hann vera í ann­ar­legu ástandi og með bæði gjall­ar­horn og sírenur á bif­reið sinni. Honum var gert að taka bún­að­inn niður, sem hann gerði, áður en hann yfir­gaf vett­vang.

Þá kom lög­regla ásamt slökkvi­liði að bif­reið sem var alelda. Slökkvi­lið náði að ráða nið­ur­lögum elds­ins og rann­sakar lög­regla elds­upp­tök.

Loks var lög­reglu til­kynnt um sam­kvæm­is­há­vaða í heima­húsi og var hús­ráð­andi beð­inn um að lækka. Einnig var til­kynnt um hóp full­orð­inna ein­stak­linga sem tók fram rusla­tunnur, rót­aði í þeim og skildi þær eftir. Lögregla ræddi við fólkið á vett­vangi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Býður Trump að nefna heil­brigð­is­kerfi eftir sér

Abdul El-Sayed segist tilbúinn að láta forsetann fá heiðurinn af opinberu heilbrigðiskerfi, styðji hann að allir Bandaríkjamenn fái aðgang að þjónustu.
Heimur

Robert Patt­in­son næsti James Bond

Pólitík

Segir Hildi Björns­dóttur beita tvö­földum mæli­kvarða á fjár­mál borg­ar­innar

Heimur

Brand óskaði eftir auka­teppi og sér­sjampói í fang­els­inu

Pólitík

Sig­mundur sak­aði rík­is­stjórn­ina um „dára­skap“ og Kristrún svar­aði fullum hálsi

Innlent

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn

Nefnd um eftirlit með lögreglu hafði ákveðið að aðhafast ekki frekar.
Innlent

Lög­reglan fylgd­ist með ung­linga­drykkju á söng­keppni Verzló

Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir

Innlent

VÍS vildi kenna slös­uðum starfs­manni um en tap­aði fyrir dómi

Innlent

Íslend­ingar flykkj­ast á bóka­söfnin sem aldrei fyrr

Innlent

Verð­munur á bök­un­ar­vörum nær 66 pró­sentum milli versl­ana