Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Blésu upp blöðrur í heila viku

Braga er skemmt við að rifja upp þessa klikkuðu jólaminningu.
Braga er skemmt við að rifja upp þessa klikk­uðu jóla­minn­ingu.

Það kemur ekki á óvart að Bragi Valdimar Skúlason, Baggalútur og Kapp­máls­stjóri með meiru, skuli nefna atvik tengt jólatón­leikum hljóm­sveit­ar­innar Baggalúts þegar hann er beð­inn að rifja upp sína klikk­uð­ustu jóla­minn­ingu. Tón­leik­arnir hafa lagt undir sig meiri­hlut­ann af des­em­ber hjá Braga Valdimar mörg und­an­farin ár og ýmis­legt klikkað gerst, en ekk­ert þó jafn klikkað og að flytja sér­stak­lega inn þrjá blöðru­lista­menn frá Japan til að hressa upp á leik­mynd­ina, segir hann.

„Klikk­að­asta jóla­minn­ingin er án efa þegar við Baggalútar ákváðum að hressa örlítið upp á sviðs­mynd­ina fyrir jólatón­leik­ana okkar eitt árið,“ segir Bragi Valdimar án þess að þurfa að hugsa sig um.

„Til að auð­velda okkur verkið fluttum við til lands­ins þrjá afskap­lega hæfi­leik­a­ríka jap­anska blöðru­lista­menn, alla leið frá Tókýó. Sátu þeir við í heila viku og blésu upp sér­hann­aðar blöðrur í hund­ruða­tali, sem þeir fluttu með sér í gríð­ar­stórum ferða­koff­ortum. Þeir hættu ekki blæstr­inum fyrr en sviðið var full­skreytt glæsi­legum risa­vöxnum blöðrutrjám, auk þess sem heill jóla­blöðru­veggur hafði risið fyrir aftan hljóð­færin.“

„Af hverju við gerðum þetta vitum við varla sjálfir.“

Spurður hvað þeim Baggalútum hafi gengið til með þessu upp­á­tæki verður fátt um svör hjá Braga Valdimar.

„Af hverju við gerðum þetta vitum við varla sjálfir,“ segir hann og hlær. „Og hvað blöðru­lista­menn­irnir héldu um þetta fram­tak þess­ara íslensku jóla­sveina verður seint vitað. En það var vel þess virði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

„Þú getur treyst barninu sem þú varst. Jesús gerir það“
Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Eftir að hafa greinst með heilaæxli fyrir fjórum árum lýsir Karl Ágúst þakklæti fyrir að verk hans séu nú aftur á sviði.

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

„Nið­ur­lægj­andi að smækka fólk niður í tölur“

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu