Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Lífsreynslusagan: „Þegar hann fór að leggja á mig hendur sagði ég hingað og ekki lengra“

Þegar þessi saga gerð­ist, var ég á miðjum aldri.

Ég var mjög brotin eftir skilnað og var að ná áttum með alltof mikið á mínum herðum.

Ég á tvö börn sem voru á mínu fram­færi, en við skilnað var það sam­komu­lag okkar hjóna að hann borg­aði ekki með­lag með börn­unum.

Ég var vel efnuð kona á þessum tíma átti lúxus­í­búð á besta stað bæj­ar­ins, einnig átti ég aðra íbúð fyrir starfs­fólk mitt.

Ég rak tvö fyr­ir­tæki á þessum tíma. Allir sáu, sem mig þekktu að ég var þreytu­leg og við það að bug­ast.

Eitt vetr­ar­kvöld þegar ég sat ein heima, komu vin­konur til mín og vildu fá mig með út á lifið. Ég sló til. Við fórum á vin­sælan skemmti­stað í mið­borg­inni. Ekki vorum við búnar að vera lengi þar inni, þegar mjög huggu­legur maður kemur til að bjóða mér upp í dans. Eftir dansin sett­ist hann hjá okkur, við spjöll­uðum og döns­uðum allt kvöldið. Ég gaf honum síma­númer mitt, síðan kvödd­umst við. Ég fór til vinnu dag­inn eftir og var ekki búin að vinna fyrr enn seint um kvöldið. Þegar heim kom beið hann fyrir utan. Ég bauð honum inn og við spjöll­uðum fram­eftir. Svona hélt þetta áfram í nokkuð langan tíma.

Ég var orðin ást­fangin, hann líka að eigin sögn. Hann átti góða íbúð og flott­ann blæju­bíl. Hann fór að vera meira heima hjá mér. Eitt skipti er ég kom heim eftir vinnu var nafnið hans komið á mína bjöllu og það efst. Viðvörun. Allt gekk þetta vel í byrjun og á end­anum giftum við okkur. Ég gerði kaup­mála sem var þing­lýst um að þetta væri mín sér­eign.

Eftir gift­ingu seldi ég íbúð­ina, við keyptum okkur ein­bíl­is­hús. Hann var dug­legur að laga húsið sem hann átti ekk­ert í, sagði hann. Á end­anum rifti ég mínum kaup­mála.

Fljót­lega eftir það fór hann að ráðskast með allt. Þegar hann kom inn í mitt bú átti hann ekk­ert, var í félags­í­búð og sport­ar­inn allur í skuld. Ég hafði náð mér í ómerki­legan poka­kall!

Enginn mátti tala við mig, ekki einu sinni fjöl­skyldan, allir voru að spilla mér sagði hann. Þegar hann fór að leggja á mig hendur sagði ég hingað og ekki lengra. Ég vil skilnað.

Það var akkúrat það galdra­orð sem hann var að bíða eftir.

Allt það sem ég átti fyrir átti hann nú helm­ing í við skilnað. Ég vildi ekki gef­ast upp og réði mér lög­fræð­ing. Skiln­að­ur­inn okkar tók fjögur ár og fór fyrir Hæsta­rétt á end­anum. Þegar upp var staðið eftir allan þann tíma tóku lög­fræð­ingar og skipta­stjóri nán­ast allt það sem ég átti.

Ég vil segja þessa sögu öðrum konum og já körlum líka. Að ástin getur verið blind. Poka­kall­inn minn fékk þó minna en hann hefur ætlað sér.

ÞAð ER ÉG SÁTT VIÐ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Menning

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027