Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Völvan 2022: Kynlífsskandall, Sigmundur hugsar hlutina upp á nýtt og Inga Sæland lyftir grettistaki

Völvu­blað Mannlífs er komið út. Til þess að lesa spá völv­unnar um kom­andi ár í heild sinni er hægt að nálg­ast blaðið hér.

Stjórnarandstaða

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son mun þurfa að huga vel að heils­unni á kom­andi ári. Hann þarf að gefa and­legu hlið­inni gaum og átta sig á því hvað það er sem lætur honum líða vel og hvað sýgur úr honum ork­una og veldur tjóni. Hann er í eðli sínu við­kvæmur á sál­inni en hefur alltaf skamm­ast sín fyrir það og reynt að fela það. Hann þarf að skilja að það er ekki veik­leiki – heldur hefur það sínar björtu hliðar, gerir hann næman og ljúfan.

Sig­mundur verður að fara betur með sig og læra að þykja vænt um sjálfan sig. Stjórn­málin fara í raun­inni alls ekki vel í hann og hann er far­inn að finna það. Á kom­andi ári fer hann að velta því fyrir sér hvort hann þurfi að hugsa hlut­ina upp á nýtt – hvort hann sé á réttum stað. Þessu getur eng­inn svarað nema hann sjálfur, en ég ráð­legg honum að þiggja ráð frá því fólki sem hefur reynst honum best og hann treystir. Þetta geta verið nánir vinir eða fjöl­skyldu­með­limir – fólk sem hefur hingað til veitt honum skil­yrð­is­lausa ást og skiln­ing.

Inga Sæland er að sigla inn í þýð­ing­ar­mikið ár. Það er eitt­hvað mikið umbreyt­ing­ar­afl í kringum hana sem mun bylta sjálfs­mynd hennar og til­finn­inga­lífi. Hún verður á nýjum slóðum – öðrum en við höfum áður séð hana á – og hún mun koma á óvart. Það er innri bylt­ing að fara af stað hjá henni sem mun verða til þess að hún mun hafa miklu minni þol­in­mæði fyrir öllu sem er á gráa svæð­inu. Inga mun öðl­ast mun meiri innri kraft og afl. Hún mun hugsa hlut­ina meira í svörtu og hvítu. Hún mun í kjöl­farið lyfta grettistaki og koma af stað málum sem eru nærri hjarta hennar. Hún verður mikil rétt­læt­is­bar­áttu­kona á þessum sviðum.

Fólk hefur oft ekki tekið Ingu Sæland nægi­lega alvar­lega og nú mun koma í ljós að það voru sann­ar­lega mis­tök. Innan þing­heims mun fólk byrja að líta á hana sem verð­ugan and­stæð­ing og hún mun vinna sér inn sinn sess. Þessi orka sem mun umlykja hana er nauð­syn­leg til þess að knýja mál áfram.

Andrés Ingi Jónsson er rísandi stjarna innan raða Pírata. Hann mun gera góða hluti á þing­inu á árinu og vera áber­andi. Hann mun upp­lifa sig á réttum stað í flokknum og verður vin­sæll. Andrés Ingi mun láta til sín taka í rétt­læt­is­málum – enda mjög sam­fé­lags­lega þenkj­andi.

Kristrún Frosta­dóttir verður ótrú­lega beitt á þing­inu og mun leiða mjög öfl­uga stjórn­ar­and­stöðu. Hún mun ögra þeim sem hafa haft tögl og hagldir í fjár­mála­um­ræðum á þing­inu og gefa lýðnum ferska sýn á stöðu mála. Hart verður vegið að hennar per­sónu á kom­andi þingári, enda virð­ist mörgum ógnað af risi hennar og veru í þing­inu. 

Skandall

Í sumar verður ein­hvers konar kyn­lífsskandall hjá æðstu emb­ætt­is­mönnum þjóð­ar­innar. Þetta verður orðrómur á sveimi sem verður æ hávær­ari. Að lokum er orðróm­ur­inn stað­festur – hugs­an­lega er ein­hver sem lekur upp­lýs­ingum, ein­hver sem var á staðnum. Við fáum nýja sýn á þetta fólk og sjáum að það er margt sem ger­ist bak við luktar dyr. Þetta er ein hliðin á frjáls­ræði og tryll­ingi kom­andi sum­ars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

„Ég var orðinn kynlífsfíkill“
Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu