Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

„Ég hef alltaf hugsað lífið sem tískusýningu“

Fata­hönnuðurinn Tinna Rún greinir væntanlega haust og vetrar­tísku

Tinna Rún Jónasdóttir
Tinna Rún Jón­as­dóttir Er fyr­ir­sæta og fata­hönn­uður Mynd: Norly Macan

Fata­hönnuðurinn Tinna Rún Jónasdóttir telur að feldir, áberandi yfir­hafnir og persónu­legur klæða­burður verði áberandi í tískunni hér á landi í haust og vetur en Mannlíf hafði samband við hana til að spyrja hana út í tísku næstu mánuða.

Hún segir jafnframt að einfaldari og svokallaður „basic“ klæða­burður kunni að vera á undan­haldi.

Tinna segir feldinn vera að sækja verulega í sig veðrið og telur að hann muni sjást í ýmsum myndum á næstu mánuðum, meðal annars í yfir­höfnum, húfum og töskum.

„Allir eru að prófa sig áfram í eigin tísku og ég er að fíla það. Tískan er orðin miklu meira persónulegri núna,“ segir Tinna.

Hún telur að þegar kólna taki í veðri verði yfir­hafnir mikilvæg leið fyrir fólk til að tjá persónu­legan stíl sinn. Í stað hefð­bundinna og látlausra úlpa eigi skemmtilegar og áberandi yfir­hafnir eftir að verða meira áberandi.

„Ég hef alltaf hugsað lífið sem tísku­sýningu. Það þarf aldrei að vera neitt tilefni til þess að klæða sig upp eða vera í fínum og flottum flíkum,“ segir hún.

Vill sjá meiri lit og áræðni

Tinna telur að svokallaður „basic“ stíll sé að einhverju leyti á útleið. Hún segir þó nauðsynlegt að eiga einfaldar grunn­flíkur en hvetur fólk til að para þær saman við meira áberandi fatnað.

Hún segist sérstak­lega vilja sjá meiri lit í íslenskri vetrar­tísku.

„Ég vil sjá meira af litríkum flíkum, helst bara allan regn­bogann. Það væri svo æðislegt í þessum blessaða kulda og allri þessari dimmu,“ segir Tinna.

Að hennar mati mætti fólk jafnframt taka meiri áhættu í klæða­burði. Flíkur og fylgi­hlutir þurfi ekki alltaf að passa saman með hefð­bundnum hætti og óvæntar samsetningar geti gefið klæðnaðinum meiri karakter.

Notaðar flíkur í uppáhaldi

Endur­nýting skipar stóran sess í sýn Tinnu á tísku og endur­speglast það í fata­hönnun hennar hjá LÖKKŸ. Þar leggur hún áherslu á að nýta eldri og notaðar flíkur og umbreyta þeim í einstök eintök.

Sjálf segist hún helst versla í Góða hirðinum og verslunum Rauða krossins.

„Það er svo miklu skemmtilegra að labba inn í búð og þú veist ekkert hvað bíður þín. Það er hægt að finna svo áhuga­verða og skrýtna hluti þar,“ segir hún.

Tinna segist nú kaupa tiltölu­lega lítið af fötum enda eigi hún mikið fyrir. Þegar hún kaupi sér fatnað verði notaðar flíkur þó oftast fyrir valinu. Það sem heilli við slíkan fatnað sé meðal annars mögu­leikinn á að breyta flíkunum og gefa þeim nýtt líf.

„Tíska fyrir mér snýst ekkert endilega um það nýjasta heldur frekar að finna skapandi leiðir til þess að segja hver maður er án þess að segja neitt,“ segir Tinna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.
Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

„Lífið er svo miklu betra með þér“

„Niður­lægjandi að smækka fólk niður í tölur“

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Af hverju getur lyktin af makanum verið svona ómótstæðileg?

Vigtuð vikulega og sett á matarplan aðeins tíu ára gömul