Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Ragna og Nanna vilja skoða skyldu mæðra til að taka orlof strax eftir fæðingu

„En það er auð­vitað þannig að það eru hópar sem lenda á milli skips og bryggju.“

Fæðingarorlofskerfið
Fæð­ing­ar­or­lofs­kerfið Ragna Sig­urð­ar­dóttir, Ragnar Þór Ing­ólfs­son og Nanna Margrét Gunn­laugs­dóttir eru meðal þeirra sem fjöll­uðu um fæð­ing­ar­or­lof á Alþingi. Mynd: Samsett / Víkingur / Alþingi

Ragnar Þór Ing­ólfs­son félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra hyggst skipa starfs­hóp til að skoða breyt­ingar á fæð­ing­ar­or­lofs­kerf­inu. Meðal þess sem hóp­ur­inn mun kanna er staða for­eldra sem eign­ast börn fyrir tím­ann eða með stuttu milli­bili. Þetta kom fram í svari ráð­herra við fyr­ir­spurn Rögnu Sig­urð­ar­dóttur, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, á Alþingi í gær.

Ragna spurði hvernig feður hefðu nýtt fæð­ing­ar­or­lof sitt frá því að þeir fengu sjálf­stæðan rétt til þess og hvað mætti gera til að auð­velda þeim að nýta rétt­inn að fullu. Hún rifj­aði upp að áður hefðu feður þurft sam­þykki móður til að taka hluta af orlofi hennar. „Þegar ég fædd­ist var eng­inn lög­festur sjálf­stæður réttur feðra til fæð­ing­ar­or­lofs,“ sagði Ragna.

Ragnar Þór vís­aði í svari sínu til talna Vinnu­mála­stofn­unar. Feður tóku að með­al­tali 91 dag í orlof árið 2019, 115 daga árið 2020 og 131 dag árið 2021. „Frá árinu 2021 hefur með­al­nýt­ing feðra hald­ist nokkuð stöðug, eða 130 dagar,“ sagði hann. Ráðherra sagði jafn­framt að sú fyr­ir­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar að tryggja tekju­lægri for­eldrum óskert laun í fæð­ing­ar­or­lofi gæti orðið til þess að fleiri feður nýttu rétt sinn.

Deildu um skiptingu orlofsins

Snorri Másson, þing­maður Mið­flokks­ins, vildi gefa for­eldrum meira svig­rúm til að skipta orlof­inu á milli sín. Hann taldi að fæstir gætu nýtt alla tólf mán­uð­ina eins og kerfið væri úr garði gert. „Þetta reikn­ings­dæmi og þessi skipt­ing sem stjórn­völd hafa ákveðið fyrir for­eldra gengur illa upp fyrir mjög marga for­eldra,“ sagði Snorri.

Nanna Margrét Gunn­laugs­dóttir, þing­maður Mið­flokks­ins, taldi fyr­ir­komu­lagið bitna sér­stak­lega á mæðrum. „Til að mynda eru mæður skyld­aðar til að taka tvær vikur í orlof eftir fæð­ingu þannig að þær eru komnar með í raun og veru minni rétt en feð­urnir,“ sagði hún og hvatti ráð­herra til að skoða regl­una við end­ur­skoðun kerf­is­ins.

Jón Pétur Zimsen, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, tengdi umræð­una við lækk­andi fæð­ing­ar­tíðni og lagði áherslu á fyrstu þús­und dag­ana í lífi barns. „Þarna er lagður grunnur að mál­þroska, félags­færni, til­finn­inga­stjórnun og tengslum almennt,“ sagði hann.

Í síð­ari ræðu sinni mót­mælti Ragna full­yrð­ingu Snorra um að fæstir gætu full­nýtt orlofið. „Nýting daga, með­al­fjöldi daga sem nýttir eru, er í takt við þennan ófram­selj­an­lega rétt til að mynda hjá feðrum en vissu­lega líka hjá mæðrum,“ sagði hún. Ragna tók hins vegar undir athuga­semd Nönnu Mar­grétar um fyrstu tvær vik­urnar. Hún nefndi sem dæmi móður sem starf­aði við kennslu og eign­að­ist barn í miðju sum­ar­fríi. Við núver­andi fyr­ir­komu­lag þyrfti hún að hefja töku fæð­ing­ar­or­lofs strax þótt hún vildi ljúka sum­ar­frí­inu fyrst.

Í lok umræð­unnar sagði Ragnar Þór að starfs­hóp­ur­inn myndi meðal ann­ars skoða stöðu for­eldra sem dreifðu orlof­inu og eign­uð­ust svo annað barn með stuttu milli­bili. „En það er auð­vitað þannig að það eru hópar sem lenda á milli skips og bryggju og þess vegna þurfum við sífellt að end­ur­skoða kerfin okkar,“ sagði ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

„Ég á betra skilið, allir innflytjendur eiga betra skilið og allir Íslendingar eiga betra skilið en þetta.“
  • Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

  • Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda

  • Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

  • „Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

  • Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi