Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Fólk

Selja ein­býli með turn­stofu og verð­launa­garði

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Fólk

Ragnar Bragason birti mynd­band af dul­ar­fullum ljósum yfir Sunda­höfn

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Svara ekki fyrirspurnum um Ísrael: „Stríðsátök hafa fært ólýsanlegar hörmungar yfir mannkynið“

Vanda Sigurgeirsdóttir er formaður KSÍ
Vanda Sig­ur­geirs­dóttir er for­maður KSÍ

Knatt­spyrnu­sam­band Íslands hefur ekki svarað ítrek­uðum fyr­ir­spurnum Mannlífs um leik A-lands­liðs karla við Ísrael.

Þann 23. nóv­em­ber dróst lands­lið Íslands gegn Ísrael í umspili um sæti í Evr­ópu­meist­ara­mót­inu sem fer fram næsta sumar og er leik­ur­inn skráður sem heima­leikur Ísrael en nokkuð ólík­legt þykir að hann fari fram þar í landi vegna stríðs­á­taka á Gaza. Áætlað er að leik­ur­inn fari fram 21. mars á næsta ári.

Mannlíf sendi Klöru Bjartmarz, fram­kvæmda­stjóra KSÍ, fyr­ir­spurn um hvort að Ísland muni neita að spila við Ísrael í ljósi afstöðu sam­bands­ins gegn Rúss­landi en í fyrra sendi KSÍ frá sér yfir­lýs­ingu þess eðlis að ekk­ert lands­lið frá Íslandi muni spila við Rússland fyrr en inn­rás þeirra í Úkraínu lýkur. Mannlíf spurði einnig hver afstaða KSÍ væri til ástands­ins á Gaza. 

„Stríðs­á­tök hafa fært ólýs­an­legar hörm­ungar yfir mann­kynið í gegnum sög­una og nú hafa rúss­nesk yfir­völd, með stuðn­ingi Hvít-rúss­neskra yfir­valda fært slíkar hörm­ungar yfir Úkraínu.

Stjórn KSÍ hefur ákveðið að ekk­ert íslenskt knatt­spyrnu­lands­lið muni leika við lands­lið frá Rúss­landi meðan á hern­aði Rússa stendur,“ segir meðal ann­ars í yfir­lýs­ingu KSÍ frá því í fyrra en erfitt er að sjá hvernig hægt sé að rétt­læta að spila við Ísrael en ekki Rússland meðan ástandið helst óbreytt.

Þó hefur Vanda Sig­ur­geirs­dóttir velt fyrir sér hvort blanda eigi íþróttum saman við hluti sem eru að ger­ast í umheim­inum og rétt­lætti þannig æfinga­leik Ísland við Sádi-Arabíu í fyrra.

„Þetta er líka svo­lítið flókið; hvort íþróttir og póli­tík eigi leið saman. Hvaða lönd megum við þá spila við og hver ekki? Við höfum sagt að í stað þess að snið­ganga sé betra að ná sam­tali, leiða fólk saman og fá breyt­ingar þannig. Nota íþrótt­irnar sem tæki til félags­legra breyt­inga.

Við heyrðum í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu á sínum tíma til að vita hvort að þar væri talið að eitt­hvað mælti gegn því að við spil­uðum þennan leik. Svo var ekki. Við höfum því frekar viljað fara þessa leið. Taka sam­talið og reyna að nota fót­bolt­ann til breyt­inga til góðs,“ sagði Vanda við Vísi um leik­inn við Sádi-Arabíu og tekið skal fram að Vanda sagði þetta aðeins nokkrum mán­uðum eftir að ákveðið var að spila ekki við Rússa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Leki varpar ljósi á við­skipti Deutsche Bank við Epstein

Upphæðin er meira en tvöfalt hærri en áður hafði komið fram í rannsókn bandarísks öldungadeildarþingmanns. Skjölin ná einnig til skattagagna Trumps.
Innlent

Tinna vill kenna börnum að láta sér leið­ast

Heimur

Banda­ríkin missa stöðu sína sem land án misl­inga

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

Innlent

Eigna­spjöll til rann­sóknar í Reykja­vík og Garðabæ

Lögregla rannsakar einnig tilkynningu um líkamsárás í miðborginni.
Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti