Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Páll Vilhjálmsson ásakar Sigríði Dögg um að hafa vantalið 100 milljónir til skatts

Páll hefur gefið út nýja bloggfærslu um útleigu Sigríðar Daggar. Myndin er samsett
Páll hefur gefið út nýja blogg­færslu um útleigu Sigríðar Daggar. Myndin er sam­sett

Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, frétta­maður á Rík­is­út­varp­inu og for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands fær lít­inn sem engan slaka frá Mogga­blogg­ar­anum og fram­halds­skóla­kenn­ar­anum Páli Vil­hjálms­syni.

Páll hefur gefið út nýja blogg­færslu undir fyr­ir­sögn­inni „Sigríður Dögg: um 100 m. kr. leigu­tekjur“. Í færsl­unni gefur Mogga­blogg­ar­inn og fram­halds­skóla­kenn­ar­inn upp heim­ils­fang fast­eign­ar­innar sem Sigríður ku eiga, hversu margar íbúðir um ræðir auk her­berg­is­fjölda þeirra og svefn­pláss. Hann bætir því næst við:

„Starf­semin á Suð­ur­götu líkt­ist meira gisti­heim­ila­rekstri en íbúða­leigu.“

Páll segir Sigríði Dögg Auð­uns­dóttur hafa játað skatt­svik í færslu á Facebook sem hún skrif­aði sem mótsvar við ásök­unum. Hér má sjá færslu Sigríðar:

Full­yrðir Páll að Sigríður sjálf hafi verið skráð fyrir íbúð­unum en ekki eig­in­maður hennar. Þá virð­ist sem Páll liggi á gögnum, sem hann leyfir sér að nýta til að fabúlera um upp­hæðir leigu­tekn­anna sem Sigríður hefur fengið af útleig­unni:

„Leigu­tekjur Sigríðar Daggar má áætla að hafi verið um 4 millj­ónir kr. á mán­uði, 40 til 50 millj­ónir kr. á ári. Starf­semin var ólög­leg og ekk­ert var gefið upp til skatts.“

Að end­ingu segir Páll að; upp hafi kom­ist um málið 2021 og að meint skattaunda­skot hafa verið vegna tekju­ár­anna 2015-2018 og skrifar:

„Hafi Sigríður Dögg verið með íbúð­irnar á Suð­ur­götu í svartri útleigu öll fjögur árin vantaldi hún til skatts fjár­hæð er nemur um eða yfir 100 millj­ónir króna.“

Engin svör borist frá Sigríði

Mannlíf sagði frá að Sigríður Dögg hefur ekki svarað spurn­ingum mið­ils­ins um meint skatta­laga­brot, þrátt fyrir ítrek­anir. Hér má sjá spurn­ing­arnar:

1. Kannast þú og /eða eig­in­maður þinn við að hafa leigt út íbúðir á air­bnb?
2. Voru tekjur af leig­unni ekki gefnar upp til skatts upp­haf­lega? Eru ásak­anir um slíkt rangar?
3. Er rétt að þú/þið hafið gert sátt við skatta­yf­ir­völd um að greiða skatt af inn­kom­unni og 25 pró­senta álag.
4. Er rétt að einka­hluta­fé­lag ykkar, Miðlun, hafi í fram­hald­inu tekið yfir þann rekstur sem snýr að útleig­unni.
5. Ef rétt er hermt með sátt­ina: Telur þú að í þessu felist brot af þinni hálfu sem þú þurfir að axla af ábyrgð? Ef svo. Hvernig munt þú bregð­ast við?
Hefur þú gert stjórn Blaða­manna­fé­lags­ins og yfir­stjórn Rík­is­út­varps­ins grein fyrir þessu máli?


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar