Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

„Hefst þá einhvers konar tæling“

Í árs­byrjun sendu íþrótta­konur frá sér yfir­lýs­ingu í tengslum við metoo-bylt­ing­una undir yfir­skrift­inni Jöfnum leik­inn. Undir yfir­lýs­ing­una skrif­uðu 462 núver­andi og fyrr­ver­andi íþrótta­konur sem bætt­ust þar með í hóp þús­unda íslenskra kvenna úr hinum ýmsu starfs­stéttum sem hafa sagt stopp við kyn­bundnu ofbeldi, áreitni og mis­munun. Hafdís Inga Hin­riks­dóttir, fyrrum lands­liðs­kona í hand­bolta, er ein af for­sprökkum hóps­ins. Hún hefur unnið mikið með þolendum ofbeldis í starfi sínum sem félags­ráð­gjafi auk þess sem hún á sjálf afar erf­iða lífs­reynslu að baki.

Eins og svo margar konur á Hafdís Inga fleiri en eina sögu af kyn­ferð­is­legri áreitni og ofbeldi en ein er sýnu alvar­legri.

„Ég var sextán ára í bænum að skemmta mér. Ég var auð­vitað frekar ung til að vera þar en þetta tíðk­að­ist alveg á þessum tíma. Hand­boltaliðið mitt hafði farið saman að skemmta sér. Ég var þó lítið fyrir áfengi og drakk aldrei mikið.“

Hafdís Inga varð við­skila við liðs­fé­laga sína og end­aði ein í bænum. Þá hitti hún félaga sinn úr Hafn­ar­firði og slóst í för með honum og vinum hans. Þau röltu upp Lauga­veg­inn og end­uðu í heimapar­tíi. „Í partí­inu var einnig lands­liðs­maður sem spil­aði sömu stöðu og ég. Hann var níu árum eldri og ég vissi alveg hver hann var. Á þessum tíma vorum við með gott lands­lið sem gekk vel á stór­mótum og lands­liðs­menn­irnir voru hetjur þjóð­ar­innar.

Ég sat á sóf­anum og var svo­lítið feimin í þessum aðstæðum, en mér leið ekki illa. Næsta sem ég veit hefst ein­hvers konar tæl­ing. Hann byrj­aði að tala við mig og ég man að hann spurði mig upp úr þurru hvort ég væri á pill­unni,“ segir Hafdís Inga og bætir við í kald­hæðni, „svona eins og maður gerir.“

Ítarlegt við­tal við Hafdísi er í 10. tbl. Vikunnar. 

Myndir / Hákon Davíð Björns­son
Förðun / Björg Alfreðs­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.
Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Hjónabandsráðgjafinn Molly Mindel segir að kynlíf eftir rifrildi geti aukið nánd en komi ekki í stað samtals um það sem olli ágreiningnum.

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

„Nið­ur­lægj­andi að smækka fólk niður í tölur“

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Lyf í töflu­formi vekur vonir um hæg­ari fram­gang Alzheimers