Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Páll heldur áfram með geðveikina: Gefur til kynna að allir starfsmenn RÚV þurfi hópmeðferð

Páll Vilhjálmsson er afar umdeildur bloggari
Páll Vil­hjálms­son er afar umdeildur blogg­ari

„RÚV þegir um þessar nýj­ustu vend­ingar í Namib­íu­mál­inu. Senni­lega pant­aði Efsta­leiti hóp­með­ferð á geð­deild,“ skrifar Páll Vil­hjálms­son, kenn­ari við Fjöl­braut í Garðabæ, á blogg­síðu sína, sama dag og skóla­meist­ari hans, Kristinn Þor­steins­son, snuprar hann fyrir for­dóma gagn­vart geð­sjúkum. Tiltal skóla­meistar til kenn­ar­ans kom í fram­haldi af rætnum ummælum Páls um Helga Seljan frétta­mann sem Páll taldi óhæfan til að gegna starfi frétta­manns vegna þess að hann hafði glímt við þung­lyndi.

Páll er hvergi keikur og gefur ekk­ert fyrir ákúrur skóla­meist­ar­ans en heldur áfram að velta sér upp úr mögu­legri geð­veiki starfs­manna Rík­is­út­varps­ins. Nú er það í sam­hengi við það að Sam­herj­a­menn verði ekki ákærðir í Namibíu, hvorki sem ein­stak­lingar né lög­að­ilar, í tengslum við mútu­málið.

„Samkvæmt namibískum fjöl­miðli, Namibian, verða aðeins namibískir aðilar ákærðir. Sam­starfs­fjöl­mið­ill RÚV, Kjarninn, við­ur­kennir ósig­ur­inn með yfir­lýs­ingu: Í ákæru­skjali sem Kjarn­inn hefur undir höndum má sjá að á meðal ákærðra ein­stak­linga og félaga í mál­inu eru ekki Íslend­ing­arnir þrír sem Martha Imalwa, rík­is­sak­sókn­ari Namib­íu, hefur sagt að hún ætli sér að ákæra, né heldur namibísku félögin sem þeir stýrðu fyrir hönd Sam­herja,“ skrifar Páll.

HAnn segir að RÚV hafi böðl­ast á Samherja í ára­tug.

„Árið 2012 blekkti RÚV Seðla­banka Íslands til að gera hús­leit hjá Samherja vegna gjald­eyr­is­við­skipta. RÚV fals­aði skjöl í þessum til­gangi en allt kom fyrir ekki. Samherji var sýkn­aður fyrir dóm­stólum.  Árið 2019 hófst önnur atlaga RÚV að Samherja, að þessu sinni í sam­starfi við Jóhannes Stef­áns­son fyrrum starfs­mann norð­lensku útgerð­ar­innar í Namibíu,“ skrifar Páll.

Hann segir að RÚV hafi beitt öllu sínu afli gegn Samherja í ótelj­andi fréttum í sjón­varpi, útvarpi og á net­inu. Linnu­laust hafi sekt Samherja í Namibíu verið haldið fram. Í því sam­hengi upp­nefnir hann Helga Seljan og Jóhannes Stef­áns­son upp­ljóstr­ara.

„En svo reyn­ist Samherji sak­laus í Namibíu. Ekki einu sinn sak­sókn­ar­inn í Namibíu trúir skáld­skap RÚV og Jóhann­esar. Á dag­inn kemur að Samherji keypti kvóta með lög­mætum hætti. Namibísk lög kveða á um að kvóta­hafar skulu vera inn­lendir rík­is­borg­arar. Samkvæmt namibískum fjöl­miðlum var eitt og annað áfátt með hvernig namibískir aðilar komust yfir kvót­ann og hvernig ábat­anum var ráð­stafað. Þessir aðilar eru ákærðir. En Samherji stund­aði við­skipti og veiddi mak­ríl. Meintir glæpir norð­lensku útgerð­ar­innar voru skáld­skapur, upp­spuni RÚV-Helga og Jóa. RÚV þegir um þessar nýj­ustu vend­ingar í Namib­íu­mál­inu. Senni­lega pant­aði Efsta­leiti hóp­með­ferð á geð­deild,“ skrifar Páll og sýnir skóla­meist­ara sínum klærnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

„Þú getur treyst barninu sem þú varst. Jesús gerir það“
Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu