Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Góðar matarvenjur lykilatriði

Lyk­ill­inn að því að hrista af sér aukakílóin er að reyna að venja sig á góðar mat­ar­venjur dags­dag­lega.

Einnig er gott að hafa í huga að fylgja hollu matar­æði átta­tíu og fimm pró­sent tím­ans og leyfa sér pínu­lítið af því sem þig langar í einu sinni í viku.

Að hrista af sér aukakílóin getur verið hæg­ara sagt en gert og margir hafa prófað ein­hvers konar megr­un­ar­kúr yfir ævina. Í hinum vest­ræna heimi verður fólk hins vegar sífellt feit­ara og feit­ara og margir sér­fræð­ingar vilja meina að kúrar séu einmitt hluti vand­ans. Í stað þess að gera alvöru­lífs­stíls­breyt­ingu er leitað að skjótri lausn. Lyk­ill­inn er að reyna að venja sig á góðar mat­ar­venjur dags­dag­lega. Talað er um að það taki 18-250 daga að venja sig á eitt­hvað nýtt til að það verði fólki  eðl­is­lægt. Hér eru nokkur góð ráð.

Horfast ekki í augu við mat­ar­venj­urnar
Freist­andi er að fara á strangan megr­un­ar­kúr í skamman tíma sem gefur skjótan árangur. Sá árangur end­ist þó ekki lengi því þú hefur hvorki breytt neinu sem við­kemur við­horfi þínu til matar né mat­ar­venjum. Þú þarft að horfast í augu við ástæð­una fyrir því að þú byrj­aðir að þyngj­ast til að byrja með; borðar þú óhollan mat, eru skammta­stærð­irnar of stórar eða borðar þú til að drepa tím­ann. Það er ekki fyrr en þú áttar þig á óvenjum þínum að þú getur breytt til betri vegar þegar til langs tíma er litið.

Erfiðara með aldr­inum
Eftir því sem við eld­umst þá missum við vöðvamassa, eða allt að átta pró­sent á ára­tug eftir þrí­tugs­aldur. Þetta hefur þau áhrif að það hægist á grunn­brennslu okkar og við getum þá farið að þyngj­ast og erf­ið­ara að létt­ast. Konur eru almennt ekki nógu dug­legar að byggja upp vöðvamassa, margar ótt­ast að þær verði of „mass­aðar“ en það eru óþarfa­á­hyggjur. Það er mik­il­vægt að passa að borða nóg prótín og lyfta lóðum til að halda vöðv­unum við.

Svefn mik­il­vægur
Svefn hefur meiri áhrif á þyngd okkar en við gerum okkur grein fyrir. Rann­sóknir hafa sýnt að ónógur eða lélegur svefn fær okkur til að borða nokkur hund­ruð auka­hita­ein­ingar á dag í formi sykur- og fitu­ríkrar fæðu. Ef þið eruð þreytt nennið þið síður að huga að heils­unni og leitið eftir skjótum orku­gjafa. Um leið og svefn­inn kemst í gott lag þá mun þyngd­ar­tap fylgja.

Enginn er full­komin öllum stundum
Hver kann­ast ekki við að langa miklu meira í allt sem maður má ekki fá um leið og byrjað er í megrun. Það er í raun aðeins tíma­spurs­mál hvenær maður fellur í þá gryfju að leyfa sér eitt­hvað óhollt. Vandinn er sá að margir gefa bara allt upp á bát­inn um leið og þeim mis­tekst. Mik­il­vægt er að sætta sig við eitt skref aftur á bak en halda áfram og reyna að gera betur næsta dag. Einnig er gott að hafa í huga að fylgja hollu matar­æði átta­tíu og fimm pró­sent tím­ans og leyfa sér pínu­lítið af því sem þig langar í einu sinni í viku.

Streita
Streita hefur slæm áhrif á alla starf­semi lík­am­ans. Þegar við erum undir miklu álagi hættir okkur til að borða meira af sykr­uðu eða feitu fæði því það örvar ánægju­stöðvar heil­ans og lætur okkur líða vel. Það sem meira er þá ýtir stress­horm­ónið kortisól undir þyngd­ar­aukn­ingu, sér­stak­lega yfir lík­amann miðjan sem er hættu­legt heilsu okkar. Það er auð­vitað ekki ein­falt að tak­marka alla streitu í lífi okkar en við getum reynt að ná tökum á henni án þess að leita í óhollan mat. Lík­ams­rækt á borð við jóga getur líka hjálpað því þar styrkjum við lík­amann en vindum einnig ofan af hug­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.
Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Hjónabandsráðgjafinn Molly Mindel segir að kynlíf eftir rifrildi geti aukið nánd en komi ekki í stað samtals um það sem olli ágreiningnum.

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

„Nið­ur­lægj­andi að smækka fólk niður í tölur“

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Lyf í töflu­formi vekur vonir um hæg­ari fram­gang Alzheimers