Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Þórólfur um nýju Covid-bylgjuna: Glittir í nýjan topp – Toppum því miður þann gamla auðveldlega

Þórólfur Guðnason
Þórólfur Guðnason

Þjóðin beið með önd­ina í háls­inum í gær eftir fréttum af þriggja klukku­stunda löngum fundi rík­is­stjórn­ar­innar sem hald­inn var á Hótel Vala­skjálf á Egils­stöðum.

Eftir fund­inn voru nið­ur­stöður kynntar – gilda þær í þrjár vikur og taka gildi á mið­nætti. Heil­brigð­is­ráð­herra, Svandís Svav­ars­dóttir, sagði eftir fund­inn að minn­is­blað sótt­varn­ar­læknis hefði verið sam­þykkt í megin dráttum. Einungis er tæpur mán­uður frá því að öllu var aflétt hér á landi.

Nið­ur­stöð­urnar voru þessar:

Sam­komu­tak­mark­anir verða settar á og mega nú ein­ungis 200 manns koma saman; fjar­lægð­ar­tak­mörk verða einn metri. Opn­un­ar­tími skemmti­staða verður styttur til 23 og síð­asti maður út á mið­nætti. Fjölda­tak­mark­anir í sund og lík­ams­rækt 75 pró­sent af leyfi­legum fjölda í sundi og lík­ams­rækt.

Svandís sagði að það þyrfti að leggja meira fjár­magn í heil­brigð­is­kerfið til þess að styrkja það og nefndi einnig að á þessum mara­þon-fundi hefði verið skipst á skoð­unum innan rík­is­stjórn­ar­innar.

Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir lagði til að fjar­lægð­ar­tak­mörk yrðu tveir metrar í sumum til­fellum en rík­is­stjórnin ákvað að ein­fald­ara væri að hafa það bara einn metra. Ekki virð­ist hafa verið hlustað á Þórólf í þeim efnum að minnsta kosti, en hann segir að „kúr­v­an“ hvað varðar nýju Covid-bylgj­una sé áfram á upp­leið; í veld­is­vexti og hann telur að núna muni nýja bylgjan stefna mun hærra ef fram heldur sem horfir.

Þórólfur vill minna fólk á að topp­arn­ir á fyrstu bylgj­unni og þriðju bylgj­unni fóru hæst upp í yfir hund­rað og segir Þórólfur að því miður gæt­um við hér á landi toppað það auð­veld­lega á næst­unni.

Í dag er staðan sú að 60 til 70 pró­sent af þeim sem eru að grein­ast eru full­bólu­sett­ir.

Ljóst er að staðan er mjög alvar­leg því í gær greindust 95 kór­ónu­veiru­smit inn­an­lands; 75 utan sótt­kví­ar.

Mikið hefur verið rætt um þau áhrif sem aflétt­ingin fyrr í júlí hafi haft; flestir eru sam­mála um að aflétt­ingin hafi haft afar slæm áhrif þó tíma­bundið hafi hún létt lund þjóð­ar­innar mikið.

Þórólfur nefnir að út­breiðslan á ákveðnum stöðum –  til að mynda á skemmti­stöðum – þar sem fólk hóp­ast sam­an í stórum stíl og sé í mik­illi nánd og pass­i sig ekki og sé mis­mun­andi vel áttað – hafi haft þau áhrif að veiru­út­breiðslan hafi á skömmum tíma farið inn í fjöl­skyld­ur; vina­hópa og fyr­ir­tæki.

Und­an­farið hafa um eitt pró­sent þeirra sem sýkst hafa af kór­ónu­veirunni þurft á spít­ala­inn­lögn að halda en hlut­fallið var um 5 pró­sent áður. Þórólf­ur seg­ir að mögu­lega megi þakka bólu­setn­ing­unni fyr­ir að fleiri hafi ekki þurft að leggj­ast inn sem stend­ur.

Hann nefnir að hjúkr­un­ar­heim­il­in séu búin að efla varn­ir og séu búin að auka við var­úð­ar­ráð­staf­an­ir.

Einnig að fólk sé núna úti um allt þannig að þetta sé tölu­vert erf­ið­ara en áður og

smitrakn­ing­ar­t­eymið sé tölu­vert á eft­ir, þannig að ástandið nú sé orðið mjög snúið fyr­ir alla við­bragðs­að­ila.

Þórólfur er alveg klár á því að það væri miklu meiri og hrað­ari út­breiðsla veirunnar ef bólu­setn­ing­ar­hlut­fallið hér á landi væri ekki svona hátt miðað við mörg önnur lönd í heim­inum. Hann ljáir einnig máls á því að hann hefði viljað fá sam­þykktar miklu strang­ari

til­lög­ur held­ur en liggja fyr­ir núna.

Bólu­setn­ing­in er um 90 pró­sent virk í að koma í veg fyr­ir al­var­leg veik­indi; en 50 til 60 pró­sent í að koma alveg í veg fyr­ir smit og að það séu marg­ir sem eru vel varðir.

Ljóst er að hertar tak­mark­anir sem taka gildi á mið­nætti hefðu orðið mun harð­ari ef Þórólfur hefði fengið allar sínar til­lögur úr minn­is­blaði sínu til rík­is­stjórn­ar­innar sam­þykktar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Hlýlegt heim­ili við Efri Hól bíður nýrra eig­enda

Húsið var reist árið 1916
Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu