Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Rótgróin barfluga úr The Simpsons deyr: „Áhrifamikið og mjög furðulegt!“

Larry er annar frá vinstri á myndinni.
Larry er annar frá vinstri á mynd­inni. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Aukak­arakt­er­inn Larry the Barfly eða bar­flugan Larry úr The Simpsons-teikni­mynda­þátt­unum, sem Harry Shearer tal­aði fyrir, hefur nú verið skrif­aður út úr þátt­unum, eftir að hafa verið með frá upp­hafi. Þátta­ser­í­urnar eru nú orðnar 35 sem þýðir að The Simpsons er sú teikni­mynda­sería sem gengið hefur lengst í sjón­varpi allra teikni­mynda­sería.

Þann 21. apríl var þátt­ur­inn „Cremains of the Day“ sýndur en þar leið vin­unum Homer Simpson, Lenny Leonard (einnig tal­settur af Harry), Moe Szyslak og Íslend­ing­ur­inn Carl Carlson, illa yfir því að hafa ekki vitað meira um bar­flug­una Larry sem lést á barnum. Til að friða sam­visk­una fara þeir fjórir til Serenity Falls til að dreifa ösku hans.

Í þætt­inum, sem var númer 765, var í fyrsta skipti veitt inn­sýn inn í bar­flug­una, sem hefur verið með frá fyrsta þætti. Þar kemur meðal ann­ars fram að fullt nafn hans er Lawrence Dal­rymple og að hann elskaði að veiða.

Harry Shearer hefur nóg að gera þó Larry sé lát­inn en hann talar einnig fyrir fjöldi ann­arra per­sóna, þar á meðal Ned Flanders, Mr. Burns, séra Lovejoy og Skinner skóla­stjóra.

Aðdá­endur þátt­anna hafa syrgt and­lát per­són­unnar og tjáð sig um það á sam­fé­lags­miðl­unum en einn þeirra skrif­aði á X-inu: „Hvíl í friði Larry bar­fluga, við þekktum þig varla.“ Annar skrif­aði: „Megi ferða­lag þitt enda á bar þar sem eru botn­lausar bjórtunnur og enda­laus „happy hour“.“

Annar benti á að Larry hafi ekki verið neitt sér­stak­lega minni­stæður karakter. Enn annar skrif­aði: „Ég elska að sjá aðdá­endur Simpsons þykj­ast hafa þótt vænt um bar­flug­una Larry,“ og annar við­ur­kenndi: „Ég hef aldrei séð bar­flug­una Larry fyrr en núna.“

Fram­leið­andi þátt­anna, Tim Long gaf sam­þykki sitt á sögu­þræð­inum og sagði: „Vel gert … að kanna hvernig Homer og vinir hans sjá fyrir sér fram­halds­lífið. Áhrifa­mikið og mjög furðu­legt!“

Eonline til­kynnti and­látið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Menning

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027