Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Tveir prestar höfða mál gegn Agnesi biskup

Séra Kristinn Jens Sigurþórsson og séra Gunnar Sigurjónsson eru í málaferlum við Þjóðkirkjuna.
Séra Kristinn Jens Sig­ur­þórs­son og séra Gunnar Sig­ur­jóns­son eru í mála­ferlum við Þjóð­kirkj­una.

Séra Kristinn Jens Sigurþórsson og Séra Gunnar Sigurjónsson, eru nú að ganga frá máls­höfðun gegn biskupi Íslands, Agnesi M Sigurðar­dóttur, í tveim ólíkum málum.

Eins og áður sagði eru málin ólík og tengjast ekki neitt, nema að þau eru bæði innan Þjóð­kirkjunnar.

Mál séra Kristins snýr að niður­lagningu kirkju­þings á presta­kalli hans, Saur­bæjar­prestakalli, en málið átti rætur í raka­skemmdum og myglu í prests­bústaðnum í Saurbæ.

Máls­höfðun hans er einnig sögð snúa að biskupi Íslands, þ.e. hvernig embætti séra Kristins var lagt niður og hvernig staðið var að því að láta hann fá annað embætti.

Mál séra Gunnars Sigurjóns­sonar tengist ásökunum sex kvenna um kynferðis­lega áreitni, kynbundið ofbeldi og einelti.

Gunnar Björns­son er í ónáð bisk­ups.

Mannlíf hefur undan­farin misseri reynt að fá svör frá Þjóð­kirkjunni vegna máls séra Gunnars Björns­sonar, sem var synjað um að jarð­syngja konu að beiðni fjöl­skyldu hennar. Þrátt fyrir ítrekaðar fyrir­spurnir til Biskups­stofu hafa engins svör borist til Mannlífs, hverjar svo sem ástæðurnar eru fyrir því.

Þjóð­kirkjan virðist vera að reyna gamal­kunnuga aðferð, sem mögulega hefur reynst henni vel hingað til; að hunsa einfald­lega þá sem spyrja erfiðra spurninga.

Ljóst er að Þjóð­kirkjan er í mikilli kreppu – æ færri kjósa að vera innan raða hennar og stjórnar­hættir þar virðast minna frekar lítið á kærleikann sem Kristur boðaði.

Segja má að hneykslismál hafi með reglulegu millibili komið upp hjá Þjóð­kirkjunni og eðlilega ratað í fjölmiðla; stærsta dæmið er að sjálfsögðu tengt Ólafi heitnum Skúlasyni biskup, sem var sakaður um kynferðis­brot af ýmsum toga – margir þekkja þá sögu vel.

Þá má nefna mál séra Skírnis Garðars­sonar, sem fór í hart við biskup á sínum tíma og lesa má um hér og hér.

Fjölmörg önnur mál hafa komið upp sem hafa ekki bætt ímynd stofnunarinnar – of langt mál væri að telja þau öll upp; en Þjóð­kirkjan hefur vissulega ekki borið þess bætur. Stöðug fækkun er staðreynd og ekkert sem bendir til þess að þeirri þróun verði snúið við á næstunni.

Í stað þess að takast á við þau hneykslismál sem komið hafa upp innan Þjóð­kirkjunnar hefur Agnes M. Sigurðar­dóttir biskup frekar kosið að reyna allt hvað hún getur til að þagga niður öll erfið mál er tengjast stofnuninni; sópa þeim undir teppið.

Ljóst er að máls­höfðun séra Gunnars og séra Kristins eykur þrýsting á Þjóð­kirkjuna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim