Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Gísli á ekki orð yfir Sjálfstæðisflokknum: „Fólk situr við götuna og drekkur kaffi og bjór“

Sjón­varps­mað­ur­inn og veit­inga­húsa­rek­and­inn Gísli Marteinn Bald­urs­son er síður en svo sáttur með Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Reykja­vík. Segir hann flokk­inn vera á móti því að öku­hraði bíla inni í hverfum borg­ar­innar sé lækk­aður.

„Ég get ekki orða bund­ist vegna umræðu um lækkun umferð­ar­hraða í hverfum, þar sem því er haldið fram að lækkun hraða á Hofs­valla­götu hafi skapað ein­hvers­konar ófremd­ar­á­stand hér í hverf­inu. Stað­reyndin er þver­öfug: Lægri hraði á Hofs­valla­götu hefur gert hverfið örugg­ara og betra. Það er minni loft­mengun og hávaða­mengun, það er miklu meira mann­líf í göt­unni og fólk situr úti við göt­una og drekkur kaffi og bjór og borðar kruð­erí og ham­borg­ara beggja vegna hennar,“ skrifar Gísli Marteinn í færslu á Facebook.

Segir hann það einnig vera algjöra rang­færslu að umferð hafi auk­ist í nær­liggj­andi íbúa­götum. Þvert á móti hafi nákvæmar taln­ingar bent til þess að það hafi ekki gerst.

„For­eldrar sem senda börnin sín í skóla eða frí­stundir yfir Vest­ur­berg, Sund­lauga­veg, Snorra­braut, Rétt­ar­holts­veg eða Hallsveg eru alveg áreið­an­lega ekki sam­mála XD um að meiri og hrað­ari bíla­um­ferð sé betri.“

Gísli segir íbúa hverf­is­ins mjög ánægða með breyt­ing­arnar sem gerðar voru á Hofs­valla­götu árið 2013. Umferð­ar­ör­yggi sé meira, börnum sé treyst til að fara sjálf um hverfið, mengun sé minni, hávaði frá umferð minni og mann­líf í göt­unni marg­falt meira en það hafi verið fyrir breyt­ing­arnar.

„Það verður að telj­ast með ólík­indum að stjórn­mála­flokkur ákveði að vera á móti þess­ari þróun og taka hana sem dæmi um víti til að var­ast!“

Hann seg­ist jafn framt sann­færður um að önnur hverfi myndu njóta góðs af minni umferð og skrifar að lokum: „Enda er það mín reynsla af borg­ar­málum að íbúar ALLRA hverfa í borg­inni vilja rólegri bíla­um­ferð, aukið öryggi, minni mengun og meira mann­líf. Það að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn skuli ham­ast gegn þeirri stefnu veldur miklum von­brigðum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

„Þú getur treyst barninu sem þú varst. Jesús gerir það“
Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu