Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Plötusnúðar Dynheima reknir vegna skoðana sinna: „Þeir eiga greinilega enga samleið með okkur“

Akureyri –
Akureyri – Mynd: Wikipedia

Nokkrir plötu­snúðar á Akureyri áttu í úti­stöðum við for­stöðu­mann félags­mið­stöðvar í des­em­ber 1986 en þeir sögðu hann hafa rekið þá vegna skoð­ana þeirra á stjórnun félags­mið­stöðv­ar­innar.

Í Bak­sýn­is­spegli kvölds­ins kíkjum við á áhuga­vert mál þar sem plötu­snúðar deildu opin­ber­lega við for­stöðu­mann félags­mið­stöðv­ar­innar Dynheima á Akureyri í des­em­ber 1986.

Plötu­snúð­arnir höfðu farið í útvarps­þátt þar sem þeir gagn­rýndu stjórnun Dynheima og sögðu að í kjöl­farið hefðu þeir verið reknir af for­stöðu­mann­inum vegna skoð­ana sinna. Sá, Steindór G. Stein­dórs­son, sagði það ekki rétt, heldur hafi staðið til að end­ur­skipu­leggja starf­sem­ina og segja nokkrum plötu­snúðum upp. Hann hafi boðað þá á fund til að ræða málin en þess í stað hafi þeir rokið í útvarpið og sagt að þeir hefðu verið reknir. Plötu­snúð­arnir stóðu þó áfram á sínu og full­yrtu að þeir hefðu verið reknir vegna skoð­ana sinna.

Hér má lesa frétt DV um málið:

Akureyri:

Plötu­snúð­arnir í Dyn­heimum reknir

„Það er rangt að plötu­snúð­arnir hafi verið reknir vegna skoð­ana sinna. Það stóð til að end­ur­skipu­leggja starf­sem­ina og segja hluta af plötu­snúð­unum upp,“ sagði Steindór G. Stein­dórs­son, for­stöðu­maður félags­mið­stöðv­ar­innar Dynheima á Akureyri, í gær um það hvort rétt væri að plötu­snúð­arnir hefðu verið reknir vegna skoð­anna sinna á starf­semi Dynheima sem þeir létu uppi í útvarps­þætti nýlega. En plötu­snúð­arnir full­yrða að svo sé. „Ég vildi fá fund með plötu­snúð­unum og ræða starf­sem­ina á næstu vikum. Af þessum fundi varð aldrei heldur ruku þeir í útvarpið og sögðu að þeir hefðu verið reknir,“ sagði Steindór. Hann sagði enn fremur að mikil ásókn væri í starf plötu­snúða í Dyn­heimum. „Það eru margir sem vilja kom­ast að og í svona starfi er nauð­syn­legt að end­ur­nýja alltaf af og til. Þannig er farið að ann­ars staðar. Annars get ég ekki sagt annað en að plötu­snúð­arnir, sem hafa haft sig frammi í þessu máli, hljóti að hætta núna. Þeir eiga greini­lega enga sam­leið með okkur.“

Sigurður Þor­steins­son plötu­snúður: Vorum reknir

„Ég tel öruggt að Steindór hafi rekið okkur vegna skoð­ana okkar í þætt­inum Ekkert mál hjá útvarp­inu en þar gagn­rýndum við stjórnun Dynheima,“ sagði Sigurður Þor­steins­son, einn plötu­snúð­anna í Dyn­heimum, sem nú eru að hætta. „Eftir þátt­inn tal­aði Steindór við einn okkar og sagði að við yrðum að hætta. í fram­haldi af þessu haíði frétta­maður svæðis­út­varps­ins sam­band við okkur.“ Sigurður sagð­ist mjög ósáttur við fram­komu Stein­dórs í þessu máli. „Ég hef starfað und­an­farin þrjú ár sem plötu­snúður í Dyn­heimum en hinir plötu­snúð­arnir tveir í aðeins þrjá mán­uði. Það er því svo­lítið bogið við að það þurfi að skipta um blóð svona snemma. Þar fyrir utan em dæmi þess að plötu­snúðar hafi verið á sama staðnum í átta ár og ég veit um einn sem var hjá Dyn­heimum í tólf ár,“ sagði Sigurður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni