Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Fólk

Selja ein­býli með turn­stofu og verð­launa­garði

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Fólk

Ragnar Bragason birti mynd­band af dul­ar­fullum ljósum yfir Sunda­höfn

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Rekstur Heimildarinnar orðinn sjálfbær – Hagnaðist um 17,7 milljónir á síðasta ári

Heimildin.
Heim­ildin. Mynd: Facebook

Heim­ildin hagn­að­ist um 17,7 millj­ónir á síð­asta ári. Við­snún­ingur hefur því orðið í rekstri sam­ein­aðs félags Stund­ar­innar og Kjarnans árið 2023 og rekst­ur­inn orð­inn sjálf­bær.

Heim­ildin segir frá því í frétt sinni að Sam­ein­aða útgáfu­fé­lagið ehf., sem gefur út Heim­ild­ina og Vís­bend­ingu, hafi skilað jákvæðri afkomu á síðsta ári, á fyrsta rekstr­ar­ári félags­ins eftir að fjöl­miðl­arnir Stundin og Kjarninn sam­ein­uð­ustu í byrjun árs 2023.

Fram kemur í skýrslu stjórnar sem fylgir ásreikn­ingi útgáfu­fé­lags­ins, að við­snún­ingur hafi orðið í rekstri félags­ins en rekstr­ar­hagn­aður var 17,7 millj­ónir króna fyrir fjár­magnsliði. Endn­an­leg afkoma eftir fjár­magnsliði og skatta var 11 millj­óna króna hagn­aður.

Í yfir­lýs­ingu aðstand­enda félags­ins fyrir samruma í lok árs 2022 kom fram að mark­miðið væri sjálf­bær rekstur og þannig sjálf­stæð blaða­mennska og má því segja að afkoman sé í sam­ræmi við þær yfir­lýs­ingar. Í yfir­lýs­ing­unni sagði meðal ann­ars: „Eitt af grunn­mark­miðum nýs fjöl­mið­ils er sjálf­bær rekstur til lengri tíma sem stendur undir sjálf­stæði rit­stjórnar. Rekst­ur­inn á þó í sam­keppni við stærri fjöl­miðla sem hafa fengið við­var­andi tap­rekstur nið­ur­greiddan af fjár­sterkum aðilum, meðal ann­ars eig­endum útgerða og kvóta.“ Þar á Heim­ildin við Morg­un­blaðið helst, en Árvakur, sem gefur út blaðið er í meiri­hluta­eign auð­kon­unnar Guð­bjargar Matth­í­as­dóttur.

Fram kemur í frétt Heim­ild­ar­innar að tekju­vöxtur félags­ins milli ára hafi verið 38 pró­sent sam­an­borðið við rekstur Kjarnans miðla ehf. og Útgáfu­fé­lags Stund­ar­innar ehf. Tekjur sam­ein­aðs félags námu alls rúmum hálfum millj­arði króna á árinu 2023 en með­al­fjöldi starfs­manna var 25.

Árið á undan, 2022, höfðu bæði sam­runa­fé­lögin verið rekin með tapi. Útgáfu­fé­lagið Stundin ehf., tap­aði 39,8 millj­ónum króna á árinu 2022, en þá er talið með breytt upp­gjör orlofs­skulda­bind­inga og áhrif tekju­skattsinn­eignar, eftir ýmist lítið tap eða hagnað árin á undan. Hitt sam­runa­fé­lagið, Kjarninn miðlar, hafði tapað 11,2 millj­ónum sama ár.

Síð­ast­lið­inn mið­viku­dagd var aðal­fundur útgáf­unnar en þá voru end­ur­kjörin í stjórn félags­ins þau Elín Ragn­ars­dóttir, for­maður, Heiða B. Heið­ars­dóttir, Hjálmar Gíslason og Vil­hjálmur Þor­steins­son. Rit­stjóri Heim­ild­ar­innar er Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir og rit­stjóri Vís­bend­ingar Ásgeir Brynjar Torfason. Fram­kvæmda­stjóri útgáfu­fé­lags­ins er Jón Trausti Reyn­is­son.

Enginn eig­andi Sam­ein­aða útgáfu­fé­lags­ins, sem er í dreifðu eign­ar­haldi, er með meira en 7,6 pró­sent hlut.

Fram kemur einnig fram í skýrslu stjórnar félags­ins að félagið starfi meðal ann­ars á dag­blaða­mark­aði, þar sem „helsti keppi­nautur félags­ins er nú í ein­ok­un­ar­stöðu á sviði prent­unar og dreif­ingar dag­blaða“. Einnig er minnst á að blaða­menn útgáf­unnar hafi sætt langvar­andi lög­reglu­rann­sókn eftir umfjöllun um starf­semi útgerð­ar­fé­lags­ins Samherja.

„Lög­reglan á Norð­ur­landi eystra hóf í febr­úar 2022 rann­sókn á blaða­mönnum, þar á meðal fjórum blaða­mönnum Heim­ild­ar­innar, í tengslum við umfjöllun og gögn er varða almanna­tengsla­her­ferð útgerð­ar­fé­lags­ins Samherja gegn blaða­mönnum sem fjöll­uðu um mútu­mál útgerð­ar­innar. Við útgáfu árs­reikn­ings þessa, tveimur og hálfu ári síðar, var rann­sókn­inni á blaða­mönn­unum enn við haldið án nið­ur­stöðu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Myndavél sem sett var upp til að fylgjast með minkum á Saaremaa náði einnig myndum af „einhyrningnum“
Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Heimur

Lítið fyr­ir­bæri í geimnum vekur stórar spurn­ingar

Pólitík

„Það er kapps­mál að gera það að aðlað­andi kosti að flytja á lands­byggð­ina“

Innlent

Innlent

Eigna­spjöll til rann­sóknar í Reykja­vík og Garðabæ

Lögregla rannsakar einnig tilkynningu um líkamsárás í miðborginni.
Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti