Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Íslendingar keppa í samnorrænni heimabruggkeppni: „Við erum afskaplega stolt og ánægð“

Keppnishópurinn á góðri stund að smakka heimabruggaðan bjór. F.v.: Arnar, Finnbjörn, Oddur, Guðmundur og Dagur.
Keppn­is­hóp­ur­inn á góðri stund að smakka heima­brugg­aðan bjór. F.v.: Arnar, Finn­björn, Oddur, Guð­mundur og Dagur. Mynd: Helgi Bragason

Fágun – félag áhuga­fólks um gerjun – heldur út fyrir land­stein­ana næstu helgi til að taka þátt í sam­nor­rænni heima­brugg­keppni. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá félag­inu.

Síðustu miss­eri hefur Fágun unnið að því með systra­fé­lögum sínum í Noregi, Svíþjóð, Danmörku og Finn­landi að koma þess­ari keppni á kopp­inn. Hún verður haldin í Stavan­ger þann 22. júní næst­kom­andi en stór heima­bruggs­há­tíð verður haldin þar á sama tíma.  

Full­trúar Íslands eru sig­ur­veg­arar í árlegri brugg­keppni Fágunar, sem haldin var í maí síð­ast­liðnum. Þar vann Dagur Helgason verð­laun fyrir besta dökka bjór­inn, en hann hefur auk þess sópað til sín verð­launum hér heima í heima­bruggskeppnum Fágunar und­an­farin ár. Svo var bjór Arnars Arin­bjarnar og Odds Sig­urðs­sonar val­inn besti ljósi bjór keppn­innar.

Auk sig­ur­vegar­anna fara Finn­björn Þor­valds­son sem full­trúi Fágunar, þar sem hann situr í stjórn og Guð­mundur Mar sem full­trúi Íslands í dóm­nefnd­inni. Guð­mundur er hok­inn reynslu, bæði sem dóm­ari í brugg­keppnum víða um heim en eins sem atvinnu­brugg­ari, 25 ár við gæða­eft­ir­lit og í 16 ár sem brugg­meist­ari.

„Við erum afskap­lega stolt og ánægð að fá þetta tæki­færi og erum ótrú­lega spennt fyrir þessu ævin­týri. Aðal­til­gangur Fágunar er að þrýsta á stjórn­völd að lög­leiða heima­brugg. Enda erum við á því að það sé menn­ing­ar­starf­semi,“ segir Finn­björn glaður í bragði, að því er fram kemur í frétta­til­kynn­ing­unni. Og hann heldur áfram:

„Það er til mik­ils að vinna í keppn­inni úti, en sig­ur­bjór­inn verður brugg­aður til almennrar dreif­ingar af Mikkeler, einu virtasta hand­verks­brugg­húsi heims. Það væri sér­lega gaman að sjá íslenskan sig­ur­bjór seldan í næstu Vínbúð. En ég vil líka geta til gam­ans að sig­ur­bjór­arnir úr brugg­keppni Fágunar verða brugg­aðir og seldir á Bryggj­unni brugg­húsi úti á Granda. Ljósi bjór­inn verður þar á krana innan tíðar en sá dökki í haust.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Menning

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027