Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Í fréttum var þetta helst: Barinn Hrafn, Matartips, sár Jóhanna Guðrún og Einar Ágúst

Hrafn Jökulsson tvívegis barinn alvarlega á Land­spítalanum: „Hann ætlaði að drepa mig“

„Hnefar hans voru eins og stunguskólfur. Ég hef aldrei séð slíka hnefa og þetta var enginn venju­legur beljaki sem var ákveðinn í því að drepa mig,“ segir Hrafn Jökulsson rithöfundur í samtali við Mannlíf. Hann hefur kært til lögreglu tvær alvarlegar líkams­árásir sem hann varð nýverið fyrir á Land­spítalanum.

Hrafn hefur ítekað verið nauðungar­vistaður á geðdeild spítalans á árinu og mætir hann fyrir Landsrétt í dag til að tala máli sínu um lausn frá nauðungar­vistuninni. Þann 9. nóvember réðst annar vistmaður geðdeildar tvívegis á rithöfundinn, með þeim afleiðingum að Hrafn rotaðist í fyrra skiptið og í síðasti árásinni var honum bjargað af starfs­manni deildarinnar. „Þetta voru mjög grófar líkams­árásir, í tvígang. Í seinna skiptið kastaði starfs­maður sér fyrir höggið, líkt og sannur lífvörður Bandaríkja­forseta, en það var heljar­högg,“ segir Hrafn.

„Hann fékk næði til að undirbúa sig fyrir báðar árásirnar. Ég furða mig á því að það virðast engir verk­ferlar til eða viðbragðs­áætlun til að bregðast við eftir fyrri árásina, sem var mjög alvarleg. Ég hef aldrei verið stein­rotaður áður og ég skil ekki hvers vegna maðurinn var ekki færður eitthvað annað. Það er guðs mildi að hann náði ekki að klára þriðju árásina, þar sem aumingjans maðurinn hafði bitið það í sig að koma mér af jörðinni,“ segir Hrafn.

Sjá alla fréttina hér: Hrafn Jökulsson tvívegis barinn alvarlega á Land­spítalanum: „Hann ætlaði að drepa mig“

Logar allt á Matartips! eftir heimsókn Rakelar á Stokks­eyri: „Mjög óspennandi og dýrt“

Rakel var ekki sátt með varninginn og verðlagið í sjoppunni á Stokks­eyri eftir nýlega heimsókn þangað. Ekki bara var maturinn að hennar sögn mjög óspennandi heldur einnig dýr.

Rakel segir frá upplifun sinni í fjölmennum hópi matgæðina á Facebook, Matartips!. Þar segir hún:

„Mæli alls ekki með fjölskyldu­tilboðinu á hamborgurunum í sjoppuni á Stokks­eyri. 6.900 kr fyrir 4 hamborgara með milli­stærð af frönskum og 2l pepsi. Ekkert nema sósa, ostur og smá kál á borgurunum. Mjög óspennandi og dýrt.“

Óhætt er að segja að allt logi í hópnum eftir færsluna þar sem skiptar skoðanir koma fram. Sumir verja sjoppuna á meðan aðrir virðast hafa upplifað svipað. Birna er ein þeirra síðarnefndu. „Hahahaha var einmitt að koma þaðan. Fyrir 2 hamborgara með sósu, osti og örlitlu káli, 2 hamborgara með tómats­sósu, frönskum sem þær meira að segja gleymdu fyrst, 2l. Pepsí og 2×200 krónur bland í poka borgaði ég 7530. Þeir voru alls ekki góðir, hundurinn fékk barna­borgarana því börnin vildu þá alls ekki. Fáránleg verð­lagning og gæðin hræðileg,“ segir Birna.

Sjá alla fréttina: Logar allt á Matartips! eftir heimsókn Rakelar á Stokks­eyri: „Mjög óspennandi og dýrt“

Jóhanna Guðrún sár út í Smartland: „Hef aldrei séð fjöl­miðil gera þetta og fannst mér það ljótt“

Stórsöng­konan Jóhanna Guð­rún Jóns­dóttir segir í við­tali við Vísi að henni hafi brugðið mjög að sjá frétt þess efnis að hún væri ó­létt; hún hafði ekki einu sinni verið búin að segja dóttur sinni að hún væri að fara að eignast nýtt syst­kin.

Jóhanna Guð­rún skildi við eiginmann sinn og barns­föður fyrr á árinu; var greint frá því að hún væri komin í sam­band með Ólafi Frið­riki Ólafs­syni – en hann var áður kærasti hennar.

Jóhanna Guðrún segir að það hafi verið erfitt að sjá frétt á

mbl.is

um að hún ætti von á barni. Og hún er ekki sátt:

„Ef það er eitt­hvað sem ég hef lært, því miður, að í þessum geira sem ég er í þá verður maður svo­lítið bara að kyngja því að maður á sér ekkert „priva­cy“. Þetta var samt alveg pínu á­fall fyrir mig, að þetta skyldi vera til­kynnt án þess að ein­hver reyndi einu sinni að hafa sam­band við mig. Ég var ekki einu sinni búin að segja dóttur minni þetta,“ sagði Jóhanna Guð­rún í áður­nefndu viðtali við Vísi.

Sjá alla fréttina: Jóhanna Guðrún sár út í Smartland: „Hef aldrei séð fjöl­miðil gera þetta og fannst mér það ljótt“

Popp­stjarnan Einar Ágúst vill deyja: „Ég er ekkert á sérstak­lega góðum stað í lífinu“

Einar Ágúst Víðisson tónlistar­maður hefur marga fjöruna sopið. Hann hefur tekist á við þunglyndi og kvíða frá því að hann var barn og í dag er hann öryrki og hugsar reglulega um dauðann. Í viðtali við Mannlífið með Reyni Trausta­syni talar hann meðal annars um þung­lyndið, grófa framkomu sumra karla gagnvart konum, hand­tökurnar og himininn.

„Ég er með dauða­hugsanir á hverjum degi og langar bara að deyja,“ segir Einar Ágúst Víðisson sem segist hafa tekist á við þunglyndi og kvíða frá því að hann var krakki. Ótta. Hræðslu. Óöryggi. „Ég nenni þessu ekki. Ég er bara kominn með nóg. Ég er mjög brotinn og er ekki á besta stað í lífinu, en ég næ edrútímum og ég næ flugi og svo grípur kvíðinn og þung­lyndið inn í sem og verkirnir og ég fer niður brekku. Svo endar það með því að ég fæ mér Baileys í kaffið eða reyki eina jónu og svo upp á vagninn aftur. Það er þessi leiðinda­hringur í lífi mínu sem ég er orðinn svo þreyttur á. Ég er búinn að éta allan andskotann, svo sem þunglyndislyf, og ég er búinn að reyna svo margt. Ég fór á Reykja­lund; ég fór í langa endur­hæfingu og ég virðist ekki finna minn stað einhvern veginn.“

Langvar­andi sárs­auki er ofboðs­lega erf­iður

Hann er spurður hve lengi svona þunglyndis­tímabil standi yfir. „Vikur. Mánuði. Ár. Ég hef alveg tekið nokkur ár. Þetta er bara viðbjóður.

Ég er ekkert á sérstak­lega góðum stað í lífinu andlega og má við rosalega litlu. Ég veiktist svolítið alvarlega fyrir nokkrum árum. Þegar maður verður full­orðinn verða þessir veik­leikar eins og athyglis­brestur, þunglyndi og kvíði – hlutir sem maður gat hrækt úr sér í gamla daga – miklu erfiðari viðureignar, sérstak­lega athyglis­bresturinn, og maður er hættur að geta bitið á jaxlinn. Maður fattar að þetta er eins og fíknin og alkóhólisminn. Þetta eru krónískir sjúkdómar.“

Sjá allt viðtalið: Popp­stjarnan Einar Ágúst vill deyja: „Ég er ekkert á sérstak­lega góðum stað í lífinu“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Ágreiningur um þrif, ræstiþjónustu og myndavélar í sameign fór fyrir kærunefnd
Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Lögreglan hafði hendur í hár hans

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli