Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögmaður sem verið hefur starfandi sem slíkur í þágu Ingólfs Þórarinssonar, fer ekki lengur með mál Ingólfs Þórarinssonar, tónlistarmanns lengur.
Þetta eru viðbrögð þeirra sem Ingó kærði: „Vaknaði bara við að Ingó veðurguð er búinn að kæra mig“
Í samtali við Fréttablaðið staðfestir Vilhjálmur það að hann starfi ekki lengur fyrir tónlistarmanninn og segir jafnframt að ákvörðunin hafi verið sameiginleg.
Vilhjálmur rís upp Ingó til varnar – Blaðamenn og áhrifavaldar verða kærðir
Vilhjálmur sendi út sex kröfubréf nýverið fyrir hönd fyrrverandi skjólstæðing sinn, þar sem einnig var farið fram á afsökunarbeiðni. Bréfin voru send til eftirfarandi aðila sem eiga að hafa unnið sér það til saka að hafa fjallað á einhvern hátt um meinta refsiverða háttsemi Ingólfs: Ólöf Tara Harðardóttir einka– og næringarráðgjafi, Kristlín Dís Ingilínardóttir blaðamaður á Fréttablaðinu, Sindri Þór Sigríðarson Hilmarsson, markaðsstjóri og fyrrverandi framkvæmdastjóri Pírata, Edda Falak, viðskiptafræðingur, Erla Dóra Magnúsdóttir blaðamaður á DV og Silja Björk Björnsdóttir, rithöfundur.
Þetta er fólkið sem Ingó kærir
Ekki er vitað um framhald málareksturs Ingólfs eða hver tekur við þeim að svo stöddu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.





































Athugasemdir