Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Anna eyddi hundruðum þúsunda í „allskyns óþarfa“: „Á Íslandi lifir fólk ekki á nærklæðunum einum“

Anna Kristjánsdóttir
Anna Krist­jáns­dóttir

Anna Krist­jáns­dóttir er ánægð með Íslands­dvöl­ina fyrir utan pen­inga­eyðsl­una.

Í nýj­ustu dag­bók­ar­færslu vél­stjór­ans Önnu Krist­jáns­dóttur, færslu númer 1776, talar hún um Íslands­dvöl sína en hún dvaldi fyrir nokkru í fimm vikur á Íslandi en hún býr, eins og alþjóð veit, á Tenerife og hefur gert síð­ustu ár. Segir Anna að stjanað hafi verið við hana á meðan á dvöl­inni hafi staðið en finnst hún hafa eytt óþarf­lega miklum fjár­hæðum, eitt­hvað sem lang­flestir kann­ast við hér á landi.

„Dagur 1776 – Ísland.

Ég var á Íslandi um dag­inn, ekki bara í einn eða tvo daga, heldur heilar fimm vikur. Það var stjanað við mig. Ég bjó í fríu hús­næði takk veri vina­fólki mínu og fékk Mercedes Benz til umráða allan tím­ann án end­ur­gjalds, en þurfti vissu­lega að sjá um að fylla dásemd­ina af bens­íni meðan á dvöl minni stóð. En eins og ég sagði, það var stjanað við mig allan tím­ann og ég hefði ekki getað haft það betra og þó. Stóran hluta tím­ans sem ég dvaldi á landi for­feðra minna rigndi eða var for­áttu­brim, eitt­hvað sem ég hefði viljað forð­ast meðan á dvöl­inni stóð.“ Þannig hefst sunnu­dags­færsla Önnu en í seinni hlut­anum telur hún upp hvað allur pen­ing­ur­inn sem hún eyddi, fór í.„Mér sýn­ist að þrátt fyrir allt atlætið sem ég hlaut, eyddi ég samt hund­ruðum þús­unda í allskyns óþarfa. Mér bar að sjálf­sögðu skylda til að taka þátt í að fæða mig og ferðir í Rík­is­kaup­fé­lagið kost­uðu sitt og ég þurfti að sjá til þess að Mjall­hvít litla væri ávallt vel­fyllt af elds­neyti og ef ég nálg­að­ist gamla mið­bæ­inn þurfti ég að borga fyrir að leggja bílnum. Svo keypti ég mér hlífð­ar­fatnað því á Íslandi lifir fólk ekki á nær­klæð­unum einum eins og við gerum heima hjá mér.Og ég keypti mér eitt og annað sem ekki telst í frá­sögur fær­andi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Menning

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027