Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Vildi ógilda þjóðaratkvæðagreiðsluna en fékk nei

Úrskurð­ar­nefndin féllst ekki á sjón­ar­mið kær­anda

Kristrún Frostadóttir að kjósa í þjóðarkvæðagreiðslunni
Kristrún Frosta­dóttir að kjósa í þjóð­ar­kvæða­greiðsl­unni Mynd: JONATHAN KLEIN / AFP

Úrskurð­ar­nefnd kosn­inga­mála hefur hafnað kröfu um að þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan um aðild­ar­við­ræður Íslands við Evr­ópu­sam­bandið, sem fram fór 29. ágúst síð­ast­lið­inn, yrði ógilt. Úrskurð­ur­inn var kveð­inn upp 22. sept­em­ber.

Kæra vegna atkvæða­greiðsl­unnar barst nefnd­inni 25. ágúst, fjórum dögum áður en kosið var. Kærandi gerði meðal ann­ars athuga­semdir við orða­lag spurn­ing­ar­innar, fram­setn­ingu svar­kosta og lög­bundna kynn­ingu lands­kjör­stjórnar.

Í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni var spurt: „Á Ísland að hefja á ný aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið?“ og gátu kjós­endur svarað já eða nei.

Kærandi taldi að fram­setn­ingin gæti haft áhrif á afstöðu kjós­enda og að annar val­kost­ur­inn hefði verið sýni­legri og auð­veld­ari að ramma inn en hinn. Þá óskaði hann eftir því að nefndin kann­aði hvort ann­markar á opin­berri kynn­ingu gætu talist galli á kosn­ingu og leitt til ógild­ingar.

Úrskurð­ar­nefndin féllst ekki á þau sjón­ar­mið. Hún benti á að Alþingi hefði sam­þykkt orða­lag spurn­ing­ar­innar 28. maí eftir að utan­rík­is­mála­nefnd hafði fjallað ítar­lega um málið og aflað álits Fen­eyja­nefndar Evr­ópu­ráðs­ins.

Þá taldi nefndin ekk­ert benda til ann­ars en að kynn­ing lands­kjör­stjórnar hefði verið í sam­ræmi við kosn­inga­lög og kröfur um hlut­læga fram­setn­ingu. Kynn­ing­ar­efnið var unnið af Laga­stofnun Háskóla Íslands.

Nefndin sagði jafn­framt ekk­ert hafa komið fram um hnökra á fram­kvæmd atkvæða­greiðsl­unnar sjálfrar.

Var nið­ur­staðan því sú að ekki hefðu verið sýndir fram á gallar á und­ir­bún­ingi eða fram­kvæmd kosn­ing­anna sem lík­legt væri að hefðu haft áhrif á úrslitin. Kröfu kær­anda um ógild­ingu þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar var því hafnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

„Ég var orðinn kynlífsfíkill“
Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu