Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Slökkviliðið beitti skotbómulyftara til að komast að eldinum á Egilsstöðum – Myndskeið

Bruninn á Egilsstöðum.
Bruninn á Egils­stöðum. Mynd: Unnar Erlingsson

Húsnæði fjar­skipta­fyr­ir­tæk­is­ins Aust­ur­ljóss á Egils­stöðum er talið gjör­ó­nýtt eftir bruna í dag. Þegar slökkvi­liðið mætti á vett­vang lá mik­inn eld út úr hús­inu. Samkvæmt Aust­ur­frétt reynd­ist næsti bruna­hani ótengdur þegar slökkvi­liðið hugð­ist brúka hann.

Frá vett­vangi.

Klukkan var 11:19 í morgun þegar til­kynnt var um eld í hús­næð­inu sem er að Miðási 18 á Egils­stöðum. Hinu megin í hús­inu er fyrrum lík­kistu­verk­stæði en slökkvi­lið­inu tókst að verja það bil fyrir öðru en reyk.

Aust­ur­frétt tal­aði við Ingvar Rík­harðs­son, varð­stjóra hjá Slökkvi­liði Múla­þings, sem sagði að eldur hafi verið mik­ill í hús­inu þegar slökkvi­liðið bar að. „Það var nán­ast orðið alelda.“

Sagði hann slökkvi­liði hafi almennt gengið vel og að fljótt hafi náðst tök á eld­inu. Ekki þótti óhætt að senda reykka­far inn sökum ald­urs hús­næð­is­ins. Í stað­inn var feng­inn skot­bómu­lyft­ari sem rauf útvegg bragg­ans svo hægt væri að kom­ast að eld­inum.

Þá voru vinnu­vélar fengnar til að moka braki frá. Ingvar telur að í hluta húss­ins sem brann, sé um altjón að ræða, því ann­ars vegar sé það nú hálf­rifið og það sem inni í því var er brunnið.

Hér­aðs­búar kalla svæðið sem bragg­inn er á, „iðn­að­ar­hverfið“ en yst í því hverfi stendur hús­næðið sem hýsti áður efna­laug­ina og versl­un­ina Vaks, sem brann til grunna haustið 2022. Í kjöl­far þess bruna var rætt um eld­varnir í svæð­inu en slökkvi­liðið þurfti þá að leggja afar langar slöngur til að kom­ast í vatn.

Í morgun varð vart við sama vanda­mál. „Við ætl­uðum að tengja okkur inn á nýjan bruna­hana sem var 60 metra frá. Þá reynd­ist ekk­ert vatn á honum og hann ótengdur. Við þurftum í stað­inn að tengja okkur við bruna­hana sem var 200 metra í burtu,“ sagði Ingvar við Aust­ur­frétt.

Ekki kom það þó að sök í þessu til­felli þar sem nægi­legt vatn var á tank­bíl slökkvi­liðs­ins til að halda út á meðan tengt var við virkan bruna­hana.

Að svo stöddu eru elds­upp­tök ókunn en bragg­inn var mann­laus þegar eld­ur­inn braust út.

Hér má sjá mynd­skeið sem Unnar Erlings­son tók í morgun:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Landið

Landið

Leifar af skála frá land­náms­tíma fund­ust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.
Landið

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Landið

Andri Snær rifjar upp fórn­irnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Landið

Leð­ur­blakan í Fellabæ enn ófundin

Landið

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Landið

Öllu starfs­fólki Heil­brigð­is­eft­ir­lits Aust­ur­lands sagt upp