Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Innlent

Sextán ára stúlka í Reykja­vík tók eigin nauðgun upp á síma

Heimur

Sveit­ar­stjóri rek­inn eftir að upp komst um klám­mynda­gerð

Innlent

Allir Bónus vanillu­dropar inn­kall­aðir

Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Peningar

Átta félög gjald­þrota og fað­ir­inn gæti fengið atvinnu­rekstr­ar­bann

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Pólitík

Glúmur segir Ólaf Ragnar „mesta vind­hana sem Ísland hefir fætt og klætt“

Fólk

Höllin við Sjafn­ar­götu hefur beðið eftir kaup­anda frá vor­inu 2023

Fólk

Laufey stal sen­unni á einni glæsi­leg­ustu tísku­há­tíð árs­ins

Pólitík

Reykja­vík­ur­borg þegir um upp­sagnir 50 starfs­manna

Segir sölu Ljósleiðarans geta ógnað almannahagsmunum

Herdís Kjerulf Þor­geirs­dóttir varar við að einka­væð­ing mik­il­vægra fjar­skipta­inn­viða geti veikt öryggi kerf­is­ins og stöðu almenn­ings.

Segir sölu Ljósleiðarans geta ógnað almannahagsmunum
Ljós­leið­ar­inn Herdís Kjerulf Þor­geirs­dóttir varar við því að sala fyr­ir­tæk­is­ins úr opin­berri eigu geti ógnað almanna­hags­munum. Mynd: ljosleidarinn.is

Herdís Kjerulf Þor­geirs­dóttir, lög­maður og fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóð­andi, varar við því að Ljós­leið­ar­inn verði seldur úr opin­berri eigu. Hún segir slíka sölu geta skapað veru­lega áhættu fyrir almanna­hags­muni og þjóðar­ör­yggi, enda sé um að ræða mik­il­væga fjar­skipta­inn­viði lands­ins.

Í færslu á Facebook sem birt­ist á dög­unum, bendir Herdís á að reynslan af sölu Lands­síma Íslands og grunn­fjar­skipta­kerf­is­ins fyrir banka­hrunið ætti að vera stjórn­völdum víti til varn­aðar.

„Í aðdrag­anda hruns­ins seldi ríkið Lands­síma Íslands ásamt grunn­fjar­skipta­kerf­inu til einka­fjár­festa. Grunnnet Lands­sím­ans varð síðar hluti af Mílu, sem árið 2022 var seld franska fjár­fest­ing­ar­fé­lag­inu Ardian,“ skrifar hún.

Herdís bendir á að meðal hlut­hafa Ardian sé franski tískuris­inn Hermès og segir eigna­tengsl íslenskra fjar­skipta­inn­viða þannig teygja sig inn í heim alþjóð­legra fjár­mála og lúx­usvarn­ings, fjarri þeim almanna­hags­munum sem inn­við­irnir eigi að þjóna.

Hún vísar jafn­framt til þess að stjórn­völd í Noregi og Svíþjóð tryggi veru­legt opin­bert eign­ar­hald á fjar­skipta­innviðum.

Míla fékk 200 milljóna króna sekt

Herdís segir sölu Mílu til Ardian hafa verið svo mik­il­væga frá sjón­ar­hóli þjóðar­ör­yggis að þjóðar­ör­ygg­is­ráð hafi fjallað ítrekað um hana. Stjórn­völd hafi þó leyft söl­una að ganga eftir en gert sér­stakan samn­ing um örygg­is­k­vaðir.

Hún bendir á að Míla hafi verið með um 65 pró­senta hlut­deild á heild­stæðum mark­aði fyrir gagna­flutn­ing, sam­kvæmt mati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Eft­ir­litið hafi jafn­framt lagt áherslu á mik­il­vægi Ljós­leið­ar­ans, sem er í eigu Orku­veitu Reykja­víkur, sem sjálf­stæðs keppi­nautar Mílu.

Samkvæmt færslu Herdísar setti Sam­keppn­is­eft­ir­litið ströng skil­yrði fyrir kaupum Ardian á Mílu til að vernda sam­keppni. Hún segir Mílu hafa brotið þau skil­yrði fljót­lega með hátt­semi sem hafi verið til þess fallin að hindra við­skipti Símans við keppi­nauta Mílu.

„Fyrir brotin hlaut fyr­ir­tækið 200 millj­óna króna stjórn­valds­sekt sl. vor,“ skrifar hún.

Segir sparnaðaráform ekki réttlæta söluna

Herdís hefur áhyggjur af því að nú standi jafn­vel til að selja Ljós­leiðar­ann úr opin­berri eigu og telur slíkt geta veikt stöðu almenn­ings og öryggi fjar­skipta­kerf­is­ins.

„Þjóðar­ör­yggi, fjar­skipta­ör­yggi og aðgangur almenn­ings að nauð­syn­legri fjar­skipta­þjón­ustu eru of mik­il­vægir hags­munir til að stjórn­völd geti litið á sölu Ljós­leið­ar­ans sem skref í sparn­að­ar­á­formum,“ segir hún.

Í lok færsl­unnar spyr Herdís hvernig stjórn­völd hygg­ist tryggja grund­vall­ar­hags­muni þjóð­ar­innar þegar yfir­ráð yfir mik­il­væg­ustu fjar­skipta­innviðum lands­ins séu komin í hendur einka­fjár­festa.

„Vart er hægt að búast við því að þeir fórni eigin arð­sem­is­kröfum í þágu íslensks almenn­ings,“ skrifar hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

2
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Egill segir heim­ild­ar­mynd afhjúpa afmennskun ísra­elska hers­ins á Gaza

Egill rifjar upp skilgreiningu Benjamins Netanyahu á hryðjuverkum og segir hana eiga við um framferði Ísraels sem hann lýsir í grein sinni.
Innlent

Trygg­inga­stofnun svarar fyrir sig eftir harða gagn­rýni á Alþingi

Fólk

Stóð á haus í 6.935. sinn á afmæl­is­dag­inn

Innlent

Kona fékk reikn­ing fyrir bíl sem var ekki einu sinni á land­inu

Innlent

Kven­fangi seg­ist hafa verið sviptur nauð­syn­legri heil­brigð­is­þjón­ustu

Innlent

Innlent

Nýtt verk­efni á að tryggja börnum betri tal­meina­þjón­ustu

Áætlað er að tíu til tólf prósent grunnskólabarna þurfi á talmeinaþjónustu að halda
Innlent

Erfða­rann­sóknir á Íslend­ingum lyk­il­at­riði í þróun nýs megr­un­ar­lyfs

Innlent

Braust inn í sum­ar­bú­staði, stal bíl og braut rúðu á lög­reglu­bíl

Innlent

Kristinn og Kristinn fengu sex ár hvor fyrir ókristi­legt athæfi

Innlent

Spólglaður öku­maður fékk mak­leg mála­gjöld

Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi