Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Sverrir tók þátt í klikkuðustu landkynningu Íslands: „Jakob Frímann er með botnlausar hugmyndir“

Nýjasti gestur Mann­lífs­ins er kontra­ten­ór­inn og lífskúntsner­inn Sverrir Guð­jóns­son. Flestir Íslend­ingar þekkja Sverri en hann er eini kontra­tenór þjóð­ar­innar en hann var ekki nema átta ára gam­all þegar hann hóf söng­feril sinn.

Í við­tal­inu segir Sverrir frá barna­stjörnu­ár­unum, söng­ferl­inum, óvæntu ævin­týri sem Jakob Frímann Magn­ús­son kom honum í þegar hann bjó í Lundúnum og ýmis­legt fleira sem á daga hins bráð­skemmti­lega manns hefur drifið.

Ein magn­að­asta en um leið umdeildasta land­kynn­ing Íslands­sög­unnar er gjörn­ingur sem fram­kvæmdur var á íslenskri menn­ing­ar­viku í Gul­benkian-gall­er­í­inu í Lundúnum árið 1991. Jakob Frímann Magn­ús­son var þá menn­inga­full­trúi Íslands í Lundúnum og stóð fyrir þess­ari menn­ing­ar­viku. Datt honum í koll þá hug­mynd, í miðjum blaða­manna­fundi, að aug­lýsa gjörn­ing án þess að vera búinn að ræða það við þá sem áttu að fram­kvæma hann. Sverrir segir Reyni Trausta­syni frá því þegar Human Body Percussion Ensemble-gjörn­ing­ur­inn sló í gegn í Lundúnum en reiddi Íslend­inga.

„Jakob Frímann er með botn­lausar hug­myndir,“ segir Sverrir og Reynir tekur undir. Heldur hann svo áfram: „Og margar frá­bærar. Og ég vissi ekki alveg hvað á mig stóð veðrið þegar hann hringdi í mig en þá bjó ég úti í London, var þá að takast á við kontra­ten­ór­söng, og bar­rokk­músík og sam­tímatón­list, var á kafi í þessu. Þá kemur hring­ing frá Jakobi. Þá var hann menn­ing­ar­full­trúi Íslands í gegnum sendi­ráðið og er að búa til stemmn­ingu fyrir 1. des­em­ber hátíð Íslend­inga­fé­lags­ins. Og hann er svo stór­tækur þannig að hann býr til mynd­lista­sýn­ingu, hann býr til tón­leika, alls konar tón­leika og ég veit ekki hvort það var leik­rit líka. Og hann er að reyna að kynna þetta fyrir blaða­fólki í London. Og hann er að nefna öll þessi nöfn sem við þekkjum en eng­inn þekkir úti í London. Og það er eng­inn áhugi fyrir þessu og blaða­menn­irnir eru farnir að fær­ast nær úti­dyr­unum. Voru farnir að láta sig hverfa af þessum fundi sem þeir vildu ekki vera á.“

Sverrir segir að Jakob hafi þá fengið flugu í höf­uðið, til að ná athygli blaða­mann­anna:

„Og þá segir hann „Jú, það er eitt atriði í við­bót og það er The Human Body Percussion Ensemble “. Bara nafnið er stór­kost­legt.“

Reynir: „Og það varð til á staðnum bara?“

Sverrir: „Já, já en að vísu hafði hann hugsað þetta nafn ein­hvern tíma. Þannig að það var í heil­anum á honum og hann bara kastar þessu fram og það bara stoppa allir á sinni leið út úr salnum.“

Þegar for­vitnir blaða­menn spyrja Jakob nánar út í þetta atriði var hann með svörin á reiðum höndum, að sögn Sverris: „Hann fer að lýsa því að þetta sé bara stundað á Íslandi. Að þetta sé ein­hvers konar sam­bland af glímu og svo yfir í búk­slátt, til að halda á sér hita og allt þetta. Og þeir grípa þetta.“

Í kjöl­farið hrönn­uð­ust upp pant­anir fyrir þennan furðu­lega gjörn­ing og hóaði Jakob þá í Didda fiðlu, Röggu Gísla, sem þá var eig­in­kona Jakobs og Sverri, sem öll slógu til og slógu svo ræki­lega í gegn, meðal ann­ars í vin­sælum sjón­varps­þætti Jonathan Ross. Ekki voru þó allir ánægðir en margir Íslend­ingar urðu reiðir yfir þess­ari frum­legu land­kynn­ingu.

Hlusta má á við­talið í heild sinni hér.

Hér fyrir neðan má síðan sjá hinn frum­lega gjörn­ing sem um er rætt:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mannlífið

33:09
InnlentMannlífið

Sigríður notar hug­víkk­andi efni til að vinna á áföllum: „Er búin að fara í gegnum allt snjó­flóðið“

Sigríður Rannveig Jóns­dóttir er nýjasti gestur hlað­varps­þátt­ar­ins Mann­lífið. Hún hefur gengið í gegnum ótrú­legar raunir á lífs­leið­inni en í jan­úar árið 1995 missti hún unga dóttur sína í snó­flóð­inu í Súðavík sem og tengda­for­eldra. Hér er brot úr seinni hluta við­tals­ins: Sigríður Rannveig hefur not­ast við allskyns aðferðir við að vinna úr áföllum sem hún hefur lent í á lífs­leið­inni...
33:09
MenningMannlífið

Málaði sig í gegnum sorg­ina eftir dótt­ur­missi: „Eitt mál­verk jafn­að­ist á við tutt­ugu sál­fræði­tíma“

Sigríður Rannveig Jóns­dóttir er nýjasti gestur hlað­varps­þátt­ar­ins Mann­lífið. Hún hefur gengið í gegnum ótrú­legar raunir á lífs­leið­inni en í jan­úar árið 1995 missti hún unga dóttur sína í snó­flóð­inu í Súðavík sem og tengda­for­eldra. Hér er brot úr seinni hluta við­tals­ins: Sigríður Rannveig not­aði mál­ara­list­ina til að takast á við sorg­ina við að missa 18 mán­aða gamla dóttur sína. „1996...
InnlentMannlífið

Hund­ur­inn Hnota fann eldri dóttur Sigríðar eftir snjó­flóðið í Súðavík: „Biðin var skelfi­lega löng“

Sigríður Rannveig Jóns­dóttir er nýjasti gestur hlað­varps­þátt­ar­ins Mann­lífið. Hún hefur gengið í gegnum ótrú­legar raunir á lífs­leið­inni en í jan­úar árið 1995 missti hún unga dóttur sína í snó­flóð­inu í Súðavík sem og tengda­for­eldra. Hér er brot úr fyrra hluta við­tals­ins: Þegar snjó­flóðið skall á þorpið í Súðavík snemma morg­uns 16. jan­úar 1995, kastað­ist Sigríður Rannveig út úr hús­inu og...
32:51
MenningMannlífið

Sigríður missti dóttur sína í snjó­flóð­inu í Súðavík: „Ég held að reiðin hafi bjargað lífi mínu“

Sigríður Rannveig Jóns­dóttir er nýjasti gestur hlað­varps­þátt­ar­ins Mann­lífið. Hún hefur gengið í gegnum ótrú­legar raunir á lífs­leið­inni en í jan­úar árið 1995 missti hún unga dóttur sína í snó­flóð­inu í Súðavík sem og tengda­for­eldra. Hér er brot úr fyrra hluta við­tals­ins: „Ég kvaldi mig svo­lítið yfir því að hafa látið þá litlu sofa sér, í sínu her­bergi,“ segir Sigríður Rannveig...
29:15
MenningMannlífið

Sanna segir kyn­þátta­hatur vera aukast á Íslandi: „Verið að efast um það að þau til­heyri þjóð­inni“

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir var í aðal­hlut­verki við að koma Sós­í­alista­flokknum inn í borg­ar­stjórn. Hún braut ísinn og náði sjálf kosn­ingu á þar síð­asta kjör­tíma­bili. Í kosn­ing­unum þar á eftir náðu tveir full­trúar kjöri. Nú stefnir hún á þing og flokkur hennar und­ir­býr fram­boð í öllum kjör­dæmum. Krafta­verka­konan Sanna segir sögu sína í Mann­líf­inu. Í þætt­inum ræðir Sanna meðal ann­ars um...
29:15
MenningMannlífið

Fátækt í æsku hafði mót­andi áhrif á Sönnu: „Það nátt­úru­lega á ekki að líð­ast“

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir var í aðal­hlut­verki við að koma Sós­í­alista­flokknum inn í borg­ar­stjórn. Hún braut ísinn og náði sjálf kosn­ingu á þar síð­asta kjör­tíma­bili. Í kosn­ing­unum þar á eftir náðu tveir full­trúar kjöri. Nú stefnir hún á þing og flokkur hennar und­ir­býr fram­boð í öllum kjör­dæmum. Krafta­verka­konan Sanna segir sögu sína í Mann­líf­inu. Í þætt­inum ræðir Sanna meðal ann­ars um...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Menning

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027