„Staðan er þannig að það er ekkert að frétta,“sagði Sunna Dóra Möller, settur sóknarprestur í Digranes- og Hjallaprestakalli í samtali við Fréttablaðið. Ásakanir á hendur séra Gunnari Sigurjónssyni, sóknarpresti í Digranes- og Hjallaprestakalli urðu til þess að hann var sendur í leyfi en það hefur nú verið framlengt til 1.maí næstkomandi.
Gunnar hefur verið í leyfi frá því í desember vegna ásakana sex kvenna um kynferðislega áreitni, einelti og kynbundið ofbeldi.
Stóð það til að Gunnar yrði í leyfi til 1.mars, á meðan mál hans væri skoðað hjá óháðu teymi sem starfar utan við stofnanir kirkjunnar.
Staðfesti Sunna Dóra að ekkert væri að frétta af málinu og að Gunnar væri enn í leyfi frá störfum.
„Málin liggja hjá teyminu og við bíðum eftir því að niðurstaða skili sér. Þetta er náttúrulega flókið og margslungið mál og í mörg horn að líta þannig að þau þurftu bara aðeins lengri tíma til að fara yfir þetta og hann var settur í leyfi í allavega tvo mánuði í viðbót,“ sagði hún og bætti við að minnsta kosti sjö mál sem tengdust Gunnari væru til rannsóknar.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir