Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Stór­söngv­ari selur í Laug­ar­dalnum

Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Fólk

Heitustu jóla­gjaf­irnar 2026

Fólk

Katla stofnar fyr­ir­tæki með móður sinni

Innlent

Séra Hjördís stóð með for­eldrum Bryn­dísar Klöru á þeirra erf­ið­ustu stundum

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum

Minning

Borgþór Vest­fjörð Kjærne­sted er fall­inn frá

Heimur

Gam­an­leik­ar­inn Anthony Clark lát­inn

Innlent

Eft­ir­litið fór fram þrátt fyrir meint veik­indi hús­ráð­anda

Ranglega merkt við „lokið“ á verkefnalista meirihlutans

Verk­efn­unum meiri­hlut­ans er skipt í átta mála­flokka

Hildur Björnsdóttir
Hildur Björns­dóttir Er borg­ar­stjóri Reykja­víkur Mynd: Víkingur

Þegar nýr meiri­hluti Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Við­reisnar og Fram­sókn­ar­flokks­ins tók við stjórn í Reykja­vík var vef­síðan verk­efna­listi.is opnuð. Þar get borg­ar­búar fylgst með fram­vindu þeirra verk­efna sem sett hafa verið fram í meiri­hluta­sátt­mála flokk­anna.

Á vef­síð­unni eru stefnu­mál meiri­hlut­ans útfærð og tíma­sett með það að mark­miði að auka gagn­sæi í stjórn­sýslu borg­ar­innar og gera íbúum kleift að fylgj­ast með hvernig fram­kvæmd lof­orða og verk­efna miðar áfram.

Verk­efn­unum er skipt í átta mála­flokka: æsku­árin, sam­göngur, hús­næði, atvinnu­líf og menn­ingu, hreyf­ingu og úti­vist, efri árin, vel­ferð og rekstur og umhirðu.

Meðal verk­efna sem birt eru á list­anum eru áform um að semja við einka­að­ila um upp­bygg­ingu hag­kvæms hús­næðis fyrir leik­skóla og dag­heim­ili, end­ur­skoðun deiliskipu­lags við Suð­ur­lands­braut og afnám reglna um hámarks­fjölda bíla­stæða við nýbygg­ingar. Þá er einnig stefnt að lækkun fast­eigna­skatta á atvinnu­hús­næði, auknu aðgengi almenn­ings að íþrótta- og skóla­hús­næði borg­ar­innar og sér­stöku átaki til að efla tækni­færni eldra fólks.

Öll verk­efni á list­anum eru merkt með skýrum tímara­mma. Sum þeirra eiga að ná fram að ganga innan fyrstu 100 daga kjör­tíma­bils­ins, önnur innan 12 mán­aða og enn önnur á fjög­urra ára tíma­bili.

Öldungar og íslenski fáninn

Athygli vekur að nú þegar er búið að merkja „Lokið“ við tvö verk­efni. Annars vegar við „Við ætlum að end­ur­vekja öld­unga­ráð borg­ar­innar og efla sam­starf við hags­muna­sam­tök eldra fólks“ og hins vegar við „Við ætlum að draga íslenska fán­ann að húni dag­lega við Ráðhús Reykja­víkur.“

Nýr meiri­hluti er vissu­lega búinn að end­ur­vekja öld­unga­ráð borg­ar­innar og eru það Albert Guð­munds­son og Björn Gíslason frá Sjálf­stæð­is­flokknum og Steinunn Gyðju- og Guð­jóns­dóttir frá Sam­fylk­ing­unni sem sitja í því ráði.

Eðli máls­ins sam­kvæmt hefur meiri­hlut­inn þó ekki staðið við lof­orðið um fána­málið enda er kjör­tíma­bilið nýhafið og ómögu­legt að segja hvort íslenski fán­inn verði dreg­inn að húni alla daga og getur margt spilað inn í, eins og t.d. veður og frí starfs­manna. Er því rang­lega merkt að því máli sé lokið.

Mannlíf sendi fyr­ir­spurn á alla odd­vita meiri­hlut­ans um málið en fékk ekki nein svör.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Heimur

Móðir RJ Mitte minn­ist hans mán­uði eftir and­látið

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Rabbíni ferð­ast um Vest­ur­bakk­ann til að kynna sér ofbeldið

Pólitík

Pólitík

„Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

Björn Þorláksson segir málflutning fyrrverandi ráðherra geta skaðað bæði Morgunblaðið og Sjálfstæðisflokkinn.
  • Pólitík

    Segir fyr­ir­spurnir Guðlaugs Þórs eðli­legar en hafnar sam­an­burð­inum við Pírata

  • Pólitík

    Jódís segir Sverri snúa út úr orðum sínum

  • Pólitík

    Daði Már segir svar um fundi án for­stjóra hafa verið óná­kvæmt

  • Pólitík

    Vill stofna sann­girn­is­bóta­sjóð vegna illrar með­ferðar á börnum í vistun

  • Pólitík

    „Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“