Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Í fréttum var þetta helst – Bálreið í Grafarholti, orðlaus í Hagkaupum, þyngri dómur og Öfgabréf

Klara bálreið eftir göngu í Grafarholti – „Ég er mjög hrædd við þá“

Klara nokkur, íbúi í Grafar­vogi, lætur ekki bjóða sér það lengur að mæta hundum í lausa­göngu í göngu­ferðum sínum á Reynis­vatnsheiði. Hún segist logandi hrædd við hundana enda hafi hún verið bitin af einum slíkum fyrir nokkru.

Klara opnar á umræðuna í hópi hverfisbúa á Facebook. Þar segir hún:

„Æ oftar mæti ég fólki sem er með lausa hunda. Hefur það komið fyrir að hundar hafa komið hlaupandi á móti mér og stokkið upp á mig. Ég er ekki sátt við það þar sem ég hef verið bitin af hundi. Ég hef nefnt það við eigendur hundanna að hafa þá í bandi en fengið þau svör að þau mættu hafa þá lausa,“ segir Klara og heldur áfram:

„Eftir að hafa lent í sömu aðstöðu í morgun þá fór ég og kannaði hvort þetta væri í raun leyfilegt. Lausa­ganga hunda er leyfð á Reynis­vatnsheiði en EKKI á göngu-, reið- og aksturs­vegaslóðum né einka­lóðum á svæðinu. Vona ég að hunda­eigendur virði þessa reglu og hafi hundana sína í ól á göngu-, reið- og aksturs­vegaslóðum.“

Fjölmargir íbúar blanda sér í umræðuna og virðast flestir þeirra vera á bandi Klöru. Að minnsta kostir er Dagrún það. „Svo innilega sammála! Mér finnst mjög óþægilegt að mæta lausum hundum og ég er mjög hrædd við þá,“ segir Dagrún. Og Ragn­heiður er það líka. „Svo sammála, allt of oft sem maður rekst á lausa hunda úti um allt og mætir svo dónaskap og jafnvel árásar­girni af eigendum ef maður vogar sér að segja eitthvað,“ segir hún.

Inga nokkur vill heldur ekki sjá hundana á göngu­stígunum. „Við eigum ekki að vera hrædd á göngu­stígum á holtinu. Ég óttast marga hunda,“ segir Inga. Og Elli hefur líka slæma reynslu. „Gæti ekki verið meira sammála!! Ég var svo hrædd síðasta vetur þegar ég gekk um svæðið og ég var ólétt. Nokkrum sinnum voru hundar að hoppa á móti mér og gelta. Flestir hundarnir sem ég hef hitt hafa verið góðir en þessir fáu tilteknu hundar gerðu mig bara svo hrædda við þá alla,“ segir Elli.

Sjá alla fréttina hér: Klara bálreið eftir göngu í Grafar­holti – „Ég er mjög hrædd við þá“

Hafsteinn átti varla til orð í Hagkaupum: „Hvernig túlkið þið þetta?“

Hafsteini nokkrum blöskraði mjög verðlagið á íslenskum Ora-vörum í Hagkaupum um helgina. Hann langaði til að kaupa sér súrar agúrkur en tók þá eftir því að innfluttar slíkar kosta 620 prósentum minna en Ora-dósin.

Hafsteinn segir frá upplifun sinni í fjölmennu samfélagi á Facebook, Vertu á verði – eftirlit með verðlagi. Hann bendir þá á himinhátt kílóverð á íslensku afurðinni í saman­burði við þá erlendu.

„Hvernig túlkið þið þetta? ORA 2.636 krónur kg. EUROSHOPER 425 krónur kg.“

Fjölmargir meðlimir tjá sig undir færsluna. Margir réttlæta verð­muninn með því að benda á að íslenska varan sé mun betri en sú erlenda. Ásdís er til að mynda ein þeirra. „Það er bara ekki hægt að líkja þessu saman! Ora 100× betra,“ segir Ásdís. Og Áslaug virðist á sama máli. „Kaupir einhver þessar ógeðslegu Euroshopper vörur?“ spyr hún.

Sjá alla fréttina hér: Hafsteinn átti varla til orð í Hagkaupum: „Hvernig túlkið þið þetta?“

Dómur þyngdur yfir Jóni Páli: Segist hafa litið á samskipti þeirra sem fram­hjáhald en ekki ofbeldi

Fyrr­verandi leik­hússtjóri Leik­félags Akureyrar, Jón Páll Eyjólfsson, var dæmdur í þriggja ára skilorðs­bundið fangelsi fyrir nauðgun.

Lands­réttur þyngdi dóm héraðs­dóms um sex mánuði.

Brotið átti sér stað árið 2008.

Lands­réttur kvað upp dóm sinn í dag; málið var tekið fyrir í Héraðs­dómi Reykja­víkur í nóvember árið 2020.

Þar var Jón Páll dæmdur í tveggja og hálfs árs skilorðs­bundið fangelsi; jafnframt dæmdur til að greiða brotaþola 2,5 milljónir króna í miska­bætur, en Lands­réttur breytti upphæðinni í tvær milljónir króna.

Í ársbyrjun árið 2018 komst málið í hámæli þegar Jóni Páli var sagt upp störfum sem leik­hússtjóra, en aðeins nokkrum vikum fyrr hafði hann tilkynnt að hann ætlaði að hætta í mars fyrir þremur árum; vísaði þá til fjárhags­skorts hjá LA.

Kom í ljós seinna að hann hafði verið sakaður um nauðgun einum tíu árum fyrr, og samkvæmt dómnum átti atvikið sér stað í ágúst árið 2008 – á hótel­herbergi í útlöndum.

Afar grófar lýsingar er að finna í dómi af ofbeldinu sem Jón Páll var kærður fyrir og hann var að lokum ákærður; svo dæmdur fyrir ofbeldi og ólögmæta nauðung.

Sjá alla fréttina hér: Dómur þyngdur yfir Jóni Páli: Segist hafa litið á samskipti þeirra sem fram­hjáhald en ekki ofbeldi

Öfgar senda Aroni og Eggerti bréf: „Nýtið ykkur forréttinda­stöðu til þess að „styrkja“ ykkar mál“

Baráttu­hópurinn Öfgar sendi frá sér opið bréf til fótbolta­mannanna Arons Einars Gunnars­sonar og Eggerts Gunnþórs Jónssonar vegna yfir­lýsinga félaganna um það kynferðis­ofbeldi sem þeir hafa verið sakaðir um að hafa framið gegn íslenskri stúlku fyrir ellefu árum í Danmörku.

Öfgar.

Í áður­nefndu bréfi eru Aron Einar og Eggert Gunnþór harðlega gagn­rýndir; sagðir ráðast opinber­lega gegn stúlkunni sem sakaði þá um ofbeldið með yfir­lýsingum sínum á samfélags­miðli:

„Af hverju þurfið þið að ráðast svona að henni opinber­lega? Af hverju má þolandi ekki segja frá ónafn­greindum meintum gerendum og meintu broti sem hún varð fyrir án þess að frásögn hennar sé rengd?“

Sagt var frá því í október að íslensk stúlka hefði kært Aron Einar og Eggert Gunnþór fyrir nauðgun sem sögð er hafa átt sér í Kaupmanna­höfn árið 2010, en bæði Aron Einar og Eggert Gunnþór hafa nú gefið skýrslu hjá lögreglu vegna rann­sóknar málsins. Lögmaður Arons Einars sagðist í gær búast við því að málið yrði fellt niður.

Baráttu­hópurinn Öfgar segja að þolandi meintrar nauðgunar sé í fullum rétti að kæra meinta gerendur; að enginn þolandi leiki sér að því að berskjalda sig á þennan hátt.

„Það gerir sér enginn þolandi það að leik að kæra meinta gerendur sína, hvað þá ef þeir hafa völd í samfélaginu, eru fyrir­myndir, myndar­legir fjölskyldu­menn, dýrkaðir og dáðir.“

Sjá alla fréttina: Öfgar senda Aroni og Eggerti bréf: „Nýtið ykkur forréttinda­stöðu til þess að „styrkja“ ykkar mál“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Ágreiningur um þrif, ræstiþjónustu og myndavélar í sameign fór fyrir kærunefnd
Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Lögreglan hafði hendur í hár hans

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli