Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Embætti Landlæknis – Engar verklagsreglur til um endurveitingu starfsleyfa

Mannlíf sendi fyr­ir­spurn á Embætti Land­læknis varð­andi verk­lags­reglur í kringum end­ur­veit­ingu starfs­leyfis heil­brigð­is­starfs­manna. Svarið er komið. Það eru engan verk­lags­reglur til.

Í svar­inu vitnar Kjartan Hreinn Njálsson, upp­lýs­inga­full­trúi Land­læknis, í lög um land­lækni og lýð­heilsu nr. 41/2007 sem emb­ættið starfar eftir. Í 15, 16 og 17. gr. lag­anna eru að finna ákvæði sem fjalla um svipt­ingu og brott­fall starfs­leyfis, afsal starfs­leyfis og end­ur­veit­ingu starfs­leyfis. Sextánda grein lag­anna hljóðar svo:

„Land­læknir getur veitt heil­brigð­is­starfs­manni, sem sviptur hefur verið starfs­leyfi eða hefur afsalað sér því, starfs­leyfi að nýju enda hafi við­kom­andi sýnt fram á að hann upp­fylli skil­yrði laga fyrir end­ur­veit­ingu starfs­leyfis og að þær ástæður sem leiddu til svipt­ingar eða afsals eigi ekki lengur við. Land­læknir getur ákveðið að end­ur­veitt starfs­leyfi skuli vera tíma­bundið eða tak­markað, sbr. 15. gr.“

Kjartan Hreinn bætir við í svari sínu að engan skrif­legar verk­lags­reglur um end­ur­veit­ingu séu til.

„Ekki liggja fyrir skrif­legar verk­lags­reglur um end­ur­veit­ingu. End­ur­veit­ing starfs­leyfis fer eftir aðstæðum í hverju máli fyrir sig en eins og sést af lestri fram­an­greindra ákvæða geta ástæður afsals eða svipt­ingar verið ýmsar.“

Af þessu svari að dæma má draga þá ályktun að end­ur­veit­ingar starfs­leyfa séu háðar geð­þótta Land­læknis hverju sinni eða að verk­lags­regl­urnar séu til í munn­legri geymd. Hvoru tveggja hlýtur að vera áhyggju­efni fyrir þá starfs­menn sem sækja um end­ur­veit­ingu starfs­leyfir sem og sjúk­ling­anna.

Ef litið er til nýlegs máls sem Mannlíf hefur fjallað um und­an­farnar vikur, mál Dr. Skúla Tómasar Gunn­steins­sonar, er ekki að sjá að þær ástæður sem leiddu til svipt­ingar eða afsals eigi ekki lengur við. Dr. Skúli missti starfs­leyfi sitt vegna alvar­legra brota í starfi sem síðan leiddi til lög­reglu­rann­sóknar sem enn stendur yfir. Sex fjöl­skyldur hafa kært Dr. Skúla fyrir alvar­leg brot í starfi. Nýlega end­ur­nýj­aði Alma Möller land­læknir starfs­leyfi Dr. Skúla til næstu 12 mán­uða, þrátt fyrir að hafa sjálf gefið honum algjör fall­ein­kunn er hún gaf álit á brotum hans í starfi yfir­læknis HSS.

Sjá einnig: Álit land­læknis á máli Skúla læknis: „Ómeð­höndl­aðar sýk­ingar kunni að hafa verið aðal dán­ar­or­sök“
Sá einnig: Dr. Skúli fékk víst starfs­leyfi – Rann­sak­aður af lög­reglu en fær að vinna næstu 12 mán­uði

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

„Þú getur treyst barninu sem þú varst. Jesús gerir það“
Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu