Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

„Tími undanþága og fresta í svínahaldi er liðinn“

Dýra­vernd­ar­sam­band Íslands kallar eftir auknu gagn­sæi og hertu eft­ir­liti með svína­haldi og vill að frestur til að upp­fylla vel­ferð­ar­kröfur verði end­ur­skoð­aður.

Svínahald
Svína­hald Dýra­vernd­ar­sam­band Íslands kallar eftir hertu eft­ir­liti með svína­haldi og auknu gagn­sæi um aðbúnað dýr­anna. Myndin er ekki af búinu sem fjallað er um. Mynd: Joshua Lutz

Dýra­vernd­ar­sam­band Íslands kallar eftir auknu gagn­sæi og hertu opin­beru eft­ir­liti með svína­haldi. Sam­bandið telur að myndefni sem nýlega var birt úr íslensku svína­búi sýni alvar­leg kerf­is­bundin vanda­mál og að end­ur­skoða þurfi frest sem svína­bændur hafa fengið til að upp­fylla kröfur um vel­ferð dýr­anna.

Dýra­vernd­ar­sam­band Íslands (DÍS) segir að tími und­an­þága og fresta í svína­haldi sé lið­inn. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sam­bands­ins í kjöl­far þess að nýlegt myndefni úr íslensku svína­haldi vakti mikla athygli og reiði.

Á myndefn­inu má meðal ann­ars sjá dauða og deyj­andi grísi innan um önnur dýr, svín með sár, skort á und­ir­burði fyrir dýrin til að róta í og aðstæður sem sam­bandið segir sam­rým­ast illa gild­andi reglum um vel­ferð svína.

Að mati DÍS varpar myndefnið ljósi á „alvar­leg kerf­is­bundin vanda­mál sem geta skap­ast þegar fram­leiðslu­sjón­ar­mið fá meira vægi en vel­ferð dýra“.

Sam­bandið telur brýnt að áherslum í svína­haldi verði breytt þannig að vel­ferð dýr­anna verði í for­gangi, fremur en hámarks­fram­leiðsla.

Telja svína­haldið of lokað

Dýra­vernd­ar­sam­bandið kallar jafn­framt eftir auknu gagn­sæi í grein­inni og segir óásætt­an­legt að almenn­ingur fái ekki inn­sýn í aðbúnað dýr­anna fyrr en ein­stak­lingar grípi til þess ráðs að afla myndefnis með þessum hætti.

„Búrekstur sem ekki þolir dags­ins ljós er rek­inn á hæpnum for­sendum,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Þar segir enn fremur að almenn­ingur eigi rétt á að vita við hvaða aðstæður dýr sem alin eru til mat­væla­fram­leiðslu lifi og hvernig komið sé fram við þau. Gagnsæi og virkt eft­ir­lit séu grund­vall­ar­for­sendur þess.

DÍS telur einnig brýnt að opin­bert eft­ir­lit með svína­haldi verði eflt.

Gagnrýna und­an­þágur vegna hala­klipp­inga

Í yfir­lýs­ing­unni er sér­stak­lega gagn­rýnt að stjórn­völd hafi árum saman veitt und­an­þágur frá reglum sem eiga að vernda svín. Þrátt fyrir að hala­klipp­ingar séu bann­aðar hafi svína­bændum verið heim­ilt að klippa hala af nokk­urra daga gömlum grísum án deyf­ingar.

Sam­bandið segir að í stað þess að bæta aðstæður dýr­anna séu þau lim­lest til að þjóna fram­leiðslu­kerfi sem byggi á hámarks­fram­leiðslu með sem minnstum til­kostn­aði.

„Það er með öllu óásætt­an­legt. Dýr sem eru notuð í atvinnu­rekstri eiga ekki að þjást. Velferð dýra á ávallt að vera í for­gangi,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Vilja end­ur­skoða frest­inn til árs­ins 2028

Svína­bændur hafa fengið við­bót­ar­frest til 1. jan­úar 2028 til að upp­fylla kröfur reglu­gerðar um vel­ferð svína.

Dýra­vernd­ar­sam­bandið telur fullt til­efni til að end­ur­skoða þann frest í ljósi þess sem nýlega hefur komið fram.

Að lág­marki verði að liggja fyrir að við­bót­ar­frest­ur­inn sé end­an­legur og að engar frek­ari und­an­þágur verði veittar.

„Tími und­an­þága og fresta í svína­haldi er lið­inn,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

„Lífið er svo miklu betra með þér“
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu