Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Fólk

Selja ein­býli með turn­stofu og verð­launa­garði

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Fólk

Ragnar Bragason birti mynd­band af dul­ar­fullum ljósum yfir Sunda­höfn

Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Bubbi styður Yazan: „Skoruðum á alla að bregðast við stöðunni“

Staða Yazan Tamimi, ell­efu ára palest­ínsks drengs sem glímir við vöðva­rýrn­un­ar­sjúk­dóm, er sú að hann og fjöl­skylda hans gætu verið send til Spánar.

Kemur fram á RÚV að Unnur Helga Ótt­ars­dóttir, sem er for­maður Þroska­hjálpar, fer fyrir hópnum Vinir Yazans; hefur hóp­ur­inn birt und­ir­skrifta­lista þar sem margir úr íslensku sam­fé­lagi hvetja íslensk stjórn­völd til að sýna mannúð í máli drengs­ins:

Unnur Helga Ótt­ars­dóttir.

„Við höfum fengið frá­bær­lega góð við­brögð; þetta er fjöl­breyttur hópur sem hefur skrifað undir, lista­fólk, sál­fræð­ingar, læknar, prestar, for­ystu­fólk úr verka­lýðs­hreyf­ing­unni og fjöl­margir aðrir.“

Bubbi Morthens

Afar vel þekktir ein­stak­lingar úr íslensku sam­fé­lagi eru komnir á blað; á meðal þeirra er nú hafa þegar skráð sig eru á list­ann eru þjóð­þekktir ein­stak­lingar; til dæmis Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir biskup Íslands, Bubbi Morthens, Edda Björg­vins, Steinunn Sig­urð­ar­dóttir rit­höf­undur og Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR; ásamt mörgum öðrum.

Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir biskup.

Þessi sam­tök – Vinir Yazans – voru sett álagg­irnar eftir sam­stöðu­fund er hald­inn var í júní þar sem vakin var athygli á stöðu Yazans.

„Við sendum tölvu­póst á alla ráð­herra og þing­menn og skor­uðum á alla að bregð­ast við stöð­unni,“ segir Unnur og bætir við:

„En við fengum ekki nógu góð við­brögð og ákváðum því að búa til Vini Yazanas, sem er hópur fólks sem styður við hann.“

Fjöl­skyldan fékk eigi efn­is­lega með­ferð á sínum tíma þar sem hún fékk vega­bréfsund­ir­ritun á Spáni; er því hægt að senda þau aftur þangað á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar.

Albert Björn Lúð­vígs­son.

Albert Björn Lúð­vígs­son – sem er lög­maður Yazans – segir að fyrir liggi end­ur­upp­töku­beiðni hjá Kæru­nefnd útlend­inga­mála. Rétt­inda­gæsla fatl­aðs fólks beitti sér meðal ann­ars fyrir því en bent var á að fötlun Yazan hefði eigi verið tekin til greina við með­ferð máls­ins og ekki liggur fyrir nein dag­setn­ing um það hvenær fjöl­skyld­unni verður vísað úr landi.

Segir Albert það mögu­legt að þeim verði vísað úr landi á meðan verið sé að leggja mat á end­ur­upp­töku­beiðn­ina:

„Mér finnst það ólík­legt en það gæti vissu­lega gerst,“ segir hann.

Hinn ell­efu ára gamli Yazan þjá­ist af vöðva­rýrn­un­ar­sjúk­dóm­inum Duchenne; hafa læknar hér á landi stað­fest að eigi megi rjúfa þá heil­brigð­is­þjón­ustu er hann fær hér á landi.

Kemur fram að sam­tökin Vinir Yazans hafi bent á að í samn­ingi Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks segi að í öllum aðgerðum er snerta fötluð börn skuli fyrst og fremst hafa það að leið­ar­ljósi sem er við­kom­andi barni fyrir bestu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Líkir yfir­stjórn lög­regl­unnar við „frekan krakka í dóta­búð“

„Þetta er ríkisstjórninni til háborinnar skammar“
Innlent

Ásdís Rán vill að Alþingi hringi bjöll­unni

Heimur

Vís­inda­menn þróa raf­magns­kamb sem gæti end­ur­vakið hár­vöxt

Pólitík

Ragna og Nanna vilja skoða skyldu mæðra til að taka orlof strax eftir fæð­ingu

Heimur

Leki varpar ljósi á við­skipti Deutsche Bank við Epstein

Innlent

Innlent

Tinna vill kenna börnum að láta sér leið­ast

„Hvenær urðu þessar litlu eyður í deginum okkar að einhverju sem þarf að fylla upp í?“
Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

Eigna­spjöll til rann­sóknar í Reykja­vík og Garðabæ

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku