Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Jón vill færa aðsetur forsetans til Akureyrar part úr ári: „Ég er með húsnæði í huga“

Jón Gnarr lýsti þeirri löngun sinni á fram­boðs­fundi í gær, að hann langi til þess að færa aðsetur for­seta Íslands til Akur­eyrar hluta úr ári.

Akureyri.net segir í frétt sinni að Jón hafi haldið fram­boðs­fund sinn í blíð­skap­ar­veðri við Kaffi Ilm í Skáta­gil­inu á Akureyri. Á fund­inum viðr­aði Jón hug­mynd sem ekki hefur komið fram áður. „Samkvæmt stjórn­ar­skrá skal aðsetur for­seta Íslands vera á Bessa­stöðum,“ sagði Jón við gesti fram­boðs­fund­ar­ins. „Mig langar hins­vegar að færa aðsetur for­set­ans víðar og byrja á Akureyri. Þetta er ekki stór skrif­stofa, nokkrar mann­eskjur sem fylgja. Ég sé enga ástæðu fyrir því að þetta ætti ekki að ganga. Í fram­haldi mætti skoða mögu­leik­ana á því að fara víðar. Það myndi auð­velda for­set­anum að vera í nánu sam­bandi við fólkið í land­inu. Þegar ég var á Akureyri að leika í Leik­hús­inu og dvaldi hérna um tíma, þá upp­lifði ég það að fá góða inn­sýn í líf fólks hérna.“

Jón sagð­ist vera með hús­næði í huga: „Ég er með hús­næði í huga, en ég ætla ekki að gefa neitt upp um það hér og nú. En ég væri ekki að segja þetta, ef mér væri ekki alvara.“

Ýmislegt fleira var rætt á fund­inum en kát­inu vakti þegar spurn­ing barst úr sal frá fyrr­ver­andi sam­starfs­manni Jóns úr Volvo-verk­smiðj­unni í Svíþjóð. Lýsti sá yfir áhyggjum vegna vinnu­sóknar Jóns en hann sagði for­seta­fram­bjóð­and­ann hafa mætt illa í vinn­una og spurði hvort hann ætl­aði að sýna sama kæru­leysi á Bessa­stöðum. Jóni var afar skemmt við spurn­ing­una og við­ur­kenndi strax að hafa mætt illa í vinn­una hjá Volvo og sagð­ist ætla að standa sig betur ef hann verður kos­inn for­seti.

Önnur mik­il­væg spurn­ing barst úr sal en við­staddir vildu vita hvort Jón myndi halda áfram með hinn goð­sagna­kennda útvarps­þátt Tvíhöfða, sem hann stjórnar ásamt Sig­ur­jóni Kjart­ans­syni en þætt­irnir hafa verið vin­sælir um ára­tuga­skeið. Sagðist Jón ekki sjá neina ástæðu fyrir því að Tvíhöfði þyrfti að hætta og lof­aði gest­unum að halda áfram með þátt­inn, þó hann færi á Bessa­staði.

Fundinum lauk með flutn­ingi Jóns á fram­boðslagi sínu um mið­aldra mann úr Vest­ur­bænum sem langar að verða for­seti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakjör 2024

InnlentForsetakjör 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
InnlentForsetakjör 2024

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Landið

Landið

Leifar af skála frá land­náms­tíma fund­ust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.
Landið

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Landið

Andri Snær rifjar upp fórn­irnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Landið

Leð­ur­blakan í Fellabæ enn ófundin

Landið

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Landið

Öllu starfs­fólki Heil­brigð­is­eft­ir­lits Aust­ur­lands sagt upp