Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Nicola Sturgeon: „Mjög líklegt“ að útgöngubann verði framlengt í Skotlandi

Nicola Sturgeon. Mynd / EPA
Nicola Sturgeon. Mynd / EPA

Nicola Sturgeon, fyrsti ráð­herra Skotlands, sagði á dag­legum upp­lýs­inga­fundi sínum um aðgerðir gegn kór­ónu­veiru­far­aldr­inum í hádeg­inu í dag að þótt „raun­veru­legur og mik­ils­verður árangur“ hefði náðst í því að hefta útbreiðslu veirunnar í Skotlandi væri smit­hlut­fallið enn of hátt til að aflétta útgöngu­banni, sem staðið hefur síðan 23. mars, í land­inu. Útgöngu­bannið á að end­ur­meta þann 7. maí og þótt margir hafi eflaust von­ast til að því yrði þá aflétt, að minnsta kosti að hluta til, kemur yfir­lýs­ing ráð­herr­ans fólki lítið á óvart.

Ingi­björg Rósa.

„Þetta kemur ekk­ert á óvart, mér fannst ótrú­legt að Bretland gæti byrjað að losa um hömlur í sömu viku og Ísland þar sem far­ald­ur­inn hér hefur verið sirka tveimur vikum á eftir Íslandi á kúrf­unni,“ segir Ingi­björg Rósa Björns­dóttir blaða­maður, sem búsett er í Edinborg. „Og Nicola er jú vön að segja hlut­ina hreint út og á undan Boris Johnson, þannig að það lítur út fyrir að þetta sé veru­leik­inn sem blasi við okkur í ein­hverjar vikur til við­bótar. Vonandi ekki margar þó.“

Ingi­björg Rósa segir útgöngu­bannið og far­ald­ur­inn hafa sett stórt strik í reikn­ing áætl­ana hennar fyrir þetta ár, hún hafi ætlað að nota árið til ferða­laga, en verst sé þó að hafa ekki getað heim­sótt fjöl­skyldu sína á Íslandi.

„Ég ætl­aði að leggj­ast í mikil ferða­lög á þessu ári, nokkuð sem ég plan­aði í fyrra þegar ég var inni­lokuð vegna krabba­meins­með­ferðar,“ útskýrir hún. „En nú er ég inni­lokuð vegna heims­far­ald­urs og lítur ekki út fyrir að ég kom­ist neitt á þessu ári, nema von­andi til Íslands til að heim­sækja fjöl­skyld­una. Mamma er nán­ast búin að vera í ein­angrun síðan í mars, svo mig langar að kom­ast til hennar þegar verður ferð héðan og ekki lengur kraf­ist tveggja vikna sótt­kvíar.“

Fram kom á fundi fyrsta ráð­herr­ans í hádeg­inu að fjöldi dauðs­falla af völdum Covid-19 í Skotlandi væri nú 1.576 dauðs­föll, fjöldi þeirra sem hefði geinst með smit væri 12.226 manns og af þeim væru 1.720 á sjúkra­húsum, þar af 99 á gjör­gæslu­deildum.

Fyrsti ráð­herr­ann upp­lýsti jafn­framt að verið væri að vinna að áætlun um „prófa, rekja, ein­angra“ aðgerðir í Skotlandi og von­andi yrði hægt að hefja fram­kvæmd þeirrar áætl­unar í lok maí. Það gæti leitt til þess að ýmsir yrðu aftur settir í útgöngu­bann. Ekki er því almennt búist við almennri aflétt­ingu útgöngu­banns­ins fyrr en í lok maí, í fyrsta lagi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Vefur Félagsins Ísland-Palestína liggur niðri eftir árásina og óvíst er hvort hægt verði að endurheimta hann.
Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu